Fréttablaðið - 30.05.2020, Síða 70

Fréttablaðið - 30.05.2020, Síða 70
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Helga Guðmundsdóttir, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Jakob Veigar Sigurðsson mynd-listarmaður dvaldi nýlega í Kol-kata á Indlandi. Þar fékk hann innblástur að sýningu sinni, Ég tala við tré, sem lýkur í dag í Gallerí Fold. Hugmyndina að nafni sýningarinnar fékk Jakob þegar hann dvaldi í sóttkví. „Ég var staddur í bústað í Skaftafelli og hafði verið að skrifa vinkonu minni sem býr erlendis um þankaganginn minn eftir dag hvern,“ segir Jakob. „Við skrifin áttaði ég mig á því að ég tala við alla skapaða hluti þegar ég er einn. Ég finn oft mikinn frið í því að eiga samskipti án orða við dýr og náttúru.“ Það sama gerðist úti á Indlandi þar sem Jakob var í fyrstu í hálfgerðu menningarlosti. „Kolkata er ein klikk- aðasta borg sem fyrirfinnst á jörðinni. Hún er svo full af mengun, drullu, fátækt og ríkidæmi. Fyrir Íslending að koma í alla þessa mergð þá er þetta brjálað kaos.“ Jakob lýsir því að dvölin hafi f ljótt orðið yfirgnæfandi. „Þetta er rosalega skemmtilegt og spennandi fyrst, en svo fær maður hvergi þögn og hvergi frið. Mér fannst eins og ég væri að kafna.“ „En svo gerðist eitthvað og ég fann að það væri einhver sturluð fegurð þarna. Ég sá fólk sem hefur aldrei sofið í rúmi, skælbrosandi að þrífa sig í vatni sem maður myndi ekki setja fæturna út í,“ segir Jakob sem varð helnuminn af upplifuninni. „Í öllu ógeðinu var svo mikil fegurð í hjörtum mannanna þarna. Ég fann allt í einu þvílíkan frið í óreiðunni.“ Líkt og nafn sýningarinnar gefur til kynna eru f lest verk sýningarinnar tengd trjám. „Á Indlandi voru tré merki um þessa fegurð sem ég fann í öllu ógeðinu. Þau héldu áfram að vera falleg og æðisleg þrátt fyrir ógeðið. Þau urðu tákn þess að það býr eitthvað miklu fegurra að baki.“ Jakob verður með listamannaspjall í Gallerí Fold kl. 14 í dag þar sem hann ræðir við gesti og svarar spurningum um sýninguna. Fegurðin í ógeðinu Myndlistarmaðurinn Jakob Veigar var staddur á Indlandi þegar hann fékk innblást- ur fyrir sýningu sína Ég tala við tré. Þar fann hann fyrir sturlaðri fegurð í óreiðunni. Eins og nafn gefur til kynna eru tré meginstefið í sýningunni. Jakob segir að tré viðhaldi fegurðinni þrátt fyrir umhverfi sitt. Jakob Veigar Sigurðsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, Lúðvík Lúðvíksson lést á Landspítalanum í Fossvogi 22. maí. Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 4. júní kl. 13. Pála Kristín Bergsveinsdóttir Ívar Örn Lúðvíksson Kristófer Páll Lúðvíksson Lúðvík Lúðvíksson Steinunn J. Kristófersdóttir Sigurlaug Pálsdóttir Bergsveinn Þorkelsson Sigríður Jónatansdóttir Valgarður V. Lúðvíksson Berit Willysdóttir Eide G. Arna Lúðvíksdóttir Guðbrandur Elí Lúðvíksson Fatima Fahmi Lea Valdís Bergsveinsdóttir Jóhanna af Örk, eða Mærin frá Orléans, sem er þjóðþekkt hetja í Frakklandi og kaþólskur dýrlingur, lést á þessum degi árið 1431 í Rúðuborg í Frakklandi. Jóhanna var frönsk almúgastúlka, fædd í austurhluta Frakklands 1412. Ung sagðist hún sjá sýnir sem voru frá guði komnar. Hann skipaði henni að ná Frakklandi undan yfirráðum Englendinga í hundrað ára stríðinu. Hinn ókrýndi Karl sjöundi sendi hana til Orléans, sem Englendingar höfðu á valdi sínu. Hún fór fyrir franska herliðinu og varð fræg fyrir að hrekja Englendingana á brott. Á aðeins níu dögum náði hún að vinna fleiri sigra og leiddi það til þess að Karl var krýndur í Reims. Segja má að sigrar hennar og hersins franska hafi gefið frönsku þjóðinni aukið sjálfstraust. Englendingar náðu hins vegar að handsama Jóhönnu nærri Compiègne. Þar dæmdi enski land- stjórinn hana fyrir villutrú og lét svo brenna hana á báli. Kallixtus 3. páfi veitti henni uppreisn æru tuttugu og fjórum árum síðar. Benedikt XV. páfi tók hana í dýrlingatölu í maí Þ E T TA G E R Ð I S T: 3 0 . M A Í Á R I Ð 14 31 Jóhanna af Örk brennd á báli 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.