Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 13
Ljóö Olafs Þorsteinssonar Þ R Ö S T U R Ólafur Þorsteinsson. N O T T Nú er sólin sofnuö sefur vært um nætur. Blómin njóta náöar. Náttmyrkriö þaö grætur. Yfir öllu hvílir unaöslegur friður. Draumar sækja á dýrin. Döggin fellur niður. Friöurinn er fundinn í faömi dimmra nátta, ef þreyta beygir bakiö best er þá að hátta. Ólafur Þorsteinsson. Ég sit á kvisti og syng mín Ijóö um sumarið bjarta, ástin góö, þaö var svo ósköp gaman. Hreiður ég byggi handa þér hérna úr stráum sem vera ber og síðan viö búum saman. Þá koma eggin eitt og eitt, ormana sæki ég vítt og breitt í matinn handa þér, mamma. Þú iiggur á eggjunum ósköp góð, ungarnir lifna, mitt kæra fljóö, að ári verður þú amma. Ungarnir hoppa út um mó áfram lifum í friöi og ró í leyni liggja þó hættur. Því krummi flýgur og kisa er aö koma og veiða handa sér í matinn um miöjar nætur. Lífið er ekki leikur þeim þótt Ijómi dagur vítt um geim, er veöur harðna í vetur. Frost og kuldi og freðin jörö, fannir liggja um holt og börö, þá herðir að hvaö þú getur. Lítill þröstur leitar skjóls í lautu að baki næsta hóls og kúrir á köldu svelli. Lífið er ekki alltaf sól, auminginn litli nærri kól. Hart er aö halda velli. Er vorsólin skín og vermir jörö þá vaknar líf um holt og börð og allt veröur aftur gaman. Lækirnir skoppa og leika sér, lífiö er fagurt sem vera ber og síðan viö búum saman. Ólafur Þorsteinsson. Eftirmáli ritstjóra: Margir leita á vit ljóðagyðjunnar, en fara leynt með það og vilja sízt af öllu, að það sem á hugann leitar og á blað er fest verði öðrum til sýnis en sjálfum þeim. Einn þeirra, sem svo er ástatt um, er Olafur Þorsteinsson, MS-sjúklingur, sem hér á tvö ljóð í Fréttabréfinu. Kvæðin sýna og sanna, hversu vel liðtækur Olafur er á Ijóðavelli og eru honum færðar beztu þakkir fyrir. Punktar frá síöasta sumri Það væri að æra óstöðugan að tíunda öll þau dæmi, sem hér berast á borð eftir árlega útsendingu álagning- arseðla um mánaðamótin júlí-ágúst. Lakasta mistakadæmið, sem hér kom upp varðaði slysabætur til öryrkja — eingreiðslubæturnar svokölluðu, sem voru skattlagðar að fullu, þó Tryggingastofnun ríkisins hefði að sjálfsögðu ekki tekið neina stað- greiðsluskatta af bótunum. Nú eru alveg skýr fyrirmæli um það, að þessar bætur skv. 4. mgr. 34. gr. laga um almannatryggingar eru skattfrjálsarog m.a. verið nýlega ítrek- uð í bréfi ríkisskattstjóra. Á launamiða viðkomandi öryrkja stóð aðeins: Eingreiðslur, sem skýring bóta og máske hefur glöggum athug- anda á skattstofunni ekki verið merk- ing þess orðs Ijós. N ú hefði mátt ætla að framteljanda hefði kannski skjátlast með að setja upphæð þessara bóta í kórréttan dálk, en hann fékk ágætan starfsmann á skattsofunni til þess verks með sér að gera skattaskýrsluna, svo ekki var skýringin þar. Mistök — mannleg mistök eiga þarna hlut að máli, en þau eru þó mjög alvarleg því þarna er beinlínis verið að leggja á af van- þekkingu — einhver ekki nógu vel að sér yfirfarið skattframtalið og haldið sig finna mjög væna matarholu hjá öryrkjanum. Öryrkinn sjálfur var mjög miður sín, því með réttu átti hann að fá greiddar 20 þús. 1. ágúst, en fékk skuld upp á 240 þús. sem a.m.k. varð valdandi að einni andvökunótt meðan áttum var náð á ný. En því miður — eitt dæmi aðeins af alltof mörgum. Leiðrétting I síðasta Fréttabréfi voru listilega samdar gátur eftir Ingibjörgu Sig- fúsdóttur frá Refsteinsstöðum. Ráðn- ingar fylgdu með. Fyrsta gátan reyndist víst torveldust, enda auðskil- ið, þegar þess er gætt að þar stóð: Garðar flipa fyrstan tel. Þar átti auðvitað að standa: Jarðar flipa fyrstan tel. Og þá er ráðningin auðskilj - anlegri einnig þ.e. Torfi. Eru allir hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þessu. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.