Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 28
Kristín Jónsdóttir og Lilja Þorgeirsdóttir:
25. þing Sjálfsbjargar
Landssambands fatlaðra
25. þing Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, var haldið dag-
ana 21.—23. júní sl., og fór í fyrsta
sinn fram í nýjum samkomusal í
Sjálfsbjargarhúsinu í Hátúni 12.
Þingforseti var Trausti Sigur-
laugsson sem vann þar eitt síðasta
verk sitt fyrir samtök fatlaðra.
Réttri viku eftir þinglok var hann
allur.
Aðalmál þingsins voru að þessu
sinni tvö. Annað varendurskoðun laga
um málefni fatlaðra sem nú er unnið
að. Hitt varðaði húsnæðismál.
Tvö framsöguerindi voru flutt um
endurskoðun á lögum um málefni fatl-
aðra. Annað flutti Bragi Guðbrandsson
félagsmálastjóri Kópavogs, en hann
erformaðurnefndarinnarogkom m.a.
fram í máli hans að nefndin hefur
skipt verkefni sínu niður í eftirfarandi
hluta: Réttfatlaðra til almennrarþjón-
ustu; stoðþjónustu og stofnanaþjón-
ustu; ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga;
skilgreiningu á fötlun; yfirstjórn og
samræminguráðuneyta; stjómamefnd
ogframkvæmdasjóð; og loks hlutverk
svæðisstjóma og starfsliðs þeirra.
Hitt erindið flutti Eggert Jóhannes-
son framkvæmdastjóri svæðisstjórnar
á Suðurlandi. Eggert fjallaði einkum
um aðdragandann að setningu nú-
gildandi laga um málefni fatlaðra og
framkvæmd þeirra. Kom fram í máli
hans að lögin væru ómetanlegt framlag
til hagsmuna fatlaðra, en hann benti
jafnframt á að samtök fatlaðra þyrftu
að halda vöku sinni svo fatlaðir yrðu
ekki úti í þeim miklu breytingum sem
fyrirsjáanlegar eru á þj óðfélagsháttum
á komandi tímum.
Annað aðalmál þingsins voru hús-
næðismál og um þau fjallaði Reynir
Ingibjartsson framkvæmdastjóri
Búseta.
Árið 1986 mótaði Sjálfsbjörg
heildarstefnu í húsnæðismálum sem
unnið hefur verið eftir í samvinnu við
ýmis önnur almannasamtök, en hópur
Lilja Þorgeirsdóttir.
þessi hefur starfað undir heitinu „Þak
yfir höfuðið“. Félagsmálaráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir skipaði
endurskoðunamefnd til að endurskoða
félagslega íbúðakerfið og í framhaldi
af þeirri vinnu lagði Jóhanna fram
frumvarp til laga um félagslega hús-
næðiskerfið og var það samþykkt í
þinglok, þ.e. í maí 1990.
Með nýrri löggjöf um félagslega
íbúðakerfið sl. vorvarlagðurgrunnur
að endurbótum á fyrirkomulagi fé-
lagslega íbúðakerfisins og ráðstöfun-
um til að aukaframboð leiguhúsnæðis.
Kristín Jónsdóttir.
Helstu atriði laganna eru þessi:
— Jafnræði milli eigna og leigu.
Jafnræði — öryggi — val.
— Aukin áhersla lögð á sveitarfélög
og félagasamtök að sinna hús-
næðismálum til að tryggja öllum
húsnæði.
— Lánshlutfall hækkað í 90% úr
70—85% og lánstími lengdur, ef
um leigu- eða félagslegar íbúðir
er að ræða, þ.e. í allt að 50 ár.
— Tekið sérstaklega tillit til
viðbótarkostnaðar v/sambýla og
íbúða fyrir öryrkja og aldraða.
Frá setningu þingsins.
28