Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 99
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Range Rover Sport HSE PHEV
Verð frá: 14.990.000 kr.
Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun,
framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega
lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti.
Verið velkomin í reynsluakstur!
RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ
Í RANGE ROVER
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
1
0
7
5
R
a
n
g
e
R
o
v
e
r
S
p
o
rt
P
H
E
V
5
x
2
9
m
a
i
B
íll
á
m
yn
d
e
r
m
eð
D
yn
am
ic
ú
tli
ts
p
ak
ka
s
em
e
r
ek
ki
in
ni
fa
lin
n
í v
er
ð
i
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
Mé r e r m j ö g umhugað um ma nnrét t ind i og byrjaði að skrifa bókina 2 0 18 þ e g a r
fréttir fóru að berast af börnunum
í búrunum á landamærum Mexíkó
og Bandaríkjanna. Þótt sögu-
þráðurinn komi börnum í búrum
í rauninni ekkert við,“ segir Hrafn-
hildur Faulk, höfundur Example,
vægast sagt drungalegrar ádeilu á
Bandaríki Donalds Trump.
„Mér fannst þetta bara orðið
óhugnanlegt og andrúmsloftið í
Bandaríkjunum orðið svo dystóp-
ískt og þannig varð sagan bara ein-
hvern veginn til. Mér fannst hún
birtast mér svolítið eins og bíómynd
sem ég skrifaði niður. Eða þannig,“
segir Hrafnhildur sem er banda-
rísk í föðurætt og fædd í Norður-
Karólínu.
Tjáningarfrelsið afnumið
Example gerist í Bandaríkjunum í
allra nánustu framtíð þegar ónefnd-
ur forseti hefur náð endurkjöri og
íhaldsöf lin hafa náð svo sterkum
undirtökum að tjáningarfrelsið er
skyndilega afnumið.
Í kjölfarið er Henry Davis, rúm-
lega fertugur, hortugur blaðamaður,
handtekinn fyrir gagnrýni á stjórn-
völd og ákveðið að gera úr honum
víti til varnaðar með því að refsa
honum fyrir lögbrotið með opin-
berri húðstrýkingu sem er sjón-
varpað á öllum rásum.
„Þannig að þetta er náttúrlega
í rauninni dálítið mikil ádeila á
Trump og ríkisstjórn hans og er í
rauninni mín sýn á það sem gæti
gerst ef hann yrði endurkjörinn
og færi gjörsamlega yfir strikið,“
heldur Hrafnhildur áfram og segist
telja mál- og tjáningarfrelsið í raun-
verulegri hættu.
„Mér fannst líka þessi orðræða,
sem var einhvern veginn búið
að normalísera, svo óhugnanleg.
Hvernig Trump talar
við og um blaða-
menn og fréttamenn
og er alltaf að reyna
að koma því inn hjá
fólki að þetta séu
„fake news“ og þetta
sé slæmt fólk og
þetta séu ömurlegar
spurningar og allir
séu ógeðslega ömur-
legir.“
Alþjóðlegt erindi
Eftir að hafa þreifað
fyrir sér og kannað
ýmsa möguleika ákvað Hrafn-
hildur að gefa bókina út á Amazon
enda hafi hún verið ákveðin í að
koma henni út sama á hverju gengi.
Hrafnhildur hefur sínar ástæður
fyrir enskunni og höfundarnafninu
H.R. Faulk. „Mér fannst þetta ekk-
ert sérstaklega íslenskur veruleiki
þannig að bókin varð einhvern veg-
inn til á ensku. Ég hugsa einhvern
veginn jafnt á íslensku og ensku.
Markaðurinn er náttúrlega stærri
og vegna þess að ég var að gefa út
fyrir alþjóðlegan markað var ég
hrædd um að nafnið Hrafnhildur
kynni að fæla fólk frá. Auk þess
sem það er líka sorgleg staðreynd að
bækur eftir konur eru síður lesnar.
Mér fannst H.R. Faulk frekar hlut-
laust og geta verið hver eða hvað
sem er og hvaðan sem
er.“
Gróft ofbeldi
„Ég vildi líka koma því
að hvað það væri auð-
velt að fremja mann-
réttindabrot þegar lýð-
ræðið er ekki lengur til
staðar og hvað þetta er í
rauninni brothætt.
Ég veit að það er gróft
of beldi þarna á köflum
og að einhverjir munu
ekkert kæra sig um að
lesa þessa bók. Ég vara
fólk alveg við grófu of beldinu.
Kannski vegna þess að ég vil ég ekki
að fólk verði reitt út í mig.“
Þá segist Hrafnhildur ekki hafa
valið þolanda skoðanakúgunar-
innar og of beldisins út í bláinn.
„Persónan mín er hvítur, mennt-
aður, evrópskur karlmaður og fólk
hérna er svo vant því að slíkir ein-
staklingar séu öruggir.
Ef við setjum þá í svona aðstæður
þá einhvern veginn held ég að það
stuði fólk meira heldur en ef þetta
væri til dæmis suður-amerísk kona.
Þetta gengur alveg svolítið nærri
fólki en mér finnst þetta þurfa að
hreyfa við fólki og ef þetta gerir það
ekki þá þurfum við kannski eitt-
hvað að fara að athuga okkar gang.“
toti@frettabladid.
Mannréttindabrothætt hrollvekja
Hrafnhildi Faulk dreymir um að geta lifað af ritstörfum og er alltaf eitthvað að skrifa og ákvað í fyrra að gefa
sjálf út bókina Example á Amazon. Vægast sagt dökka og grimmilega ádeilu á Bandaríki Donalds Trump.
„Undanfarna mánuði hef ég unnið í lyfjabúrinu á Grund,“ segir Hrafnhildur
Faulk sem dreymir um að geta lifað á ritstörfum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 47L A U G A R D A G U R 1 6 . M A Í 2 0 2 0