Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 4
4 7. febrúar 2020FRÉTTIR S varthöfði hefur gjarnan gaman af því að sækja kvik- myndahús. Með tilkomu og upprisu streymis veitna og sífellt stærri eða flottari bún- aðar í heimastofum hefur stór hluti almennings fært rök fyrir því að upplifun kvikmyndar á hinu merka hvíta tjaldi – í full- um sal með ókunnugu fólki – sé gjörningur sem fljótlega muni heyra sögunni til. Þetta þykir Svarthöfða miður og er umræð- an um mikilvægi bíóupplifunar þörf sem aldrei fyrr í ljósi hótana um að bola út starfsemi stofnun- ar eins og Bíós Paradísar. Vegna jakkafatamanna og peningagræðgi var nýlega til- kynnt um uppsprengt leigu- verð fyrir húsnæðið sem hýst hefur kvikmyndahúsið. Mótmæli breiddust út á samfélagsmiðl- um og þykir menningarfólki það vera gróft merki um ragnarök, ef framboð kvikmyndahúsa muni í framtíðinni einskorðast við Disney-endurgerðir, ofurhetju- skrípó eða framhaldsmyndir á færibandi. Svarthöfði þarf þó stöðugt að gæta orða sinna varð- andi risann Disney því hann til- heyrir veldinu. Paradísarmissirinn yrði þó óneitanlega gífurlegur skellur fyrir unnendur góðra, alþjóð- legra og fjölbreyttra lista. Starf- semin sem þetta kvikmyndahús hefur tileinkað sér hefur gefið ýmsum kvikmyndafræðinemum og almennt yngri kynslóðinni tækifæri til að sjá sígild verk á þann máta sem ætlað var. Eins og áður hefur verið bent á hafa ótalmargir íslenskir kvik- myndagerðarmenn stigið sín fyrstu skref í þessu húsi og af- hjúpað byrjendaverk sín, en flötur fyrir stuttmyndahátíðir og annars konar tilraunasemi hef- ur verið merkilega takmarkaður utan þessarar Paradísar. Því þarf að heimta hana aftur. Ýmsu hefur verið varpað fram um framtíð þessarar starf- semi. Meira að segja Minjastofn- un Íslands hefur sýnt því áhuga að vernda húsið, sem þykir æði merkilegt þar sem húsið telst ekki einu sinni til fornra bygginga, enda lauk byggingu þess árið 1977 (á fæðingarári Svarthöfða nota bene). Með réttu ætti sú stofnun frekar að skipta sér af torfhúsum og leyfa hinu að hafa sinn gang. Hver veit nema nískupúkarnir með peningatösk- urnar sigrist á þeirri freistingu að breyta menningarfyrirbæri í enn eitt hótelið, áfengisverslun, bíla- stæði eða lundabúð. Lausnin er þó til, en barátta listamanna við peningamenn hefur sennilega verið til frá örófi alda – og yfirleitt sigra þeir sem meira mega missa. Vonum að menningargersemin og hug- sjónin hafi yfirhöndina að þessu sinni. Svarthöfði kýs frekar að sjá salinn sem hálffullan frekar en hálftóman. n Salurinn hálffullur Svarthöfði Það er staðreynd að… Dalmatíuhundar fæðast án bletta. Ian Fleming, höfundur bókanna um James Bond, skaut upp kollinum í aðeins einni kvikmynd um njósnarann, From Russia with Love. Leikarinn Johnny Depp var með bráðaofnæmi fyrir súkkulaði á yngri árum. Stærsti nýrnasteinn í sögu lækna- vísindanna vó 6,3 kíló. Það eru fleiri kjúklingar á jörðinni en mannfólk. Hver er hann n Hann er fæddur í janúar árið 1961. n Hann var einn af stofnendum og útgef- endum Nyhedsavisen sem gefið var út í Danmörku. n Hann var einn af stofnendum vikublaðanna Eintaks og Morgun- póstsins. n Hann gegndi störfum sem fram- kvæmdastjóri SÁÁ um tíma. n Árið 2017 stofnaði hann nýjan íslenskan stjórnmálaflokk. SVAR: GUNNAR SMÁRI EGILSSON n Fæðingatíðni í sögulegu lágmarki n Andleg heilsa yfir meðaltali F æðingatíðni hef- ur náð nýjum lægðum á Ís- landi, í Noregi og Finnlandi, þrátt fyrir að Norðurlöndin státi af einu besta fæðingar- orlofskerfi í heimin- um, einkum hvað við- kemur feðrum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um stöðu Norðurlanda sem var gefin út í vikunni á vegum norrænu ráð- herranefndarinnar. Útlit er fyrir að samfélög á Norðurlöndunum haldi áfram að eldast á næstu árum. Í skýrslunni kemur fram að nú þurfi Norðurlöndin að horfast í augu við þessa stöðu og skipuleggja sig eftir henni. Meðal þess sem Norðurlöndin ættu að taka tillit til er að styðja við lýðheilsu eldri borgara og skapa hagfelldari búsetuaðstæður og -umhverfi. Til dæmis með því að styrkja búsetuúrræði, al- menningssamgöngur og umhverfisskipulag svo það henti betur eldri samfélagsþegnum. Fæðingartíðni á Íslandi hefur minnkað úr 2,2 börnum á hverja konu, eins og var árið 2009, niður í 1,7. Eins hefur meðalaldur kvenna sem eiga sitt fyrsta barn hækkað. Númer fjögur í lífsgæðum Í skýrslunni kemur einnig fram að Ísland sé í fjórða sæti Norðurlandanna þegar kemur að lífsgæðum. Lífsgæðin eru mæld í skýrsl- unni með kvarða sem miðar við þrjá þætti; lífslíkur frá fæðingu, þekkingu mælda í lengd skólagöngu og lífsgæðum út frá vergri lands- framleiðslu. Ísland kemur vel út þegar kemur að and- legri heilsu. Þar erum við undir Evrópumeð- altali, en 16,7% Íslendinga eru talin glíma við andlega kvilla á meðan meðaltalið í Evrópu er 17,3%. Um 78% Íslendinga á aldrinum 25–64 ára hafa lokið námi umfram skólaskyldu. En það er töluvert yfir Evrópumeðaltalinu sem er 67,1%. Erum við þó í neðsta sæti hinna Norður landanna sem öll eru með yfir 80 pró- sent. Losun gróðurhúsalofttegunda Losun gróðurhúsalofttegunda jókst á Íslandi á árunum 1990–2017, það sama á við um Noreg. Á öðrum Norðurlöndum dró úr losun. Er þetta talið skýrast af gasiðnaði í Noregi og áliðnaðinum á Íslandi. n Ísland eldist og er í fjórða sæti Norður- landa í lífsgæðum Fæðingartíðni í sögulegu lágmarki Íslenska þjóðin verður eldri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.