Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 40
40 7. febrúar 2020STJÖRNUSPÁ stjörnurnar Spáð í Naut - 20. apríl–20. maí Fiskur - 19. febrúar–20. mars Vatnsberi - 20. janúar–18. febrúar Steingeit - 22. desember–19. janúar Bogmaður - 22. nóvember–21. desember Sporðdreki - 23. október–21. nóvember Vog - 23. sept.–22. október Meyja - 23. ágúst–22 .sept. Ljón - 23. júlí–22. ágúst Krabbi - 22. júní–22. júlí Tvíburi - 21. maí–21. júní Stjörnuspá vikunnar Gildir 9.–15. febrúar Þú fyllist miklum innblæstri eftir smá ládeyðu í lífinu. Þú sest við tölvu eða tek- ur þér minnisbók í hönd og skrifar niður markmið af miklum eldmóð. Þú ert afar drífandi þessa dagana og hrífur fólk með þér, sem er afar mikilvægt þegar maður vill ná markmiðum sem eru afar háleit. Það er ekki nóg að bara láta sig dreyma – það þarf líka að framkvæma svo draumarnir geti ræst. Þú nærð að vinna alls konar fólk á þitt band og nærð fullum tökum á listinni að spinna í kringum þig tengslanet. Þú veist nákvæmlega hvað þú þarft að gera til að koma hugmyndum þínum í framkvæmd og ert komin/n með rétta fólkið til verksins. Það leynist lítill uppreisnarseggur í þér þessa dagana og þú neitar að láta setja þig í fyrirfram ákveðna stærð af formi. Þú vilt blómstra, rasa út og klæða þig í ögrandi klæðnað og það fær þig ekkert eða enginn stoppað. Þú fylgir hjartanu sem aldrei fyrr og það hefur afar góða hluti í för með sér. Þú hefur engan húmor fyrir fólki sem ræðst inn í þitt persónulega rými án þess að gera boð á undan sér. Þú vilt hafa þitt fyrir þig og engan annan og berst með kjafti og klóm fyrir því. Það er ekki oft sem þú ert ekki til í glens og stuð en þessa vikuna viltu helst vera ein/n með hugsunum þínum og löngunum. Þú ert nýbúin/n að taka stóra ákvörðun sem þú í fyrstu varst ánægð/ur með. Síðan fara að renna á þig tvær grímur og efinn lætur á sér kræla. Þú skalt hlusta á efann, hann kemur ekki að ástæðulausu. Getur verið að þú hafir verið að loka aug- unum fyrir sannleikanum? Því fyrr sem þú horfist í augu við hann, því betra. Vá, meyja! Þú ert í svaka stuði þessa dag- ana. Þér finnst eins og þú sért að losna við hlekki og sért loksins frjáls! Þú ferð út á meðal fólks og nýtur þess í fyrsta sinn í langan tíma. Þú skapar rými til að hitta alla sem þú elskar og gerir góðverk hægri, vinstri. Þetta er góður tími fyrir þig meyja og þú skalt muna hvernig tilfinning þetta er. Þú nærð að koma svo miklu í verk, enda ertu búin/n að læra hvernig þú getur nýtt tíma þinn sem best og hefur losað þig við leiðinlega ávana í leik og starfi. Þú þarft samt að varast að taka of mikið að þér. Þú veist hvernig það endar – þú gerir ekkert eins vel og þú vildir og veldur þér vonbrigðum. Leyfðu listamanninum innra með þér að leika lausum hala – hann fær ekki svo oft að fara út að leika. Þú ert svo skapandi, en mundu að til þess að skapa af heilum hug þarf maður að henda öllum fordóm- um og fyrirfram ákveðnu hugmyndunum út um gluggann. Annars nær maður ekki árangri. Nú þarftu að taka á honum stóra þínum og hreinsa loftið á milli þín og manneskju sem stendur þér afar nærri. Það er ekkert vit í að eyða ævinni í að pirra sig á hlutum sem eru orðnir alltof stórir í hausnum þín- um, því þú hefur ekkert rætt þá. Grafðu stríðsöxina og haltu áfram með lífið. Þú ert klár og skemmtileg/ur og þessir eiginleikar verða til þess að þú verður hrókur alls fagnaðar í veislu sem haldin verður bráðlega. Í þessari veislu hittir þú manneskju sem þú munt bindast ævi- löngum vinaböndum. Það kemur þér á óvart, því þú hittir ekki oft fólk sem skilur þig fullkomlega. Fjármálin eru í fyrirrúmi þessa vikuna, en það er alls ekki leiðinlegt. Þig dreymir stóra drauma en nú er komið að því að taka þessa drauma úr höfðinu, setja þá niður á blað og búa til fjárhagsáætlun um hvernig þú ætlar að ná þeim. Loksins verða fjármálin skemmtileg því það er fátt skemmtilegra en að láta draumana rætast. Þú ert að spá í að fara út í eigin rekstur en þú ert í basli með að finna hvað er svona sérstakt við þig. Af hverju ætti fólk að velja þig? Það er ágætt að velta slíku fyrir sér við og við en það er einnig mikilvægt að fara ekki gegn eigin sannfæringu – mundu það vel. Hrútur - 21. mars–19. apríl Afmælisbörn vikunnar Lesið í tarot Loga Afrekspar fjölgar sér - Svona eiga þau saman n 9. febrúar Egill Ólafsson, söngvari og leikari, 67 ára n 9. febrúar Ólafur Páll Torfason „Opee“, 36 ára n 11. febrúar Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona, 33 ára n 11. febrúar Sigríður Hagalín Björnsdóttir sjónvarpskona, 46 ára n 12. febrúar Ingólfur Sigurðsson knattspyrnumaður, 27 ára n 14. febrúar Haukur S. Magnússon tónlistarmaður, 39 ára n 15. febrúar Margeir Pétursson skákmeistari, 60 ára Gullslegin velgengni F jölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson komst í hann krappan í vikunni og vakti upp úlfúð þeirra Íslendinga sem búsettir eru á Spáni. Logi er þekktur fyrir hispurs lausa framkomu en DV ákvað að leggja tarot fyrir Loga og rýna í spilin. Lesendum DV er bent á að þeir geta dregið tarotspil á vef DV. Jarðtenging Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Loga er Myntás. Logi hefur í auknum mæli leitast eftir því að ná jarðtengingu og innri ró. Það hefur reynst honum vel og hef- ur hann skilið rótleysi og óstöðugleika eftir í fortíðinni. Friður er í hjarta hans og þessum frið fylgir góðmennska og náungakærleikur í meira mæli. Hann leitast við að hjálpa náunganum og kann að meta umhverfi sitt mikið betur. Með ró og frið kemur meiri þörf fyrir líkamlega snertingu, en Logi þarf að hlusta á langan- ir sínar og leyfa sér að njóta tilverunnar. Fastur í rútínu Svo er það 4 bikar- ar. Þótt einkalífið sé í blóma finnst Loga hann vera fastur í rútínu utan heimilisins. Það er ekki gott fyrir mann eins og hann og nær hann ekki að þroskast ef hann er fastur í sömu förunum daginn út og inn. Logi þarf samt að læra að meta það sem hann á og upplifir, staldra við hér og þar og líta yfir farinn veg og allt það góða sem hann hefur gert. Hann þarf samt á breytingu á halda, en þarf ekki að ör- vænta í þeim efnum. Óviðjafnanlegt tækifæri Loks er það Keisarinn. Stöðuhækkun sem tengist starfi Loga eða nýtt starf er fram undan og afar spennandi. Hann stendur frammi fyrir tækifæri sem birtist sjaldan og þarf að kanna möguleika framtíðarinnar gaum- gæfilega. Skipulag og hagkvæmni mun leiða Loga að settu marki næstu misseri. Það er þó merkilegra að nú kemur náunga- kærleikurinn sér vel því velferð náungans kemur Loga lengra en hann hafði órað fyrir. Spennandi tímar eru á næsta leiti og verður vel- gengnin gulli slegin. n A freksparið Frederik Aegidius og Annie Mist Þórisdóttir eiga von á sínu fyrsta barni. Von er á krílínu þann 5. ágúst og því lék DV forvitni á að vita hvernig Frederik og Annie Mist eiga saman, ef litið er til stjörnumerkjanna. Frederik er krabbi en Annie Mist er meyja og því er þetta samband afar sterkt og jarðbundið. Þetta samband getur orðið sífellt betra með hverju árinu en bæði merki eru mjög öguð og drifin áfram af því að ná sem lengst, á hvaða sviði sem er. Meyjan og krabbinn eru einlæglega trú hvort öðru, enda hvorugt merki hannað til að eiga í létt- vægum ástarsamböndum. Bæði þessi merki þurfa sterka og sanna ást og einsetja sér að láta þá ást lifa ævina á enda. Þau virða hvort annað afar mikið og þó að sambandið hafi hugsanlega farið hægt af stað þá hefur það styrkst jafnt og þétt. Krabba og meyju er sama um allt sem er yfir- borðskennd og búa bæði merkin yfir sterkri rétt- lætiskennd. Þau kunna vel við hið efnislega en geta eingöngu notið þess ef þau hafa unnið fyrir því. Þau vilja sko ekkert gefins. Það eina sem get- ur valdið kergju í þessu sambandi er ef gagnrýni meyjunnar fer fyrir brjóstið á hörundsára krabban- um. Krabbinn þarf hins vegar að skilja að það er í eðli meyjunnar að benda á það sem hún sér og það má aldrei taka gagnrýni hennar persónulega. n Frederik Fæddur: 11. júlí 1987 Krabbi n hugmyndaríkur n þrjóskur n traustur n með mikinn sannfæringarkraft n óöruggur n skaphundur Annie Mist Fædd: 18. september 1989 Meyja n metnaðarfull n traust n góð n vinnuþjarkur n of gagnrýnin n feimin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.