Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 12

Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 12
Aðgerðir okkar verða öflugar, aðgerðir okkar munu hafa þýðingu. Donald Trump, Bandaríkjaforseti Atvikið verði rannsakað og mögulega verða stjórn- endur látnir svara til saka fyrir kæruleysislega með- höndlun sína á blóðsýnum. Kynningarfundur á deiliskipulags- tillögu fyrir Nýja Skerjafjörð Uppbygging Nýja Skerjafjarðar mun eiga sér stað í tveimur áföngum. Gangandi og hjólandi notendur verða í fyrsta forgangi í allri hönnun í hverfinu. Hverfið verður umlukið grænum geirum, nýju strandsvæði og milli húsa er gert ráð fyrir torgum, leik- og dvalarsvæðum og mikilli gróðursælu. Samgöngutengingar við hverfið verða frá Einarsnesi í vestri og um nýja vegtengingu í austri sem nær suður fyrir Reykjavíkur- flugvöll, til viðbótar við núverandi göngu- og hjólastíga. Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Streymisfundur miðvikudaginn 3. júní kl. 17 á reykjavik.is/nyi-skerjafjordur og á facebook.com/Reykjavik þar sem jafnframt er hægt að senda inn stuttar fyrirspurnir. Nýtt deiliskipulag fyrir nýja byggð í Skerjafirði byggir á fjölda samninga milli ríkis og Reykjavíkurborgar. Skipulagið mun hvorki skerða núverandi starfsemi né nýtingu Reykjavíkurflugvallar. Hægt er að senda fyrirspurnir fyrir fram á netfangið skipulag@reykjavik.is Frekari upplýsingar og dagskrá fundar á reykjavik.is/nyi-skerjafjordur Mynd: ASK arkitektar TRYGGINGASTOFNUN TRAUST - SAMVINNA - METNAÐUR Við þökkum góðar undirtektir við aukinni fjarþjónustu TR á undanförnum vikum og hvetjum viðskiptavini til að halda áfram að nýta Mínar síður í samskiptum við okkur. Við veitum ráðgjöf og aðstoð í síma 560 4400, netfangið okkar er tr@tr.is. Þjónustumiðstöð TR í Hlíðasmára 11 er opin kl. 9–15 virka daga, einnig er opið hjá umboðsmönnum TR um land allt. ALLTAF OPIÐ á Mínum síðum TR B A N D A R Í K I N Dona ld Tr u mp Bandaríkjaforseti fór mikinn í gær og tilkynnti að hann myndi slíta samstarfi Bandaríkjanna við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, WHO. Trump hefur áður hótað að draga úr fjárveitingum til stofnun- arinnar, en í gær tilkynnti hann að fjármagnið myndi fara til annarra stofnana og að öllu sambandi yrði slitið. Ástæðan sem hann gaf var sú að WHO hefði ekki gert nóg til þess að hamla útbreiðslu COVID-19 í upp- hafi faraldursins. „Þeim hefur mistekist að gera þær úrbætur sem nauðsynlegar eru og beðið hefur verið um. Þess vegna munum við í dag slíta sambandinu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- ina,“ sagði hann við blaðamenn. Trump hefur í þó nokkurn tíma kvartað undan WHO og sagt Kín- verja hafa of mikil áhrif þar inni. En forsetinn hefur um langt skeið háð harðvítugt viðskiptastríð við Kína. Viðskilnaðurinn við WHO var ekki það eina sem Trump tilkynnti í gær, heldur einnig breytt samband við Hong Kong, sem er sjálfstjórnar- ríki innan Kína, og f leiri aðgerðir gagnvart Kínverjum og kínverskum fyrirtækjum. „Aðgerðir okkar verða öf lugar, aðgerðir okkar munu hafa þýðingu,“ sagði hann á blaðamannafundi þar sem ekki var gefið færi á spurn- ingum. Tilkynnti hann að Banda- ríkin myndu afturkalla sérstaka viðskiptastöðu Hong Kong. Einnig að kínverskir borgarar, sem taldir væru ógna öryggi landsins, myndu ekki fá að koma til Bandaríkjanna, og að bandarískir eftirlitsaðilar myndu grannskoða kínversk fyrir- tæki í bandarísku kauphöllinni, með því markmiði að takmarka banda- ríska fjárfestingu í þeim. Fór Trump hörðum orðum um kínversk stjórnvöld, sakaði þau um að svíkja loforð og hertaka svæði á Kyrrahafinu. kristinnhaukur@frettabladid.is Bandaríkjaforseti sleit samstarfinu við WHO Trump var harðorður í garð Kínverja í yfirlýsingu í gær. MYND/EPA INDLAND Starfsmaður spítala átti sér einskis ills von þegar hópur apa réðst á hann við skyldustörf í vikunni og stálu af viðkomandi blóðsýnum. Blóðsýnin voru úr sjúklingum sem grunur lék á að væru smitaðir af COVID-19. Alls náðu aparnir þremur sýnatöku- hylkjum af starfsmanninum og stukku síðan upp í nærliggjandi tré, þar sem þeir mauluðu á feng sínum. Fram kemur í frétt CNN að þeir hafi f ljótlega misst áhugann og hent sýnunum til jarðar. Atvikið átti sér stað á spítala í borginni Meerut í Uttar Pradesh – f jölmennasta ríki Indlands – síðastliðinn fimmtudag. Svæðið var þrifið vandlega eftir atvikið og er ekki talið að neinn hafi komist í snertingu við hið smitaða blóð. Þá varð fórnarlambi árásarinnar ekki meint af. Árásaraparnir munu ekki þurfa að svara til saka fyrir verknað- inn, en það sama verður ekki sagt um forsvarsmenn spítalans. Heilbrigðis yfirvöld í Meerut hafa farið fram á að atvikið verði rann- sakað og mögulega verða stjórn- endur látnir svara til saka fyrir kæruleysislega meðhöndlun sína á blóðsýnunum. – bþ Varð fyrir árás óprúttinna apa Þessir ungu apar tengjast fréttinni ekki beint, þó óprúttnir séu. MYND/GETTY 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.