Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 35
Kennarar
Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða kennara
fyrir skólaárið 2020-2021.
Kennari í spænsku
Auglýst er eftir kennara í 100% starf í spænsku.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í spænsku eða
skyldum greinum.
Kennari í ensku
Auglýst er eftir kennara í 100% starf í ensku. Umsækjandi
þarf að hafa háskólapróf í ensku eða skyldum greinum.
Við bjóðum:
• Góða vinnuaðstöðu.
• Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen
starfsmanna – og þróunarstjóri.
Umsóknarfrestur er til 22. maí og skal senda umsóknir
ásamt ferilskrá á netfangið gunninga@verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 940 nemendur. Skólinn
er bekkjarskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta
og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt lögum um
framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til
starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningar-
laga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.
Kannaðu málið: starf.on.is
Við leitum að jákvæðum og náms-
fúsum iðnnemum af öllum kynjum
sem eru búnir með grunndeild í vél-
eða rafvirkjun.
Við bjóðum upp á metnaðarfullan
námssamning þar sem þú færð
góðan undirbúning fyrir sveinsprófið.
Spennandi
samningur
í boði
Í góðu sambandi
við framtíðina
Hvers vegna Veitur?
Nánari upplýsingar á starf.veitur.is
Framtíðin er snjöll
– mótaðu hana með okkur
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2020.
Leiðtogi snjallvæðingar
og stafrænnar þróunar
Við horfum til drífandi manneskju sem býr yr ríkum
umbótavilja, hugmyndaauðgi, auðmýkt og umhyggju.
Er með brennandi áhuga á nýsköpun, snjöllum lausnum
og leitast við að vera í fararbroddi í tækniframförum
og þjónustu við viðskiptavini.
Við leitum að stjórnanda í framkvæmdastjórn fyrirtækisins
til að móta framtíðina með okkur.
Hlutverk Veitna er að þróa og byggja upp veitukerfi sem eru grundvöllur lífsgæða og gæta þess að
notendur hafi stöðugt aðgengi að hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu. Veitusvæði okkar er að
mestu á höfuðborgarsvæðinu en einnig víða á Suður- og Vesturlandi. Lagnakerfið er stórt, en lagnir
og strengir eru alls 9.000 km að lengd, sem samsvarar vegalengdinni frá Reykjavík til Shanghai.
Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og starfsemi okkar er fjölbreytt og samfélagslega mikilvæg.
Veltan er um 33 milljarðar og fjárfestingar að jafnaði um 9 milljarðar árlega og við þjónustum ríflega
70% landsmanna á einn eða annan hátt. Við erum framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki og
höfum frumkvæði að verndun vatns og tryggjum auðlindir fyrir komandi kynslóðir. Starfsfólk okkar
fær tækifæri til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og við leggjum áherslu á jafnvægi vinnu
og einkalífs, sí- og endurmenntun og möguleika til að vaxa í starfi. Okkur er annt um umhverfið,
jafnrétti og að koma fram við hvert annað og viðskiptavini af virðingu.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára