Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 30
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Allt frá árinu 2012 hafa þau Valdís Helga Þorgeirsdóttir og Óli Valur Þrastar
son dundað sér við að breyta
skiltum víðs vegar um land og hafa
ósjaldan vakið mikla kátínu veg
farenda sem eiga þar leið hjá. Hug
myndin kom upphaflega þegar
þau Valdís og Óli voru á ferðalagi
um Suðurland sumarið 2012. „Við
rákum augun í skilti sem augl
ýsti land til sölu sem við gátum
einfaldlega ekki staðist mátið að
breyta. Það vildi svo til að Óli var
með límband í bílnum og síðan þá
hefur það verið eina tólið sem við
notum til að breyta skiltum. Að
mínu mati er þetta hið fullkomna
grín, því maður er ekki að skemma
neitt.“ Það varð svo að Óli lagði í
mikla svaðilför til þess að breyta
skiltinu. „Hann óð yfir ískalda á,
á nærbuxunum einum saman, til
að komast að skiltinu og fór svo
að „land“ varð að rammíslenskum
„landa“,“ segir Valdís.
Betri skilti í þágu þjóðar
Eitt sinn voru þau útnefnd sem
ósvífnir skemmdarvargar fyrir
breytingar sínar á skilti á Vestur
landi. „Það kom grein í bæjar
blaðinu þar sem fylgdi með mynd
af skiltinu. Viðkomandi hefur ekki
áttað sig á því að engar varanlegar
skemmdir voru gerðar á skiltinu
og næst þegar ég keyrði framhjá
var ekki að sjá neitt að skiltinu
Betri skilti í þágu þjóðar
Hreðavatn ellegar Hreðjavatn? Skósmiður eða kannski diskósmiður? Hvammstangi eða Djamms
tangi? Stundum þarf bara konu með fjörugt ímyndunarafl til þess að gera lífið skemmtilegra.
Hver væri ekki til í eina sveitta hamborgaradúllu með fröllum?
Diskósmiðir eru töluvert sjaldgæfari en skósmiðir.
Óli Valur fagnar hér sigri hrósandi eftir svaðilförina miklu yfir ána.
eftir að límbandið var tekið af.
Tilgangurinn með þessu uppá
tæki er ekki að valda leiðindum
eða skemmdarverkum, heldur
einungis að gleðja.“ Þetta stór
skemmtilega áhugamál hafa þau
Valdís og Óli nefnt „Betri skilti í
þágu þjóðar“.
Eitt sinn, þegar Valdís var komin
sjö mánuði á leið, voru þau Óli
gripin glóðvolg af Vegagerðinni
við að breyta Rif í Reif á Snæ
fellsnesi. „Við útskýrðum að við
myndum bara vilja fá að smella
einni mynd af breytingunni. Þeir
voru ekkert að stressa sig yfir
þessu, samþykktu og keyrðu svo
áfram. Við tókum myndina og
tókum svo breytingarnar niður.
Í dag er það svona sem við gerum
þetta, það er að breytingarnar eru
fyrir myndina og svo tökum við
þetta niður. Gleðin er sú sama.“
Ávallt reiðubúin
„Við erum bæði mikið fyrir alls
konar orðagrín og glens. Sjálf á
ég erfitt með að hemja mig þegar
mér dettur eitthvað fyndið í hug.
Þetta er orðið hálfósjálfrátt við
bragð hjá mér að láta mér detta í
hug alls konar hugmyndir þegar
ég sé hin og þessi skilti víðs vegar
um landið. Einnig er ég með nóg
af límbandi í alls konar litum í
bílnum og ávallt reiðubúin þegar
stríðnispúkinn lætur á sér kræla.“
Þau Valdís og Óli eru búsett á
höfuðborgarsvæðinu og fjærsti
staðurinn þar sem þau hafa fram
kvæmt skiltabreytingar sínar er á
Austurlandi. „Við ferðumst tölu
vert en skiltabreytingar eru samt
ekki helsti hvatinn að ferðalögum
okkar, þótt þær séu klárlega mikill
plús.“ Það eru ferðalög á döfinni
hjá þeim turtildúfum í sumar og
langar Valdísi til þess að kanna
Vestfirði betur. „Ég vona bara að
Vestfirðingar séu til í smá grín
og glens á vegum sínum í sumar,“
segir hún og kímir.
Tilgangurinn með
þessu uppátæki er
ekki að valda leiðindum
eða skemmdarverkum,
heldur einungis að
gleðja.
Valdí s Helga á erfitt með að hemja stríðnispúkann og er ávallt reiðubúin með límbandið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Góð og gleðileg skilaboð til allra reykingamanna.
Það er um að gera að skella sér á Djammstanga í sumar.
Flugbellirnir eru næstum jafn algengir og flugdólgar. Eins gott að þetta er ekki appelsínugula flónið.
00000
www.veidikortid.is
Gleðilegt
veiðisumar!
Fæst hjá N1 - OLÍS og veiðiverslunum
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R