Fréttablaðið - 30.05.2020, Síða 10

Fréttablaðið - 30.05.2020, Síða 10
Ég finn það hjá öllum kúnnum að þeir vilja komast í veiði. Ingólfur Ásgeirsson VEIÐI Þeir sem selja veiðileyfi í helstu laxveiðiár landsins finna fyrir mikilli óvissu vegna heimsfar- aldursins. Stór hluti viðskiptavina þeirra er erlendir veiðimenn sem koma árlega til landsins að veiða og af þeim eru margir komnir á efri ár og því í áhættuhópi fyrir COVID-19. Fréttablaðið náði tali af nokkrum helstu leigutökum laxveiðiánna, sem voru allir sammála um það eitt að mikil óvissa ríki um lax- veiðina í sumar og hvort búast megi við erlendum veiðimönnum til landsins. Um það munu nokkrir þættir ráða úrslitum, sem eiga það því miður allir sameiginlegt að vera úr höndum leigutakanna og jafnvel íslenskra stjórnvalda líka. Stærstur hluti erlendra veiði- manna sem kemur til landsins er breskur, en nýlega voru áform breskra stjórnvalda um að allir sem kæmu til landsins eftir 8. júní þyrftu að fara í sóttkví, kynnt. „Það hefur haft töluverð áhrif á þá sem ætluðu að koma. Sumir eru að hætta við út af þessu. En einhverjir hafa ákveðið að bíta í það súra epli að þurfa að sitja heima hjá sér í sóttkví þegar þeir koma til baka úr veiðinni,“ segir Gísli Ásgeirsson framkvæmdastjóri veiðifélagsins Strengs, sem selur leyfi í Selá og Hofsá. Hann segir allt að 70 prósent kúnnahóps Strengs samanstanda af erlendum veiðimönnum. Af þeim séu Bretar í miklum meirihluta. Stór hluti erlendra veiðimanna er í eldri kantinum og þar af leiðandi í áhættuhópi og tregari til að ferðast. Ingólfur Ásgeirsson, einn eiganda Stara, sem selja til dæmis leyfin í Þverá og Kjarrá, tekur í sama streng og Gísli. Hann segir stóran hluta kúnnahópsins erlendan og fylgist vel með málum í Bretlandi. „Það eru ekkert margir að koma í júní, hann er eiginlega alveg dottinn út, en við bindum vonir við að þetta fari að lagast í júlí og ágúst. Ég finn það hjá öllum okkar kúnnum að þeir vilja komast í veiði,“ segir hann bjart- sýnn á stöðuna. Pétur Pétursson, sem heldur utan um leyfi í Vatnsdalsá, telur að tæp 60 prósent sinna kúnna séu erlendir veiðimenn. Hann hefur áhyggjur af þróun faraldursins, sem lítið er vitað um. „Mest hættan er falin í því að fólk muni bara ekki heldur treysta sér til að ferðast á næsta ári. Við skulum orða þetta þannig að þetta sé léttur löðrungur þetta árið, en gæti orðið kjaftshögg á næsta ári.“ ottar@frettabladid.is Mikil óvissa með veiðileyfi Leigutakar helstu laxveiðiáa gera sér litla grein fyrir því hvort von sé á stórum hluta fastra viðskipta- vina í ár. Flestir erlendir veiðimenn eru breskir. Selá í Vopnafirði er ein fallegasta laxveiðiá landsins. MYND/EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON STANGVEIÐI Félagar í Stangaveiði- félagi Reykjavíkur geta nú fram til miðnættis á morgun nýtt sér gjafa- bréf sem stjórn félagsins gaf út fyrr í vor og renna áttu út fyrir fimm dögum. Gjafabréfin sem hljóða upp á tíu þúsund krónur má nýta við kaup á veiðileyfum. Þá er utanfélags- mönnum boðið að ganga í Stanga- veiðifélagið án þess að greiða sér- stak inntökugjald, sem ávallt hefur tíðkast. „Gjafabréfið er hægt að nýta til kaupa á veiðileyfum á öllum ársvæð- um félagsins í sumar, að frátöldum Elliðaánum, Alviðru og Flókadalsá. Þá hafa inntökugjöld fyrir nýja félagsmenn verið felld niður tíma- bundið og því geta nýir félagar bæst í hópinn án þess að greiða sérstak- lega fyrir inngönguna,“ segir í frétt á vef Stangaveiðifélagsins. „Við skorum á alla félagsmenn að hvetja vini og veiðifélaga til inn- göngu, enda er félagið þeim mun öflugra sem félagsmenn eru fleiri,“ segir í fréttinni, þar sem bent er á að félagar í SVFR greiði 20 prósentum lægra verð fyrir veiðileyfi, en utanfé- lagsmenn. Kveðst félagið ekki hafa farið varhluta af ríkjandi samfélagsað- stæðum. „Það er heldur ekkert laun- ungarmál að ástandið kemur illa við Stangaveiðifélag Reykjavíkur, en unnið er að því að koma félaginu klakklaust í gegnum storminn.“ – gar Framlengja gildistíma gjafabréfs fyrir veiðileyfi Háskólinn í Reykjavík og Opni háskólinn í HR bjóða upp á úrval námskeiða í sumar fyrir háskólanema, þá sem eru að hefja háskólanám í haust og fólk sem vill styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Dæmi um námskeið: – inngangur að forritun – róbótar – aðferðafræði straumlínustjórnunar – marketing in turbulent times – alþjóðlegur einkamálaréttur – rekstrarstjórnun – persónuleg þróun Fræðumst innanlands í sumar // Sumarnámskeið HR // Kynntu þér úrval námskeiða á hr.is/sumarnamskeid 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.