Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 74
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Sigrúnu áskotnaðist forláta rauð kommóða þegar amma hennar flutti inn á hjúkrunar-
heimili. „Amma hafði átt kommóð-
una lengi og það var hún sem
málaði hana rauða. Við söndunar-
ferlið sá ég glitta í bæði hvítt og
grátt undir rauða lakkinu sem lýsir
svo vel tíðarandanum þegar amma
var húsmóðir. Þá nýtti fólk allt og ef
eitthvað úreltist var málningarum-
ferð skellt á, í stað þess að kaupa
nýtt. Amma gerði það sama við
stóla og önnur húsgögn. Setti bara
nýtt áklæði og þá var komið nýtt
húsgagn,“ segir Sigrún, sem hefur
verið sjálfstætt starfandi grafískur
hönnuður og leiðsögumaður, frá
janúar 2019. Samhliða er hún að
klára þyrluflugnám. Eiginmaður
hennar, Birgir Már Sigurðsson,
er einnig grafískur hönnuður og
eigandi Þoran distillery, sem fram-
leiðir Marberg gin, á Suðurhellu 8,
Hafnarfirði.
Vildu ekki að forstofan
minnti á tómat og sinnep
Aðspurð hvort það hafi aldrei
komið til greina að halda rauða
litnum segir Sigrún að kommóðan
hafi þurft á hressingu að halda.
„Við gerðum kommóðuna upp
til að hafa í forstofunni, sem við
vorum nýbúin að mála karrígula.
Liturinn, sem nefnist Hemmi
Gunn, kemur frá Slippfélaginu.
Við höfðum áhyggj ur af því að það
myndi minna of mikið á tómat-
sósu og sinnep að halda rauða
litnum. Við tókum því mið af
litahringnum, enda bæði miklir
litaspekúlantar og völdum fallegan
grænbláan lit.“ Sigrún og Birgir eru
dugleg að smíða og endurgera hús-
gögn fyrir heimilið. „Biggi hefur
komið sér upp góðri aðstöðu og
tækjakosti til ýmissa smíðaverk-
efna í framleiðslunni í Hafnarfirði.
Þar er nóg pláss og gott að stússast í
svona vinnu.“
Sigrún sandaði niður öll lakk- og
málningarlög sem kommóðan
hafði fengið gegnum tíðina. „Ég tók
skúff urnar úr, juðaði allt yfirborð
með hjámiðjujuðara sem Biggi
hafði keypt í Byko. Við það mynd-
ast fínt ryk svo það var gott að geta
gert þetta úti í góða veðrinu. Ég
mæli með því að nota hlífðargler-
augu, andlitsgrímu og málningar-
galla. Rykið fer út um allt!
Þegar ég hafði náð mestu af
gömlu málningunni af og mattað
kommóðuna niður, grunnaði ég
með hvítum akrýlgrunni sem
lakkmálningin tollir vel við og
þornar vel á.“ Það auðveldar þrifin
að nota vatnsleysanlega akrýl-
málningu frekar en olíu. Næst var
kommóðan lökkuð með Eliza-
beth Taylor (Fröken Fix blanda) úr
Slippfélaginu. „Gljástigið fæst frá
möttu í háglans. Ég valdi að hafa
hana eins matta og mögulegt er.
Það er hlýlegt og tónar við restina
af heimilinu.“ Tvær umferðir með
rúllu gefa góða þekju og jafna áferð.
Það var tilviljun að litirnir á
veggnum og kommóðunni kallast
á við einkennisliti Marberg gins,
sem eru innblásnir af sjómennsku.
Tilviljun að
litapallettan
minnir á ginið
Grafíski hönnuðurinn og gönguleið
sögumaðurinn Sigrún Sæmundsen
sat ekki auðum höndum í sam komu
banni og tók forstofuna í gegn.
Gönguleiðsögumaðurinn og graf-
íski hönnuðurinn Sigrún Sæmund-
sen. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kommóðan
var rauðlökkuð
þegar Sigrún
fékk hana frá
ömmu sinni.
Sigrún sandaði niður kommóðuna
og grunnaði með akrýlgrunni.
Hér er búið að fara tvær umferðir
með Elizabeth Taylor bláum.
Góð ákvörðun var að spreyja fætur
gyllta. Það lyftir kommóðunni og
gefur henni skemmtilegan sjarma.
Kommóðan
kemur svona
líka frábærlga
út með karrý-
gula litinn í bak-
grunni. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Blái liturinn minnir á hafið og guli
kemur frá vitunum í Reykjavíkur-
höfn, landfest um og sjómanna-
göllum. „Þess má geta að Biggi
tekur á móti áhugasömum hópum,
allt að 15 manns, í skoðunarferð
um framleiðsluna, sem endar með
smakki á gininu góða. Það er nóg
pláss til að fara eftir reglum land-
læknis.“ Einnig fæst Marberg gin
í vínbúðum, fríhöfn og á völdum
börum í bænum. Á tímum sam-
komubanns og varkárni er tíminn
vel nýtt ur í vöruþróun og eru
spennandi nýjungar væntanlegar
frá Þoran distillery.
Að lokum voru fæturnir spreyj-
aðir með Montana gullspreyi
úr Slipp félaginu. „Mér fannst
skemmtilegt að láta glans inn í
málminum mæta möttu hús-
gagninu. Þá er kommóðan lág og
það lyftir henni frá gólfinu að hafa
fæturna tvílita.“
Það er mikilvægt að sækja sér
þekkingu og þiggja ráðleggingar ef
húsgagnið á að haldast fínt í lengri
tíma. Það gerir allt miklu einfald-
ara og minnkar líkur á mistökum.
„Ég kynnti mér málið á YouTube og
nýtti meðal annars kennslumynd-
bönd á heimasíðum málningar-
framleiðenda. Svo voru strákarnir
í Slipp félaginu hjálplegir að vanda.“
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jóhann Waage sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5656 / johannwa ge@frettabladid.is
Laugardaginn 23. maí gefur Fréttablaðið út sérblaðið
FERÐAST UM ÍSLAND
Í þessu skemmtilega blaði er fjallað um ferðalög innanlands í
sumar á þessum óvenjulegu tímum þar sem að landinn mun
efalaust ferðast talsvert um landið okkar fagra.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R