Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 17
hérbragarbótá.
Hins vegar var Karvel, í samtali
við ritstjóra, ekki ýkja bjartsýnn á
það, að slík breyting til afturvirkni
komist í gegn miðað við þá
undarlegu tregðu, sem gilt hefði um
allt þetta mál, þegar það var til
meðferðar á Alþingi.
Það ereinmittþettafólk, sem árum
saman hefur beðið bótalaust, sem
mest hringir hingað og sem á
einhvern veg verður að koma til
móts við. Löggjafinn verður að sjá
sóma sinn í þessu máli.
Megingrundvöllur þessa máls er
réttlæti þeim til handa, er harðast
hafa orðið úti fyrir mistök -
sannanleg og ótvíræð eins og hlýtur
að henda jafnt hj á he i I brigðisstéttum
sem öðrum starfshópum í
þjóðfélaginu.
Sem bezt og fullkomnust löggjöf
þeim til réttaröryggis hlýtur að vera
þingheimi kappsmál. Og dagsetn-
ingar undirskrifta eiga ekki öllu að
ráða.
Viðsjáumhvað seturogfylgjumst
svo sannarlega með þeirri framvindu
sem verður.
Reglur um sjúklingatryggingu
1) Hinn tryggði fyllir út sérstakt tilkynningareyðublað um meintan tryggingaratburð og
sendir Tryggingastofnun ríkisins.
2. Hinn tryggði er kallaður til viðtals hjátryggingayfirlækni og slysatryggingadeild, þar
sem aflað er frekari upplýsinga áður en gagnaöflun hefst.
3. Tryggingayfirlæknir annast gagnaöflun í samráði við slysatryggingadeild og leitar
umsagna sérfræðinga ef við á.
4. Að gagnaöflun lokinni sendir tryggingayfirlæknir málið til umsagnar landlæknis.
Jafnframt vinnur tryggingayfirlæknir álitsgerð um læknisfræðilegt orsakasamband.
5. Að fenginni álitsgerð tryggingayfirlæknis, landlæknis og mögulegum umsögnum
annarra sérfræðinga, úrskurðar slysatryggingadeild um bótaskyldu á grundvelli
fyrirliggjandi gagna.
6. Við úrskurð um bótaskyldu skulu eftirfarandi reglur hafðar að leiðarljósi:
Heilsutjón þarf að vera unnt að rekja til:
a) Rannsókna, meðferðar eða athafnaleysis við rannsóknir eða meðferð.
b) Smits, ígerðar eða síðbúinna afleiðinga, sem líklegt má telja að hlotist hafi í sambandi
við rannsóknir, meðferð eða aðrar svipaðar aðgerðir, sem sjúklingurinn gekkst undir.
c) Óhapps (slysni) á heilbrigðisstofnun.
I) sem tengist rannsóknum, meðferð eða öðrum svipuðum aðgerðum, sem sjúklingur
gekkst undir.
II) sem leiðir til áverka eða annars heilsutjóns.
III) sem rekja má til bilunar í búnaði eða tækjum.
7. ) Sé tilvikið bótaskylt metur tryggingayfirlæknir örorku hins tryggða.
8. ) Rísi ágreiningur sbr. 5. tl. skal vísa honum til tryggingaráðs til úrskurðar.
Hins vegar er rétt að taka fram að þegar er hafin greiðsla bóta samkvæmt Iögum þessum
og reglum og ber að fagna því.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17