Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Síða 32
MATUR ER MANNSINS MEGIN
Fyrir skömmu fékk ég sendar
matreiðslubækur frá bandarísku fyr-
irtæki sem m.a. framleiðirtómatvörur
undir heitinu Hunt's. I þessum bókum
voru ógrynnin öll af svo girnilegum,
hentugum og góðum uppskriftum, að
— án þess að ég sé neitt að auglýsa
þetta fyrirtæki — sá ég mig tilneydda
að stela nokkrum uppskriftum frá þeim
og snúa yfir á íslensku! Ég prófaði
uppskriftirnar sjálf og get lofað því að
þær bragðast allar mjög vel. Þessar
Hunts's tómatvörur fást í flestum
stórmörkuðum, og eru ekki dýrar.
Sunnudagskjöthleifur
f. 6
600—700 gr. nautahakk
21/2 dl Rits kex-mylsna
1 lítill smátt saxaður laukur
1 lítil, smátt söxuð græn paprika
1 egg
1 dós Ilunt's tómatsósa
1/4 tsk pipar
1 tsk. oraganó
1/2 tsk. basil
1 tsk. sítrónupipar
1/2 dl vatn
1 msk. púðursykur
Blandið samannautahakkinu, Rits
kex-mylsnunni, lauknum, paprikunni,
egginu, helmingnum af tómatsósunni
og öllu kryddinu saman í skál. Mótið
deigið í hleif og setjið hann í langt,
eldfast mót. Bakið hleifinn í 175° C
heitum ofni í 45 mín. Hellið fitunni úr
mótinu. Bætið vatninu og
púðursykrinum saman við afganginn
af tómatsósunni og hellið blöndunni
yfir kjöthleifinn. Bakið í 10 mín. í
viðbót. Ausið sósunni í mótinu yfir
kjöthleifinn fyrir framreiðslu. Berið
kjöthleifinn fram með kartöflumús
lagaðri með smjöri, eða með soðnum
hrísgrjónum.
Túnfiskur í fati með
grænmeti og osti
f. 6
1 dós túnfiskur í olíu
1 meðalstór laukur, smátt saxaður
2 sellerístönglar, smátt saxaðir
1 lítil, græn paprika, smátt söxuð
6 sneiðar nýtt franskbrauð
Umsjón:
/
Iris Erlingsdóttir
3 msk majones
4 egg léttþeytt með gaffli
21/2 dl mjólk
1 dós Hunt's tómatsósa
1/4 tsk. kryddsalt (t.d. season all)
100 g rifinn Maribo ostur
Hellið olíunni af túnfiskinum á
litla eða meðalstóra pönnu. Setjið
laukinn, selleríið og paprikuna á
pönnuna og látið grænmetið krauma
yfir meðalhita þar til það er mjúkt.
Bætið túnfiskinum á pönnuna og
blandið vel saman. Takið pönnuna af
hitanum.
Smyrjið franskbrauðsneiðarnar
með majonesinu; skerið sneiðarnar í
litlateninga. Smyrjið stórteldfastmót
með smjöri. Setjið helminginn af
brauðbitunum í mótið, síðan helm-
inginn af túnfisk-grænmetis blöndunni
yfir brauðið, svo helminginn af ost-
inum yfirtúnfiskblönduna. Endurtak-
ið, setjið brauðið yfir túnfiskblönduna
og ostinn þar ofan á.
Blandið eggjunum og mjólkinni
saman, þeytið lítillega með gaffli.
Hrærið Hunt 's tómatsósunni smátt og
smátt saman við ásamt kryddsaltinu.
Hellið tómatsósublöndunni yfir
réttinn. Bakið í 175° heitum ofni í
45—60 mín. þar til rétturinn er fallega
brúnaður.
Bakaðir kartöflubátar
með osti og tómatsósu
f 4—6
2 msk. matarolía
1 lítil græn paprika, smátt söxuð
1 lítill laukur, smátt saxaður
2 sellerístilkar, smátt saxaðir
1 chilipipar, smátt saxaður, eða 1/8
tsk chiliduft
1/2 tsk salt
1 dós Hunt's tómatsósa með lauk
4 bökunarkartöflur, bakaðar og
skornar til helminga
200 g Maribo ostur, rifinn
Hitið olíuna á pönnu yfir meðalhita,
látið paprikuna, laukinn, selleríið og
chilipiparinn krauma þar til þetta er
mjúkt. Bætið tómatsósunni ápönnuna
ásamt saltinu og chiliduftinu ef það er
notað í staðinn fyrir chilipipar.
T akið innan úr kartöflunum með skeið,
gætið þess að rífa ekki hýðið. Blandið
kartöflukjötinu saman við tómatgræn-
metisblönduna. Fyllið kartöfluhýðin
með blöndunni og stráið rifnum osti
32