Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 84
Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Hildar Björnsdóttur
Sérstakar þakkir sendum við
Heimahlynningunni á Akureyri og
Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.
Yngvi Hrafn Pétursson
Helena Guðlaug Bjarnadóttir
Inga Gerða Pétursdóttir
Jón Ágúst Guðmundsson
Jón Sigurbjörn Pétursson
og barnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
i ll i undirbúnings og
framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju
að leiðarljósi og f fa legum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Zophanía G. Briem
(Góa)
Hvassaleiti 56,
lést á hjúkrunarheimilinu Eirarholti
miðvikudaginn 13. maí.
Svanborg Briem Bragi Ólafsson
Lida Briem
Einar Jón Briem Anna Jóna Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Sigríður Magnúsdóttir
Laugarhvammi,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki, laugardaginn 9. maí.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju,
föstudaginn 29. maí, kl. 14. Jarðsett verður í
Reykjakirkjugarði. Streymt verður á facebook-síðu
kirkjunnar og útvarpað í nærumhverfi hennar á FM 107,2.
Erling Jóhannesson Hulda Garðarsdóttir
Helgi Friðriksson Sigríður Viggósdóttir
Sigurður Friðriksson Klara Jónsdóttir
Jónína Friðriksdóttir Stefán Sigurðsson
Sólveig Friðriksdóttir Kolbeinn Erlendsson
Friðrik Rúnar Friðriksson Jóhanna Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Elsku faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi, langafi, bróðir,
mágur og frændi,
Haukur Þorkelsson
frá Hellissandi, síðast til heimilis
að hjúkrunarheimilinu Sólvangi,
Hafnarfirði,
lést þann 5. maí síðastliðinn.
Bjarni Hauksson Anna Sobolewska
Haukur Hauksson Veronika Björklund
Kristján Hauksson Maria Babkin
Sigríður Kling
Baldur Bjarnason
Ragnar Bjarnason Jonathan Bjarnason
Kristján Þorkelsson Sigríður Markúsdóttir
Ásta Gestsdóttir, Auðbjörg Friðgeirsdóttir,
fjölskyldur, frændfólk og aðrir aðstandendur.
Tækið sem við erum að þróa er sérstakt tölvuforrit, sem byggir á gervigreind. Það les segulómmyndir af heila og skilar nýjum og næmum upplýsingum úr
þeim á sjálfvirkan hátt. Þær upplýsingar
geta mögulega f lýtt fyrir greiningu á
heilabilunarsjúkdómum og aðstoðað
við að finna þá sjúkdóma sem eru með-
höndlanlegir á byrjunarstigi, eins og
fullorðinsvatnshöfuð. Það er mjög van-
greindur sjúkdómur í dag, því það er svo
erfitt að greina hann.
Þetta segir Lotta María Ellingsen,
dósent við Rafmagns- og tölvuverk-
fræðideild Háskóla Íslands. Hún, ásamt
þeim Hans Emil Atlasyni, doktorsnema
í sömu deild, og Áskeli Löve, lektor við
Læknadeild og taugaröntgenlækni
á Landspítala, tók þátt í Vísinda- og
nýsköpunarkeppni Háskólans í vik-
unni í f lokknum Tækni og framfarir
og sigraði ekki bara þann flokk heldur
samkeppnina í heild. Verðlaunaféð var
samanlagt þrjár milljónir sem aðstand-
endur fengu. Lotta segir það muni nýtast
til að vinna að verkefninu áfram.
„Í okkar nýja tæki einblínum við á
ákveðin svæði í heilanum sem hafa
sýnt sig að vera tengd heilabilunarsjúk-
dómum. Bæði stækkuð heilahólf og
hvítavefsbreytingar geta verið einkenni
slíkra sjúkdóma,“ segir Lotta. Hún segir
rannsóknaraðferðir með tækinu mun
hraðvirkari en þær sem áður hafi þekkst
og þegar notendavænt viðmót hafi verið
þróað geri tækið læknum á spítölum
kleift að fá nýjar upplýsingar í rauntíma
úr segulómmyndum, sem þeir þegar
hafa. Það muni því spara tíma og hjálpa
læknum að taka upplýstari ákvarðanir
en mögulegt er nú.
„Lítið er vitað í dag hvernig heila-
hrörnunarsjúkdómar byrja. Aðferðin
sem við erum að þróa notar gervigreind
til að finna breytileika í heilanum sem
þessir sjúkdómar valda og getur þannig
hjálpað okkur að finna þá fyrr. Það gæti
líka hjálpað til við að finna meingerð
þeirra og leiða til þróunar í lækningum
á þeim,“ segir Lotta sem kveðst hafa
stundað þessa þróunarvinnu frá árinu
2015, er hún var rannsóknarprófessor
við Johns Hopkins háskólann í Balti-
more í Bandaríkjunum. „Ég er enn í
samstarfi með læknunum við spítalann
þar, ekki síst við að reyna að skilja betur
þessa meðhöndlanlegu heilabilun sem
kallast fullorðinsvatnshöfuð.
Eftir að Lotta f lutti til Íslands 2017
fékk hún Hans Emil doktorsnema til að
vinna með sér. „Hans hefur verið að þróa
aðferðir sem finna hvítavefsbreytingar
í heilanum og f leira, undir minni leið-
sögn,“ segir hún. „Svo er hann Áskell
Löve röntgenlæknir að hjálpa okkur að
nákvæmnisprófa aðferðina og benda
okkur á hvað væri gagnlegt fyrir starf-
andi röntgenlækna. Það er mikilvægt í
svona vinnu að hafa sérfræðiþekking-
una á öllum vígstöðvum.“
gun@frettabladid.is
Verðlaunahafi í nýsköpun
Lotta María Ellingsen fór fyrir teymi sem vann Vísinda- og nýsköpunarkeppni Háskóla
Íslands með því að tefla fram tóli sem mögulega getur auðveldað greiningu á heilabilun.
„Aðferðin sem við erum að þróa notar gervigreind til að finna breytileika í heilanum,“ segir Lotta María. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Merkisatburðir
1966 Verslunin Karnabær er opnuð í Reykjavík og fer að
hafa áhrif á tísku og klæðaburð ungs fólks á Íslandi.
1983 Vikublaðið Andrés önd kemur út á íslensku í fyrsta
sinn. Fram að því höfðu Íslendingar lesið það á dönsku.
2000 Landspítali verður til við samruna Landspítalans og
Borgarspítalans.
2002 Haraldur Örn Ólafsson nær á tind Everestfjalls og
hefur þá klifið hæstu tinda allra heimsálfanna og komist
á bæði skautin.
2009 Jóhanna Guðrún nær öðru sæti í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva með laginu Is it true.
Fleiri verðlaun voru veitt
Alls bárust 38 tillögur í samkeppni
til Vísinda- og nýsköpunarverð-
launa HÍ. Þrenn verðlaun voru veitt
auk aðalverðlaunanna: í flokkunum
Heilsa og heilbrigði og Samfélag og
einnig sérstök Hvatningarverðlaun.
Jóhanna Guðrún ásamt höfundum lagsins.
1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT