Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 30

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 30
lofti. Kemur þar einkum tvennt til: „Annars vegar er vinnumarkaður- inn að breytast í grundvallaratriðum. Stjómvöld og atvinnurekendureru far- in að gera sér grein fyrir því, að hag- kerfi landsins þolir ekki lengur stjóm- lausa uppbyggingu og atvinnurekstur þar sem ómarkviss sjónarmið ráða ferðinni... Hinn þátturinn, sem er þessu nátengdur, eru bein og óbein tengsl við endurskipan efnahagsmála í Evrópu. Fatlað fólk og ýmsir aðrir minni- hlutahópar eru nú þegar að verða undir á vinnumarkaði. Þegar fyrirtæki endurskipuleggja starfsemi sína eða jafnvel sameinast, þá hefur það í för með sér fækkun á starfsfólki. Þessi þróun er þegar hafin. Þau eru byrjuð að undirbúa samkeppnina á Evrópu- markaðnum. Þarna verður engin miskunn á ferðinni. Fyrirtækin eiga ekkert val. Þau verða að auka fram- leiðni sína til jafns við keppinautana og bæta reksturinn á öllum sviðum. Þetta mun í sívaxandi mæli koma niður á þeim, sem búa við skerta starfsorku, það verður sá hópur sem fyrst missir atvinnuna. Því er lífsnauðsyn að byrja nú þegar að velta fyrir sér hugsanlegum viðbrögðum“. Auk þessara umræðna og ályktana tóku hefðbundin þingstörf drjúgan tíma. I lokin voru kosningar og var Jóhann Pétur Sveinsson áfram kjörinn formaður til næstu 2ja ára. Aðrir í stjórn eru: Friðrik A. Magnússon, Njarðvík, Pálína Snorradóttir, Hveragerði, Valdimar Pétursson, Akureyri og Guðríður Olafsdóttir, Kópavogi. Kristín Jónsdóttir og Lilja Þorgeirsdóttir. Þeim stöllum þökkum við kærlega. Aðalfundur og atvinnumálaráðstefna AðalfundurÖryrkjabandalags- ins verður haldinn fimmtudaginn 1 l.októbern.k. íBorgartúnió.Fund þennan sitja að venju þrír fulltrúar frá hverju aðildarfélagi bandalags- ins. A fundinum fara fram venjuleg aðalfundarstörf, að þessi sinni eru ekki kosningar þar sem lögum sam- kvæmt var kosið til tveggja ára á síðastafundi. Atvinnumál fatlaðra hafa verið mikið í brennidepli í seinni tíð og þess vegna ákvað stjórn Öryrkja- bandalagsins aðhaldaráðstefnu um atvinnumál fatlaðra og verður hún haldin í framhaldi af aðalfundinum föstudaginn 12. okt. n.k., einnig í Borgartúni 6. Til þeirrar ráðstefnu verður boðið öllu áhugafólki um þau mál. Þarmunm.a. MargrétMargeirs- dóttir flytja erindi og segja frá niður- stöðum starfshóps er kannaði atvinnumál fatlaðra en sá starfshópur var skipaður af félagsmálaráðherra og hefur skilað niðurstöðum sínum til ráðherra. Tryggingayfirlæknir mun ræða um atvinnumál fatlaðra og trygg- ingakerfið. Þá munu tala tveir fatlaðir ein- staklingar um reynslu sína af vinnumarkaðinum — annars vegar af vernduðum vinnustað og hins vegar af hinum almenna vinnumark- aði. Einnig munu tala aðilar frá rík- isstofnunum og atvinnurekendum öðrum en frá ríkisins hálfu um atvinnumál fatlaðra út frá sínum sjónarhóli. Þá hafa verið fengnir fyrirlesarar frá launþegasamtökunum, en svo sem kunnugt er höfðu samtök fatl- aðra töluvert samband við þá aðila í tengslum við kjarasamninga. Soffía Lárusdóttir mun tala um atvinnumál fatlaðra á landsbyggð- inni og Elísabet Guttormsdóttir um atvinnuleit og atvinnumiðlun — Guðrún Hannesdóttir mun ræða um endurhæfingu til atvinnu út frá sjónarhóli Starfsþjálfunar fatlaðra. Þá mun einnig verða haldið erindi um viðbrögð við breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu með tilliti til framtíðar- stöðu fatlaðra á vinnumarkaðinum. Erþað von stjórnarÖryrkjabanda- lagsins að sem flestir áhugamenn um þessi mál komi á ráðstefnuna og taki þátt í umræðum og beri fram fyrir- spurnir. Asgerður Ingimarsdóttir. 30

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.