Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 100
Lífið í
vikunni
10.05.20-
16.05.20
ÞETTA ER MIKIÐ
BYGGT Á SÖGUM SEM
ÉG HEF HEYRT Í KRINGUM
ÍSLENSKA TÓNLISTARBRANS-
ANN, Á FÓLKI SEM HEFUR VERIÐ
AÐ KOMA SÉR Á FRAMFÆRI.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
HOUSTON
hornsófi
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMELLTU Á VÖRU OG
ÞÚ FERÐ BEINT INN Í
VEFVERSLUN
DORMA.IS
SUMAR
tilboðin
Sumarið er
komið í DORMA
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
Zone og Affari og smávara
2-11 | RÚM 12–23 | Mjúkv
ara og dúnn 24–27 | Stólar
28–29 | Sófar 30–37 | Sve
fnsófar 38–39
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Sumarið er komið í DORMA
Verslaðu á dorma.is
Fallegur hornsófi í Houston línunni. Sófinn fæst hægri eða vinstri
(horn ófæranlegt) í tveimur litum. Armar eru meðalgrannir og
sófinn frekar í nettara lagi. Houston passar í flest rými bæði hvað
varðar stærð og stíl — sem er látlaus og glæsilegur. Seta og bak
sófanna eru lausar pullur sem sitja þó vel og renna ekki. Innra byrði
er úr endingargóðum, kaldpressuðum svampi, þá trefjafyllingu og
loks mjúku yfirlagi. Fætur sófanna eru frekar grannir en sterkir úr
svörtum viði. Houston hornsófi er nettur en samt er svo þægilegur.
*Bonded leður (leðurblanda) er blanda af ekta leðri og gervileðri.
Um þriðjungur áklæðisins í Houston er ekta leður sem er mun
hærra hlutfall en algengt er. Stærð: 270 x 210 x 85 cm
Fullt verð: 229.990 kr.
20%
AFSLÁTTUR
SUMAR
TILBOÐ
Aðeins 183.920 kr.
Tveir litir, brúnn og
koníaksbrúnn, hægri eða
vinstri tunga
JÓLAPLATA FRÁ LALLA
Lalli töframaður vinnur að gerð
jólaplötu, en á henni verða margir
góðir gestir. Hann er mikið jólabarn
og er með heil þrjú jólatengd húð-
flúr til að sanna það.
LISTMÁLAÐAR GRASÆTUR
Magnús Jónsson hefur verið iðinn
við strigann, en sprengir nú mál-
verkið út í stafrænar víddir með
Dýrunum á sléttunni. Þáttum um
grasbíta í stöðugum ótta um að
enda í kjaftinum á kjötætunum.
STUTTMYND AÐ VESTAN
Stuttmyndin Rán er hugarfóstur
kvikmyndagerðar- og sjómanns-
ins Fjölnis Baldurssonar. Hann er
Ísfirðingur í húð og hár og var töku-
og leikaraliðið að mestu mannað
fólki að vestan.
NÝIR ÞÆTTIR Á STÖÐ 2
Leikkonan Katla Margrét tekur þátt
í spennandi tilraunastarfsemi á
mörkum íslensks veruleika í grín-
sápuóperunni Sápunni, þar sem
sjálfsagt er að dómsmálaráðherra
mæti og ræði hvítvínsdrykkju.
Við kláruðum heppilega að taka upp viku fyrir samkomubannið. Við vorum að redda okkur með greiðum alls staðar,
margir þurftu að redda vöktum
og svona, en á móti kemur að við
erum mjög ánægð með útkomuna,“
segir Ásgeir Sigurðsson, tvítugur
leikstjóri og handritshöfundur,
sem stendur að baki þáttaröðinni
Bömmer sem hefur göngu sína á
RÚV núll 22. maí næstkomandi.
Saman í Borgó
Meðframleiðendur hans eru þeir
Elvar Birgir Elvarsson, Ingimundur
Viktor Helgason og Stefán Kári
Ægisson. Flestir sem koma að verk
efninu eru nýútskrifaðir af kvik
myndabraut Borgarholtsskóla.
„Við vorum kvikmyndagarpar.
Vorum mikið að gera stuttmyndir
og sketsa. Þá kom hugmyndin að
því að gera þáttaröð fyrir vefinn,“
segir Ásgeir. Handritið skrifaði
hann sumarið 2017 en dró það svo
fram í fyrra þegar hópurinn tók þátt
í hugmyndasamkeppni RÚV núll.
Þættirnir eru fimm talsins og er
hver þeirra um 10 til 15 mínútur að
lengd. Þeir fjalla um tvo stráka sem
vilja verða vinsælir tónlistarmenn.
„Þetta er mikið byggt á sögum sem
ég hef heyrt í kringum íslenska tón
listarbransann, á fólki sem hefur
verið að koma sér á framfæri. Svo er
þetta auðvitað líka mikið til skáld
skapur.“
Efni fyrir ungmenni
Nokkuð er um drama sem fylgir því
að vera ungur, átök sem koma upp
á milli vina og samskipti kynjanna.
„Okkur fannst bara vanta allt of
mikið efni fyrir ungt fólk, sérstak
lega núna þegar margir eru að glíma
við þunglyndi og kvíða vegna fram
tíðarinnar.“
Þættirnir eru gerðir fyrir mjög
lítið. „Við framleiddum þá alveg
sjálfir, þeir verða svo sýndir á vefn
um hjá RÚV núll. Þetta tók allt í allt
um þrjá mánuði, ótrúlega mikil
vinna sem fór í þetta, allt gert með
ástríðu,“ segir Ásgeir. „Þar sem kvik
myndagerð er okkar aðaláhugamál
þá höfum við verið í gegnum árin
að fjárfesta í alls konar græjum og
myndavélum sem við notum.“
Eitthvað kemur upp á
Leikararnir eru mikið til vinir og
kunningjar hópsins. Sjálfur leikur
Ásgeir annað aðalhlutverkið. Meðal
leikara eru Lára Snædal og Baldur
Einarsson, en hann fór með aðal
hlutverkið í kvikmyndinni Hjarta
steini.
Tökustaðirnir eru mikið til heima
hjá þeim sem tóku þátt eða utan
dyra. „Strákarnir setja upp stúdíó
í bílnum sínum þar sem þeir ætla
að taka upp lög fyrir Spotify,“ segir
Ásgeir. „Baldur samdi texta fyrir
lögin og svo hafa nokkrir vinir
okkar reddað okkur töktum fyrir
lögin.“ Hann á ekki von á því að
lögin verið gefin út í kjölfar þátt
anna. „Það kemur eitthvað upp á,
þess vegna heitir þetta Bömmer.“
arib@frettabladid.is
Bömmer í Efstaleiti
Þáttaröðin Bömmer hefur göngu sína þann 22. maí á RÚV núll.
Fjórir ungir og efnilegir strákar standa að baki gerð þáttanna, en
þeir eiga flestir sameiginlegt að hafa stúderað kvikmyndagerð í
Borgarholtsskóla. Þeir segja þættina gerða af mikilli ástríðu.
Stefán Kári, Ásgeir, Ingimundur Viktor og Elvar Birgir standa saman að framleiðslu þáttanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð