Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 27

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 27
Gísli Helgason deildarstjóri: Nokkrir umferðarþankar á hausti Hér á dögunum var skýrt frá þ ví að ný tegund hljóðmerkja hefði verið sett á gangbrautarljósin á homi Stakka- hlíðar og Miklubrautar í Reykjavík. Þetta hljóðmerki er þannig að lágt píp heyrist ávallt og vísar blindu eða sjón- skertu fólki á ljósin. Þegar ýtt er á hnapp og græna Ijósið kemur, verður hljóðmerkið tíðara. A öllum öðrum gangbrautarljósumheyristhljóðmerk- ið þegar grænt ljós kemur. Þegar farið var að setja ljós á nokkrar gangbrautir í Reykj avík í by rj - un áttunda áratugarins, þótti það mikil framför og sérstaklega hljóðmerkin. Blindrafélagið benti fljótlega á að þetta væri ekki nóg, setja þyrfti hljóðmerki á öll umferðarljós borgarinnar. Gang- andi vegfarendur þyrftu iðulega að notfæra sér umferðarljósin og kæmu þau að litlu gagni fyrir þá sem væru illa eða lítt sjáandi. M.a. var þetta áréttað kröftuglega á ráðstefnu sem Blindrafélagið hélt um umferðarmál og umhverfi fyrir fjórtán árum. Umferðarfrömuðir borgarinnar dauf- heyrðust við þessum tilmælum, senni- lega af því að þeir töldu gangbrautar- Ijósin fullnægjandi, en staðreyndin er því miður sú, að Reykjavíkurborg er komin langt aftur úr öðrum stórborg- um hinna Norðurlandanna hvað þetta snertir. Þegar lítt sjáandi maður kemur að umferðarljósum, byrjar hann á því að rýna í ljósin og stundum tekst honum að sjáhvortrautteðagrænt ljós sé, það fer allt eftir birtuskilyrðum. Ef hljóðmerki segði til um hvort rautt eða grænt ljós væri, myndi það skapa Gísli Helgason. aukið umferðaröryggi, bæði fyrir þá sem sjá lítið og eins fyrir aðra veg- farendur, sem gætu þá einnig farið eftir þessum hljóðmerkjum. Mér er í fersku minni að einn eftirmiðdag fyrir tveimur áratugum var undirritaður, þá ungur og hress, á leið niður Laugaveginn, kom við í hljómplötuverslun og keypti sér Bítlaplötu. Með hljómplötuna undir annarri hendi rölti hann sér niður Laugaveginn. Ekkert sérstakt bar til tíðinda fyrr en undirritaður, sem var þá frekar léttur á sér miðað við nú, heyrði óskaplegt bremsuhljóð, bílflaut og öskur. Hann tókst á loft og hafnaði á gangstétt hinum megin við götu, sem hann var þá kominn út á. (Hljómplatan var hins vegar mun léttari á sér, hélt áfram fluginu og hefur ekki sést síðan). Þessi gata var Skólavörðustígurinn og undirritaður hafnaði beint í fanginu á lögregluþjóni sem spurði skelfingu lostinn því hann gerði svona bölvaða vitleysu að vaða yfir á rauðu ljósi. Undirritaður skalf á beinunum og tjáði lögregluþjóninum að hann hefði verið svo utan við sig að hann hefði ekki veitt ljósunum athygli. Auk þess væru birtuskilyrði þannig að erfitt væri að sjá þau. Lögreglu- þjónninn gaf mér áminningu og bætti við að það hlyti að vera hægt að setja einhverskonarhljóðmerki áþessi ljós svo að menn eins og ég og aðrir rugludallar færum okkur ekki að voða. Fyrir nokkru átti ég leið um erlenda stórborg. Þar voru hljóðmerki á flestum umferðarljósum. Einnig höfðu Ijósin sjálf verið stækkuð og voru ekki sett eins hátt upp á staurana og hér á landi. Þau sáust mun betur fyrir vikið og hljóðmerki gerði gangendum mjög auðvelt um að ferðast. Það er von mín, að þeir sem ráða umferðarmálum Reykvíkinga, geri áætlun um að setja hljóðmerki á öll umferðarljós borgarinnar. I rauninni finnst mér að ætti að leiða í lög að hljóðmerki væru á öllum umferðar- ljósum. Eg hef heyrt að í umferðar- nefnd Reykjavíkur hafi komið fram tillaga þessa efnis og er það vel. Því gæti hins vegar verið borið við að þessi hljóðbúnaður sé svo dýr. En ætli hann myndi ekki borga sig fljótt upp með færri slysum á gangendum? Menn skyldu einnig hafa í huga að það sem gert er til hagsbóta fötluðum í umhverfinu, kemur hinum ófötluðu í 618% tilvika mun meira til góða. Reykjavík, 4. september 1990, Gísli Helgason. VISSIR ÞÚAÐ... Kyntáknið James Dean missti framtennurnar í slysi þegar hann var 10 ára gamall. Hann var því með falskar í efri góm og tók þær oft út úr sér til að skjóta aðdáendum sínum skelk í bringu. Mynd málarans Matisse, „Le Bateau“ hékk uppi á vegg í Listasafninu í Ne w York (The Museum of Modern Art), áður en einhver tók eftir því að myndin var á haus. DáðastisönglagahöfundurBandaríkj- anna, Irving Berlin, lærði aldrei að lesa né skrifa nótur... Dóttir Byrons lávarðar var stórgáfaður stærðfræðingur og átti þátt í að finna upp fyrstu tölvuna. Bandaríski þingmaðurinn Edward Kennedy var rekinn frá Harvard háskóla fyrir að svindla á prófi. Arið 1837 gekk í Bretlandi dómur sem heimilaði konum að bíta nefið af mönnum er kysstu þær í leyfisleysi. Leonardo da Vinci fann upp fallhlífina árið 1480, en enginn sá ástæðu til að nota hana fyrr en 400 árum síðar. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 27

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.