Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 27
FÓKUS 277. febrúar 2020 Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Íslenskir leikarar sem lifðu af axarsköftin Í skemmtanabransanum bjóð- ast ekki margir sénsar, sér- staklega ef leikari fer með burðarhlutverk í verki sem telst til feilspors hjá almenningi. Vestan hafs er óskrifaða reglan sú að ef viðkomandi tekur þátt í floppi sem verður grunnur hol- skeflu háðs og sleggjudóma, er umræddur leikari kominn í svokölluðu bíóprísundina (e. Movie Jail). Ísland er aftur á móti lítið land og eiga sumir þekktra leikara okk- ar hina ótrúlegustu skelli að baki en lifðu þá af af. Hér má sjá fá- ein dæmi um leikara sem komust heilir frá axarsköftum sínum og náðu jafnvel að blómstra sem aldrei fyrr í kjölfarið á þeirra. Drasl og dósahlátur Jóhannes Haukur Jóhannesson – Marteinn Árið 2009 leit sjónvarpsserían Marteinn dagsins ljóst hjá RÚV. Gamanþættirnir sóttu grimmt í margnotaða formúlu vestanhafs þar sem karlmaðurinn á heimilinu er sófakartafla, konan er sínöldrandi staðalímynd, besti vinur- inn aumingi og deilurnar ódýrum farsa líkastar. Marteinn var kvikmyndaður fyrir framan sal fullan af áhorfendum, sem hefur líklegast ver- ið mútað með ókeypis pítsum til þess að bæta dósahlátri í handritið vonda. Jóhannes Hauk- ur fór með titilhlutverkið og komst hjá því að láta þættina leiða sig út af sporinu í leikaralíf- inu, enda fór hann síð- ar að deila hvíta tjaldinu með fagfólki eins og Ian McKellen, Cate Blanchett og Guy Pearce. Hugs- anleg skýring er sú að mjög fáir Ís- lendingar hafi séð Martein og ef til vill skyn- samlegast að halda því þannig. Skraufþurr borgarstjóri Jón Gnarr – Gnarrenburg, Borgarstjórinn og Maður eins og ég Ljóst er að Jón Gnarr hefur gert marga meiriháttar hluti fyrir íslenskt grín og meira til utan skemmtanageirans. Landsmenn hafa í hálfan þriðja áratug vitnað títt í persónur Jóns, frá Indriða til Georgs Kidda á verkstæðinu. Aft- ur á móti er leik- og grínferill mannsins ekki flekklaus og hefur mátt þola nokkrar hraða- hindranir – nokkuð harkalegar. Ber þar fyrst að nefna skemmtiþáttinn Gnarrenburg, þar sem sjálfur stjórnandi þáttarins virtist varla nenna þessu. Landanum var ekki skemmt og viðtökur voru ekkert hlýrri með tilkomu Borgarstjórans og kvikmyndarinnar Maður eins og ég. Borgar- stjórinn er lauslega byggð á eigin reynslu Jóns og fjögurra ára stöðu hans í því starfi. Jón náði þó að dusta af sér þessi skraufþurru verk með því að endurvekja Indriða í Skaupinu góða. Kjánahrollur í hringekju Gói – Hringekjan Spjallþátturinn Hringekjan þótti sérlega mislukkaður af flestum, ábyggilega þáttastjórnandanum sjálfum líka. Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, lagði sig þó allan fram og fær marga plúsa fyrir að halda andliti og stemningu á með- an brandarar og uppsetning varð tilefni mikils og tíðs aulahrolls. Fyrir mikla lukku lifði Gói fallið af og með tímanum varð Hringekjan lítið annað en víti til varnaðar í íslensku sjónvarpi. Draugagangur í aðsókn Laddi – Ófeigur gengur aftur Í kjölfar velgengni gamanmyndarinnar Jóhannes, sem malaði gull í aðsókn á sínum tíma, var þjóðþekkti grínarinn Laddi orðinn að bíóstjörnu. Þá var ekki annað í stöðunni en að panta nýja gam- anmynd þar sem ærslagangur hans var í fyrirrúmi og árið 2013 var hulunni svipt af mynd þar sem okkar maður lék ólátabelg sem hafði gengið aftur. Draugafarsinn Ófeigur gengur aftur náði hvergi sömu hæðum í vinsældum og Jóhannes og vakti almennt lítinn áhuga almennings og gagnrýnenda. Laddi er auðvitað með okkar þekkt- ari og færari skemmtikröftum, þannig að lítið mál hefur verið fyrir hann að sópa skömminni undir teppið. Öllum verður kalt Björn Thors – Frost Björn vann sér aldeilis inn hylli landans þegar hann brá sér í hlutverk Kenneths Mána í Fangavaktinni og hefur einnig lengi ver- ið sterkur á sviði í gegnum tíðina. Leikarinn fékk tækifæri til þess að spreyta sig á nýjum sviðum þegar hann tók þátt í hrollvekjunni Frost, sem fljótt varð skotspónn gagnrýnenda og uppspretta mik- ils gríns. Kvikmyndin sótti í sambærilegan stíl og The Blair Witch Project, þar sem tíður hristingur kvikmyndatökuvélar og öskur utan ramma voru allsráðandi. Áhorfendur voru lítið heillaðir af þessum hrolli og heyrðist fátt annað á almennum bíósýningum en samstíga geispi fólks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.