Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 18
ert nema fólkið sem myndar þau.
Félögin ættu að leggja meiri rækt
við félagslega þáttinn, virkja betur
félagsandann innan félaganna svo
að félagsmenn samsami sig meira
félögunum og gildum þeirra, og
vilji tilheyra þeim alla ævi. Að eldri
félagar, sem hafa kannski unnið
gríðarmikið starf fyrir félögin í
gegnum árin, séu heiðraðir og finn-
ist þeir ávallt velkomnir í kaffi.“
Félög eiga að tengjast hverfu
Hann segir að félögin eigi að vera
sameiningartákn bæjarfélaga, eða
hverfa innan þeirra. Fjölmörg félög
beri heiti síns bæjarfélags í nafni
sínu, eins og Fimleikafélag Hafnar-
fjarðar (FH) og Knattspyrnufélag
Reykjavíkur (KR). „Félögin ættu að
tengja sig miklu betur við sitt nær-
umhverfi, bæjarfélögin og hverfin.
Þau ættu að skipuleggja og setja upp
annars konar viðburði heldur en
íþróttaviðburði fyrir fólkið í bæjar-
félögunum og hverfunum, aðstoða
við mikilvæg mál í sínum sveitar-
félögum og hverfum og leggja
meira af mörkum til samfélagsins.
Það er lítið gagn í
máttlausum og
meðvirkum stjórnarmönn-
um. Formenn félaga og
deilda verða að hafa getu til
að sameina félagsmenn,
útdeila verkefnum og virkja
sjálfboðaliða.
Hallsteinn
Arnarson
Hallsteinn Arnarson lýk u r meist ara-námi (Executive MBA) í „ spor t s management“ við Real Madrid Gra-
duate School í júlí. Námið er sam-
starfsverkefni Real Madrid og Evr-
ópuháskólans í Madrid. Félagið er
fyrirmynd margra annarra þekktra
íþróttafélaga, til dæmis varðandi
stjórnun og rekstur, bestu vinnu-
brögð og góða stjórnarhætti.
„Í náminu hef ég lært um flest sem
snýr beint að íþróttum og íþrótta-
tengdri starfsemi, eins og stjórnun
og fjármálum/rekstri íþróttafélaga,
íþróttasambanda og íþróttamann-
virkja, stefnumótun og stjórnar-
háttum félaga og sambanda,
skipulagningu íþróttaviðburða,
markaðssetningu, lög og siðferði,
frumkvöðlafræði, tækninýjungar
og samskiptamál.
Við lærum allt það sama og
kennt er í hefðbundnu MBA-námi,
en að auki lærum við um sérstöðu
íþrótta. Það eru mörg atriði sem
aðgreina íþróttir og íþróttastarf-
semi frá öðrum vörum og þjónustu
og frá annarri starfsemi, til dæmis
stjórnun og rekstri venjulegra fyrir-
tækja. Kennararnir leggja til að
mynda mikla áherslu á mikilvægi
faglegrar þekkingar við stjórnun
íþróttafélaga og -sambanda og að
forystufólk sem starfar við íþróttir
skilji vel eðli þeirra.“
Hallsteinn segir að rekstur
íþrótta- og ungmennafélaga, sér-
staklega deilda stærri boltagreina
innan félaga, hafi alltaf verið og
muni líklega alltaf verða erfiður
– nema starfsumhverfið breytist
verulega. Félögin og deildirnar séu
mjög háð stuðningi velviljaðra fyr-
irtækja og ríkis og sveitarfélaga og
reksturinn sé því afar viðkvæmur.
Íþrótta- og ungmennafélögin megi
illa við stórum skelli á borð við
COVID-19. Ljóst sé að mörg félög
og deildir hafi spennt bogann of
hátt síðustu ár og staða þeirra verið
strembin fyrir útbreiðslu farald-
ursins.
Sömu grunnlögmál
Sömu grunnlögmál gilda, sam-
kvæmt Hallsteini, hvort sem um
er að ræða Real Madrid, Dallas
Cowboys, FH, Leikni, KR eða önnur
íþróttafélög eða íþróttasambönd
líkt og ÍSÍ og NBA, nú eða íþrótta-
greinar á borð við golf, hafna-
bolta og handbolta – jafnvel þó að
umsvifin séu mun meiri erlendis og
fjármálahliðin allt önnur.
„Það er unnið blómlegt starf í
félögunum og fólkið sem stýrir
þeim og deildunum innan þeirra á
Íslandi stendur sig að mörgu leyti
ágætlega við krefjandi aðstæður og
í sjálf boðaliðastarfi. En ég tel engu
að síður að stjórnir og aðrir stjórn-
endur margra félaga og deilda,
ættu að nýta tækifærið núna til að
endurskoða sín mál rækilega, sér-
staklega rekstrarlíkönin að baki
afreksstarfinu. Í krísuástandi er oft
ágætt að staldra aðeins við og fara
yfir stöðuna.
Félögin byggja á góðum grunni og
ég skora á stjórnendur að skoða vel
hvort þeir og félögin séu að starfa í
samræmi við gildi, hlutverk, mark-
mið og stefnu félaganna. Vita stjórn-
endur hvað félögin vilja standa fyrir
og hvernig þau vilja vera í framtíð-
inni? Er verið að vinna eftir skýrri
og markvissri stefnu við að ná fyrir
Stjórnendur þurfa að vera sýnilegri
Sömu grunnlögmál gilda um Real Madrid, FH eða Leikni og íþróttasambönd líkt og ÍSÍ og NBA þó að umsvifin séu meiri og fjár-
málahliðin allt önnur. Þetta segir Hallsteinn Arnarson sem lýkur námi í „sports management“ við Real Madrid Graduate School.
Real Madrid er eitt stærsta félag heims. Félagið er í samstarfi við Evrópuháskólann þar sem Hallsteinn er í meistaranámi. MYND/GETTY
Hallsteinn
þekkir vel til
í Hafnarfirði.
Hann segir
að félögin
eigi að vinna
meira saman
utan vallar.
Félögin ættu
að leggja meiri
rækt við félags-
lega þáttinn
og virkja betur
félagsandann
innan félaganna
segir Hallsteinn.
fram skilgreindum markmiðum
hennar?
Mörg félög eiga sér glæsta sögu
sem ber að vernda og varðveita á
sama tíma og þau verða að aðlagast
breytingum í umhverfinu.“
Hallsteinn leggur til að félögin
vandi sig þegar þau velja fólk í sínar
stjórnir og mikilvægast er að valdir
séu einstaklingar sem hafi eitthvað
fram að færa og séu tilbúnir að
vinna fórnfúst og frekar vanþakk-
látt starf í þágu félagsins.
„Það er lítið gagn í máttlausum
og meðvirkum stjórnarmönnum.
Formenn félaga og deilda verða að
hafa getu til að sameina félagsmenn,
útdeila verkefnum og virkja sjálf-
boðaliða, sérstaklega á tímum sem
þessum. Sterkir leiðtogar eiga ekki
að þurfa að hafa já-fólk í kringum
sig.“
Aðgengilegri stjórnendur
Hann segir að sín skoðun sé sú að
stjórnendur félaganna ættu að vera
miklu aðgengilegri og sýnilegri og
vera meira með puttann á púlsinum
varðandi upplifun og væntingar
iðkenda, foreldra og forráðamanna
og stuðningsmanna um félagið og
starfið.
„Stjórnendur gætu til að mynda
fundað oftar með aðstandendum
iðkenda um starfið og kannað
ánægju þeirra og hvað megi bæta.
Einnig gætu þeir haldið f leiri
fræðslu- og kynningarfundi fyrir
aðstandendur þar sem til dæmis
þjálfarar fara vel yfir þætti þjálfun-
arinnar og hvetja aðstandendur til
að styðja á réttan og uppbyggilegan
hátt við bakið á börnum sínum –
og sýna jákvæða hegðun á hliðar-
línunni.“ Þá bendir hann á að orðið
íþróttafélag sé samsett úr tveimur
orðum. Seinna orðið vísar til félags-
skapar. „Þó svo fjármál og mann-
virki séu vissulega mikilvæg hverju
íþróttafélagi, mega menn og konur
ekki gleyma því að félögin eru ekk-
Einnig ættu félögin að kynna sér
betur starf erlendra íþróttafélaga
og tækninýjungar í tengslum við
íþróttir og íþróttastarf.“
Stóru aðstoði þau smærri
Hann vill einnig sjá félögin deila
reynslu og þekkingu sín á milli.
Stærri félög ættu að aðstoða þau
sem smærri eru.
„Að lokum hvet ég félög og
deildir þeirra til að starfa miklu
meira beint með öðrum félögum
og deildum. Mér finnst til dæmis
að FH og Haukar í Hafnarfirði ættu
að vinna meira saman. Bæði félög
eiga sér langa sögu og tengingar eru
milli þeirra.
Félög eiga að keppa sín á milli
með heiðarlegum hætti inni á
vellinum, en utan vallar ættu þau
að deila reynslu og þekkingu sín
á milli, og styðja hvert við annað í
meira mæli en áður. Íþrótta- og ung-
mennafélögin ættu að tileinka sér,
og starfa meira eftir ábyrgum og
vönduðum stjórnarháttum, á borð
við gagnsæi, upplýsingagjöf og sam-
félagslega ábyrgð, til að byggja upp
betri ímynd og meira traust og trú-
verðugleika.
Hluti af slíkri samvinnu og vinnu-
brögðum gæti verið að gera fjármál
félaganna enn skýrari og sýni-
legri, aðgreina rekstur mannvirkja
og svo framvegis. Mögulega ættu
félögin að taka upp erlenda mæli-
kvarða eða setja sér eigin viðmið í
tengslum við lykiltölur úr rekstr-
inum, sem þau öll myndu reyna að
virða eftir fremsta megni. Það veitti
þeim ákveðið aðhald og með því
sýndu þau ábyrga fjármálastjórn,
gott fordæmi og væru öðrum til
eftirbreytni. Að mínu mati myndi
það líka auka tiltrú styrktaraðila og
sveitarfélaga og eyða vangaveltum
um fjárhagsstöðu félaganna, auk
þess að efla bæði félögin og íþrótta-
líf almennt í landinu.“
benediktboas@frettabladid.is
1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT