Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 88
Listaverkið Hún Victoría Mirella Stefánsdóttir, 10 ára, teiknaði þessa mynd af auga með demanta-augnskugga.
Hann Haraldur Marinó Kjartans
son verður ellefu ára 11. september
en er núna í 5. bekk í Öldutúns
skóla í Hafnarfirði. Hann segist oft
vera í fótbolta í frímínútunum með
vinum sínum og líka stundum eftir
skólann.
Eruð þið góðir í boltanum? Já, en
ég æfi samt annað.
Hvað er það? Það er sund, ég er
búinn að æfa það í sex ár.
Í hvaða sundi ertu bestur? Ég er
eiginlega mjög góður í skriðsundi.
Hvar æfir þú? Í Ásvallalaug.
Geturðu hjólað þangað? Ég er alltaf
að biðja um að fá að fara á hjóli en
má það ekki og tek eiginlega alltaf
strætó.
Hvað æfir þú oft í viku? Fjórum
sinnum. Tvo klukkutíma í hvert
skipti.
Ertu ekki þreyttur á eftir? Jú, sér
staklega á mánudögum af því þá
fer ég líka í skólasund. Svo fer ég oft
dálítið seint að sofa á sunnudögum,
þó pabbi og mamma séu alltaf að
segja mér að fara að sofa. Mér finnst
bara svo gott að vaka á kvöldin.
Eru einhverjir vinir þínir með
þér í sundinu þannig að þið séuð
samferða? Nei, ég er sá eini í mínum
árgangi sem æfir sund. En ég á
vini í sundinu og líka skólavini og
nágrannavini. En mér finnst líka
voða gott að vera bara heima í Play
station eða á Youtube. Líka að fara
út með Loka, hundinn okkar, og
hjálpa til ef ég þarf.
Það er gott hjá þér. Hvað ætlarðu
að gera skemmtilegt í sumar? Ég
ætla að fara í sumarbúðir í Vatna
skógi. Ég held ég sé líka að fara
norður í Ásbyrgi og sofa í tjaldi þar.
Þá stoppa ég örugglega svona tvo
daga á Akureyri. Afi minn á heima
þar og einn besti vinur minn úr leik
skólanum.
Hefurðu lent i einhverju ævin-
týralegu nýlega? Ég fór í Harry
Pottersafnið í London, rétt fyrir
COVID19. Það var rosagaman.
Safnið er tveir kílómetrar. Það er
heill Harry Potterheimur og veit
ingastaðir og allt svoleiðis. Ég var
þar í fimm klukkutíma.
Varstu búinn að lesa bækurnar?
Nei, en ég er búinn að sjá allar
myndirnar.
En að lokum. Hvað langar þig að
verða þegar þú verður stór? Sund
maður og fara á Ólympíuleikana.
Stefni á
Ólympíuleikana
SAFNIÐ ER TVEIR
KÍLÓMETRAR. ÞAÐ ER
HEILL HARRY POTTER-HEIMUR
OG VEITINGASTAÐIR OG ALLT
SVOLEIÐIS. ÉG VAR ÞAR Í FIMM
KLUKKUTÍMA.
Haraldur Marinó kveðst stundum fara svolítið seint að sofa. „Mér finnst
bara svo gott að vaka á kvöldin,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Of sein, of sein,“ sagði
Kata pirruð og hermdi e ir
áhyggjurödd Konráðs. „Ég
er búin að heyra þetta væl
alveg nógu o og nenni
ekki að heyra það einu
sinni í viðbót,“ bætti hún
við. „En okkur liggur á,“
sagði Konráð biðjandi
og bar sig aumlega. „Það
gerir ekkert til að vera of
sein,“ sagði Kata. „En það
er gaman að reyna að
komast í gegnum
völundarhús,“ bætti
hún við og bretti upp
ermarnar. „Koma svo,
inn með ykkur og
reynið nú að týnast
ekki. Ég nn réttu
leiðina, sannið
þið til,“ sagði
Kata roggin
um leið og hún
arkaði inn í dimm
göng völundarhúsins.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
404 Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið??
?
?
?
1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR