Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 20
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hefur síðan 1956 verið árviss og næstum jafn áreiðanlegur vorboði og lóan. Kannski bara aðeins falskari á
stundum.
En nú er bleikum söngfuglum
víða um lönd brugðið þar sem
Eurovison 2020 varð COVID-19 að
bráð. Eða því sem næst. Glimm-
erglansandi Júróvísjón-fólkið er
nefnilega hjúpað regnbogalitri áru
óbilandi bjartsýni og ódrepandi
lífsgleði sem stappar stundum
nærri fullkominni veruleikafirr-
ingu.
Þannig að víða er bullandi Júró-
visjón-stemmari í gangi og enn sem
fyrr klýfur þetta sígilda og safaríka
þrætuepli drjúgan hluta þjóðarinn-
ar í misstórar fylkingar þeirra sem
hata keppnina, elska að hata hana,
hata að elska hana og auðvitað þá
sem elska að elska hana.
Fagra gleði…
Lífsafstaða skattborgarans ræður
eiginlega öllu um hversu mikið
hann fær fyrir nefskattinn til Rík-
isútvarpsins þessa vikuna þar sem
sögulegt messufallið hefur berg-
málað sem aldrei fyrr í hásal Efsta-
leitis, þar sem áhorfendur eru ýmist
hrifnir eldi eða engjast sem í vítis-
loga.
„Rúmlega fimm tíma Eurovision-
dagskrá á fimmtudagskvöldi, þótt
það sé engin Eurovision. Þessari
þjóð er officially ekki viðbjargandi,“
skrifaði Ásgeir H. Ingólfsson, menn-
ingarrýnir, á Facebook á meðan
Íslandsdeild Evrópusöngsambands-
ins lét öllum illum látum í Sjón-
varpinu þar sem Daði Freyr hefði í
fullkomnum heimi verið að syngja
Think About Things í Rotterdam.
Flosi Jón Ófeigsson formaður
FÁSES, Félags áhugafólks um
Ekkert stöðvar
Júrósins þunga nið
COVID-19 náði ekki að kveða Eurovision alveg í kútinn því RÚV
hefur kynt vel undir bráðabirgða Júró-gleðinni sem nær seinna
hámarki vikunnar í kvöld, þótt engin keppni verði í Rotterdam.
Flosi Jón fer stoltur fyrir íslenska aðdáendaklúbbnum sem þarf ekki einu sinni að styðjast við margrómaða höfðatöluna til þess að teljast stór á evrópskan mælikvarða. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva, lítur Júrósilfrið eðlilega allt
öðrum augum og er hæstánægður
með tökin sem RÚV tók vandann.
„Spennan var á fimmtudagskvöld
sem var okkar kvöld vegna þess að
það snerist um hvaða landi við
gáfum 12 stig. Þannig að þarna var
tilfinningin sterkust fyrir Eurovisi-
on-aðdáandann og við erum voða
ánægð að RÚV skuli gefa okkur
þetta,“ segir Flosi og bætir við að
nær því að upplifa Gísla Martein
Baldursson lýsa úrslitunum í raun
og veru, verði ekki komist að þessu
sinni.
Tár falla
En þetta er samt ógeðslega fúlt, er
það ekki? Þetta er málamiðlun sem
þið gerið ykkur greinilega alveg
ánægð með en er þetta samt ekki
bara ógeðslega súrt?
„Jú, jú og svona án gríns þá veit ég
um aðdáendur sem eru bara búnir
að fella tár í vikunni, því þeir missa
af að hitta vini sína,“ segir Flosi og á
þá við fólk úr harðasta kjarnanum
sem væri undir eðlilegum kringum-
stæðum í hringiðu atburðanna í
Rotterdam.
„Þessi spenna og stemning sem er
á keppninni sjálfri, er í raun og veru
ekkert sem hægt er að lýsa í ein-
hverjum svona sjónvarpsþáttum, og
maður upplifir það sko ekkert í ein-
hverri beinni útsendingu hjá RÚV.“
Je ne sais quoi
„Ég er búinn að fara á hverju ári
síðan 2010 þegar ég fór að styðja
Heru Björk með Je ne sais quoi í
Osló. Þannig að ef allt væri eðlilegt
þá væri ég í Hollandi í búbblunni
svokölluðu og væri lítið sofinn. Það
er aldrei mikið sofið þessa vikuna
þegar maður er úti,“ segir Flosi og
hlær dátt. „Þessi búbbla er í raun og
veru bara orðið fjölskyldan manns
sko, númer tvö, sem maður hittir
þarna einu sinni á ári,“ segir hann
og gengst við trega fjarverunnar.
„Maður reynir bara ekki að hugsa
mikið um það, en ég veit alveg um
aðdáendur sem eru alveg dolfallnir,
en hafa kannski látið tilfinningarn-
ar aðeins taka yfir og fellt nokkur
tár.
Partísamband Evrópu
„Ég var nú bara rólegur með eigin-
manninum að horfa og njóta með
popp og kók, segir Flosi um fimmtu-
dagskvöldið, en býst við að „taka
kannski vel á því“ í kvöld þegar hann
fer í klassískt Júrópartí ásamt fleiri
félögum í FÁSES.
„Þar erum við að fara að hittast á
Zoom,“ heldur Flosi áfram, en vegna
fjöldatakmarkana samkomubanns
neyðist Júróvisjón-fólkið til að sam-
einast í gleðinni á samskiptafor-
ritinu.
„Allir sem eru með einhvers konar
partí, sama hvort það er eins manns
partí eða aðeins f leiri, geta hist
ÉG VEIT ALVEG UM AÐDÁ-
ENDUR SEM ERU ALVEG
DOLFALLNIR EN HAFA
KANNSKI LÁTIÐ TILFINN-
INGARNAR AÐEINS TAKA
YFIR OG FELLT NOKKUR
TÁR.
með okkur á Zoom og dansað með
Eurobandinu sem verður með ball í
Hörpu.“
Flosi segir FÁSES vitaskuld fyrst
og fremst aðdáendaklúbb fyrir
Íslendinga sem elska Eurovision, en
héðan liggi þó víða þræðir rósfingr-
aðrar sönggyðjunnar. „En Ísland
er bara svo vinsælt land hjá aðdá-
endum út um allan heim, þannig að
smá prósenta af meðlimum okkar er
erlendis. Maður hittir þetta lið yfir-
leitt á keppninni sjálfri og við ætlum
að reyna að tengja okkur saman á
Zoom fyrst þetta er nú svona.“
FÁSES var stofnað 2011 og hefur að
sögn Flosa vaxið og dafnað nokkuð
vel. „Við höfum verið meðal stærstu
klúbbanna í Evrópu og meira að
segja án þess að miða við höfðatölu.
Við erum bara frekar stór klúbbur,“
segir formaðurinn hlæjandi.
Eigi skal gráta Daða Frey
„Þetta er hluti af lífi manns og maður
byrjar í desember að horfa á for-
keppnirnar, svo eykst spennan og
svo kemur Söngvakeppnin og þá
verður allt vitlaust og hámarkinu er
náð hérna heima þegar við finnum
okkar atriði.
Þótt Flosa takist að halda aftur af
tárunum og einhverjir félaga hans
reyni að brosa í gegnum sín, harma
þau sigurinn sem Daði okkar Freyr
hefði getað unnið á því merkisári
2020.
„Þetta er náttúrlega enn þá grát-
legra þegar atriðið er eitthvað sem
maður bara dáist að og er stoltur
af, eins og í ár. Og já það er svolítið
þannig að þetta er enn grátlegra
þegar það var jafnvel möguleiki
á sigri,“ segir Flosi og finnur glufu
til þess að negla þessa tilfinningu,
stöngin inn.
„Ég held að f leiri geti kannski
tengst okkur og skilið okkur núna
vegna þess að Evrópukeppninni í
knattspyrnu verður líka frestað og
knattspyrnuáhugamenn hljóta að
finna þetta líka. Það verður ekkert
í sumar,“ segir Flosi og hlær.
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN