Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 2
2 7. febrúar 2020FRÉTTIR
Á þessum degi,
7. febrúar
1882 – Síðasti hnefaleikabardaginn
í þungavigt án hanska fór fram í
Mississippi.
1914 – Charlie Chaplin birtist í fyrsta
sinn sem litli flækingurinn.
1940 – Bandaríska teiknimyndin Gosi
var frumsýnd.
1964 – Bítlarnir komu fyrst til Banda-
ríkjanna.
1985 – „New York, New York“ varð
opinber söngur New York-borgar.
frægir sem lentu í netníðingum
Netníðingar eru því
miður algengari en halda
mætti og oft er sagt að
einstaklingur sé ekki búinn
að „meika það“ fyrr en
óprúttinn aðili stelur nafni
viðkomandi. Á tækniöld
fer svona auðvitað mest
fram á samfélagsmiðlum
og samskiptaforritum, en
þessir Íslendingar eiga allir
það sameiginlegt að hafa
brugðið við þegar nafn
þeirra var farið að spyrjast
út á vafasaman veg.
Eftirsóttur að venju
Snemma árs 2018 var
stofnaður aðgangur á
stefnumótasíðunni Tinder
í nafni Rúriks Gíslasonar
knattspyrnumanns, en
einnig var stofnaður
Instagram-reikningur í
hans nafni. Rúrik tók tíð-
indunum ekki vel og kærði
atvikið á þeim forsendum
að það væri brot á frið-
helgi einkalífs hans.
Bubbi í bobba
Tónlistarmaðurinn Bubbi
Morthens hefur í tvö ár
leitað réttar síns vegna
falsreiknings í hans nafni
á Instagram. Bubbi leitaði
til lögreglu, tölvusér-
fræðinga og lögfræðinga
en enginn virðist geta
hjálpað honum hvað
þetta varðar.
Kunni ekki íslensku
Nýverið var stofnaður
Twitter-aðgangur í nafni
Hildar Guðnadóttur
tónskálds. Á þessum
aðgangi hafði umsjónar-
maður hans samband við
ýmsa fylgjendur og þótti
sumum skjóta skökku við
að eigandinn kynni ekki
íslensku. Þegar Hildur
tilkynnti svikin spratt upp
annar aðgangur, sem nú
er búið að loka.
Ekki hinsegin
Áhrifavaldurinn
Sunneva Einarsdóttir
leiðrétti misskilning fyrr
á árinu þegar óprúttinn
einstaklingur sagði
hana vera lesbíska. Á
stefnumótaforritinu
HER var birt mynd
af henni á fölskum
aðgangi þar sem
Sunneva var sögð heita
Anna, en HER er einmitt
stefnumótaforrit fyrir
hinsegin konur.
Ekki Aron
Dag einn kom Björgvin
Páll Gústavsson lands-
liðsmarkvörður auga
á kunnuglegt andlit á
Tinder. Hann ákvað þó
að slá á létta strengi
þegar hann greindi frá
svikahrappnum, sem
gekk undir nafninu
Aron, og bað hann
notendur um að vin-
samlegast tilkynna sig.
Fleyg orð
„Mikilvægustu dagar lífs
þíns eru tveir; annars vegar
dagurinn sem þú fæðist
og hins vegar dagurinn þar
sem þú finnur þína leið í
lífinu.“
– Mark Twain
Fjármagn og kórónaveiran
aðskilja Svanberg frá stóru ástinni
n Svanberg óskar eftir náungakærleika fólks n „Þetta er vont á hjartað“
A
ð búa á Íslandi er rándýrt
og fyrir suma er næstum
því ómögulegt að safna
peningum. Með hverjum
mánuði dvínar vonin mín,“
segir Svanberg Rúnar Lárusson,
sjálfskipaður draumóramaður
á fertugsaldri sem búsettur er
á Vestfjörðum, en hann hefur
leitað til hópsöfnunar á vefnum
GoFundMe í von um að „fólk sem
trúir á ástina“ geti veitt honum
aðstoð.
Svanberg er í öngum sínum
vegna kærustu sinnar, sem
búsett er á Filippseyjum og í
ljósi útbreiðslu kórónaveirunnar
óttast hann að örlögin muni
stía þeim í sundur. Ekki bæta
umræður um eldgos úr skák, en
þau hafa verið í fjarsambandi
í nokkur ár og óskar Svanberg
eftir fjárhagsaðstoð fólks svo
hann geti flogið út til Filippseyja
, til kærustunnar og veitt henni
aðstoð eða verið við hennar hlið
ef útbreiðsla veirunnar eykst.
Að sögn Svanbergs kynntist
hann stóru ástinni í heimalandi
hennar. Til stóð að flytja til
hennar fyrir tveimur árum,
en það var ekki gerlegt vegna
óviðráðanlegra aðstæðna, eins
og hann sjálfur orðar það. „Mínar
helstu áhyggjur núna eru þær að
veiran hafi áhrif á flugumferð og
að aðstæður verði orðnar erfiðari
þegar eða ef ég næ loksins að
spara,“ segir Svanberg.
„Þetta er vont á hjartað og mig
langar fátt meira en að fljúga út
til hennar, vera hjá henni og sjá
hana brosa á ný undir fjórum
augum. Hún er annar helmingur
sálar minnar. Svo einfalt er það.“
Svanberg neitaði að tjá sig
um starfsvettvang sinn eða nafn
konunnar. Enn sem komið er
hefur ekkert fjármagn safnast á
vefnum en hann neitar að gefa
upp vonina. n