Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 12

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 12
víða horfir til vandræða. Verkefnin framundan eru því næg. A sl. vetri festi félagið kaup á 4. hæð í Brautarholti 4, um 200 ferm., með það í huga að stækka Vinnustof- una As. Biðlisti eftir vinnu þar hefur aldrei verið lengri en nú. A þessu sumri hefur verið unnið að endurbótum á húsnæðinu og hefur þeim miðað vel. Þá hófust nú í sumar framkvæmdir við stækkun Lyngáss. Er hér um að ræða viðbyggingu, sem verður um 160 ferm. Verður hún fokheld nú í haust og væntanlega fæst fjármagn sem fyrst til áframhaldandi fram- kvæmda. Mun þessi stækkun bæta mjög úrbrýnni þörf, en heimilið hefur búið við mikil húsnæðisþrengsli á liðnum árum. Eins og fram kom hér að framan fjölgar fjölfötluðum börnum mjög í Lyngásiogkallarþaðáaukiðhúsrými, m.a. til geymslu á ýmiss konar hjálp- artækjum. A uk annarra verkefna í næstu fram- tíð má nefna nauðsyn á enn frekari fbúðakaupum á vegum félagsins, svo og möguleikum öryrkja í því sam- bandi, sem opnuðustmeð nýjum lána- reglum Húsnæðisstofnunarríkisins 1. september 1986. Ymsir þeirra, sem nú dvelja á sambýlum félagsins hafa lýst áhuga á að flytja í íbúðir og sækja jafnvel um lántilslíkssjálfirmeðaðstoðfélagsins. Engin tök verða hér að gera grein fyrir annarri starfsemi á vegum félags- ins, en þó skal það nefnt, að mikil áhersla hefur verið lögð á það undanfarin ár að allir skjólstæðingar þess ættu kost á skipulagðri sumar- dvöl. Á þessu sumri hafa t.d. verið farnar fimm ferðir erlendis, auk fjölmargra ferða víðs vegar um landið. Þátttakendur sjálfir greiða að lang- mestu leyti allan kostnað, en félagið með góðum stuðningi Öryrkjabanda- lagsinshefurgreittfargjaldfararstjóra. Styrktarfélag vangefinna er aðili að þessum samtökum: Öryrkjabanda- lagi Islands, Landssamtökunum Þroskahjálp og Bandalagi kvenna í Reykjavík. Skrifstofa félagsins er að Háteigsvegi 6. Félagið hefur tekjur af happdrætti, sölu jóla- og minningar- korta og frjálsum framlögum almenn- ings. I aðalstjórn sitja 7 manns: Magnús Kristinsson, formaður, Hafliði Hjartarson, varaformaður, Gunnlaug Emilsdóttir, gjaldkeri, Ragnheiður Jónsdóttir, ritari, Hörður Sigþórsson, meðstjóm- andi, Davíð Kr. Jensson, meðstjómandi, Pétur Haraldsson, meðstjórnandi. Varamenn eru: Magnús Lárusson, Helga Hjörleifsdóttir og Guðlaug Sveinbjamardóttir. Tómas Sturlaugsson. Mínum gamla félaga og skóla- bróður eru þökkuð þessi greinar- góðu skrif og skýra úttekt, en þess svo getiðaðTómaserframkvæmda- stjóri Styrktarfélags vangefinna og má segja að í formennsku og fram- kvæmdastjórn þess félags felist mikið félagslán. H.S. HLERAÐ í HORNUM Forsetar Alþingis voru með rússneska þingmenn á ferðalagi. Forseti Rússanna stakk upp á söngkeppni milli þjóða og var sungið lengi og mikið og jafntefli var talið sanngjarnt í lokin. Einn landinn söng sýnu hæst og kröftugast, enda kórvanur. I hádeginu næsta dag er borin fram ilmandi súpa og þá snýr sá rússneski sér að Helga Seljan, sem sat næst honum með túlk á móti sér og segir: „Nú skulum við borða mikla súpu. Súpa bætir og mýkir söngröddina, segjum við“. Svo bendir hann á þann sem hæst söng og segir: „Þessi ætti ekki að borða súpu. Hann er búinn að borða nóg fyrir lífstíð“. Túlkurinn hvíslaði þessu svo að Helga milli hláturshviðanna. * Klerkur einn var að k veðja sóknarböm sín, þar sem hann var að flytja í fjarlægan landshluta. M.a. kom hann til aldurhnigins bónda, sem sagði í lokin við klerk. „Já, ekki verður þú nú til að jarða mig, eins og ég hafði nú vonað“. „Og því ekki það“, segir klerkur. „Þú leggur nú ekki í langferð til þess eins að jarðsyngja mig“. „Jú, jú“, segir klerkur. „Eg hefði bara svo gaman af því“. * „Veiztu af hverju þú finnur alltaf það sem þú leitar að í bókunum þínum í síðustu bókinni“? „Nei“. „Af því að þá þarftu ekki að leita lengur". * Upphaf á líkræðu prests þótti miður heppilegt: „Við emm hér samankomin til að kveðja þessa elskulegu systur mitt í haustönnum og sláturtíð“. * Sami klerkur var að jarðsyngja mann sem hafði þótt málgefinn með afbrigðum: „Jæja, elsku vinur. Hér liggur þú og ert undra hljóður“. * Kona ein tók svo til orða: „Ég var alltaf að hugsa um það, en datt það bara alls ekki í hug“. * Dagsönn er sú saga af Austurlandi, þegar prestur einn, nú löngu látinn, spurði eitt fermingarbama sinna, hvort maðurinn lifði á brauði einu saman. „Nei, svaraði strákur, „það erbetra að hafa mjólk með“. * Þegar piltur þessi sem presti svaraði svo vel, óx upp, gerðist hann með kynlegustu kvistum sveitar sinnar. Einu sinni sem oftar var hann kaupamaður á bæ og var hafður til þess að raka á engjum, því ekki kunni hann að slá með orfi og ljá. Einn morgun fór bóndinn, sem var sláttumaður mikill, að hæla kaupamanni sínum fyrir dugnað við raksturinn og sagði að lokum: „Ég held þú drepir mig nú alveg í dag“. „Það væri betur, að ég gæti það“ sagði piltur himinlifandi. * Náunganskærleikur getur verið ærið misjafn, eins og sagaþessi sýnir: Bóndi einn var að koma úr göngum og var spurður tíðinda. „Jú, tvennt gerðist og hvoru tveggja mjög slæmt. Jón á Gili fótbrotnaði og Kalli áKeldum týndist, en fannst því miður aftur". 12

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.