Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 22
22 FÓKUS - VIÐTAL 7. febrúar 2020 hjá kerfinu að hún sé sjálfkrafa einhvers konar liðveisla í fullu starfi fyrir son sinn. Skilningsleys- ið sé algjört. „Það er bara eins og þetta sé allt í lagi, af því að ég get nú einu sinni hugsað um hann þá er þeim sléttsama.“ Enginn mannskapur Ofan á allt annað hefur sonur Helgu glímt við offitu í fjölda ára og hafa fjölmörg úrræði ver- ið reynd. Helga kveðst meðal annars hafa reynt að finna einka- þjálfara til að taka son hennar að sér. Það hafi hins vegar reynst þrautin þyngri að finna einhvern í það verkefni. Helga segir að fyrir rúmu ári hafi hún sent beiðni á offituteymið á Reykjalundi fyrir son sinn. Henni hafi þá verið tjáð að ekki væri nægilegur mann- skapur til að taka við honum. Þeim hafi hins vegar verið boð- ið upp á að næringaráðgjafinn fylgdist með syni hennar, í gegn- um símtöl og hitti hann síðan eft- ir þrjá mánuði. Helga segist ekk- ert hafa heyrt í ráðgjafanum eftir það. Þá var þeim boðið að þjálfari myndi hringja í son Helgu dag- lega og minna hann á að fara í göngutúr. „Ég reyndi að segja honum að sonur minn myndi bara sleppa því að svara í símann, sem hann og auðvitað gerði og fór aldrei í neina göngutúra,“ segir Helga en hún kveðst hafa þrábeðið um að sonur hennar fengi manneskju með sér í þetta ferli, til að veita honum að- hald og stuðning. Sonur hennar er í dag 156 kíló. „Hann vill bara vera heima og helst að borða, því það sem var vont í gær, getur verið alveg æðislegt í dag, þannig að það skiptir litlu máli hvað er til í skúffum og skáp- um, hann vill helst borða það allt saman,“ segir Helga en bætir við að sonur hennar hafi nýlega komist inn í prógramm á Heilsuborg, sem sé mikið gæfuspor. Þau binda von- ir við að hann komist í hjáveituað- gerð í nánustu framtíð. Þá er hann einnig byrjaður að æfa box tvisvar í viku, í Hnefaleikastöðinni á Við- arhöfða. „Hann elskar það, en það tók ansi langan tíma að finna stöð sem vildi taka við honum og það má alveg þakka fyrir það.“ Helga segir nauðsynlegt að fjölga íbúðum í hverju sveitar- félagi fyrir sig. Hún bendir jafn- framt á galla í kerfinu sem snýr að flutningi á milli sveitarfélaga. Hún hefur ávallt leitað til Kópavogs- bæjar varðandi þjónustu við son- inn, og þar liggja fyrir þeir biðlist- ar sem nafn hans er á. Helga þarf fljótlega að flytja í nýtt sveitarfélag en sér ekki fram á að sonur hennar geti flutt með henni vegna þess að þá mun hann missa alla þjónustu hjá Kópavogsbæ og mál hans fær- ast yfir til nýja sveitarfélagsins. Það þýðir að næstum fimm ára bið hef- ur verið til einskis. Helga segist því ekki sjá sér annað fært en að flytja son sinn yfir á annað lögheimili í Kópavogi, þar til hann fær íbúð. Baráttan hefur tekið sinn toll Helga hefur meira eða minna staðið ein í baráttunni fyrir son sinn. Og sú barátta hefur tekið sinn toll, líkamlega og andlega. „Satt að segja átti ég mér ekk- ert líf fyrstu átján árin hans. En ég fór svo að vinna hlutastarf, og geri enn, og það er sú vinna sem bjargar geðheilsu minni. Ef ég ætti að ná að ráða við eitthvað, þá þyrfti ég að vera heima allan sól- arhringinn og hafa augu og eyru opin allan tímann, en ég er nú orðin 52 ára gömul og held að ég þurfi að hlúa meira að sjálfri mér, því ég er orðin heilsulítil og berst við alls kyns verki og fleira.“ Hega tekur fram að hún sé engu að síður afar þakklát öll- um þeim sem hafa sýnt vilja til að hjálpa syni hennar í gegnum tíð- ina. Því megi ekki gleyma. En eins og staðan er í dag þá óttast hún um son sinn, og hvernig hon- um muni reiða af í framtíðinni. Hún hefur sjálf glímt við heilsu- brest og segist margoft leiða hug- ann að því hvað verði um strák- inn hennar ef hún fellur frá, eða verður ófær um að sinna honum. „Ef ekkert verður gert þá mun ég missa barnið mitt, ég er alveg sannfærð um það. Ég er vakin og sofin yfir honum og ef vel ætti að vera þá ætti ég að vera heima allan sólarhringinn.“ n „Hann vill bara vera heima og helst að borða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.