Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 11
FÓKUS - VIÐTAL 117. febrúar 2020 Þ órhildi Þorleifsdóttur þarft vart að kynna en hún hefur starfað við allar stærstu menningarstofn- anir landsins sem leikstjóri ásamt því að sinna starfi leikhússtjóra, kvenréttindafrömuðar og alþing- iskonu. Við hittum Þórhildi fyrir í Söngskóla Reykjavíkur þar sem nemendur á efsta stigi stóðu í ströngu við æfingar á Fiðlaranum á þakinu. „Ég hef margoft komið að uppsetningum sem þessum, bæði hjá menntaskólum sem og Stúdentaleikhúsinu,“ segir Þórhildur og býður blaðakonu í beinu framhaldi upp á laufléttan latte í tilefni dagsins. „Æfingar ganga vel en ég gef engan afslátt. Auðvitað er þetta mikil ögrun fyrir krakkana, þeir hafa aldrei stigið á svið en ég slæ ekkert af kröfunum þótt þeir séu byrjendur. Einhver sagði að við værum nú ekki á leiðinni með þetta verk á Broadway en mín skoðun er sú að auðvitað stefnum við alltaf á Broadway. Ég geri alltaf gríðarlegar kröfur og kannski fullmiklar, en þó held ég ekki.“ Allt sem ég geri vil ég gera vel Alls koma á milli tuttugu og þrjá- tíu nemendur að sýningunni ásamt hljómsveit og viðurkenn- ir Þórhildur að þetta sé mikið batterí. „Ég veit ekki hvort þú vilt kalla það metnað, en allt sem ég geri reyni ég að gera vel. Ég teymi mitt fólk í að gera sitt ítrasta en þó ekki með það að markmiði að sýningin verði gallalaus held- ur miklu frekar til þess að þau átti sig á að ef þau vilja staldra við í þessum bransa verða þau að geta lagt sig algjörlega í hann. Og þá sé það ekki ég sem sé að reyna toga út leik og tjáningu heldur fyrst og fremst reyni ég að kenna þeim þá afstöðu, hvernig maður hagar sér sem atvinnumanneskja í þessu fagi.“ Nú hefur þú leikstýrt okkar stærstu söngkanónum í gegnum tíðina, en hvernig er að fást við byrjendur? „Það er ekki hægt að tala um þetta tvennt í sömu andrá, en gleymum því ekki að ég vann með því fólki líka þegar það var að stíga sín fyrstu skref. Ég setti upp fyrstu sýningar Íslensku óp- erunnar og lagði ríka áherslu á að byggja fólk listrænt upp á hinu dramatíska sviði, því þannig vex söngurinn líka, þetta er nefni- lega samofið. Að mínu mati get- ur enginn orðið góður söngvari nema hafa leikhæfileika líka. Ef þú hefur ekki innlifun og túlk- unarhæfileika er alveg sama hversu fallega rödd þú hefur. Það verður að vera gaman að hlusta á hana. Fyrsti þröskuldurinn er því alltaf að rífa burtu þenn- an vegg og nýta sér dramatískan kraft. Með öðrum orðum geri ég engan greinarmun á söngvurum og leikurum og geri nákvæmlega sömu kröfur til þeirra beggja.“ Fallegar sögur týnast í söngleikjum Sjálf steig Þórhildur fyrst á svið ellefu ára gömul í leikritinu Ferðin til tunglsins sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu. Í þá daga tíðk- uðust engar áheyrendaprufur enda segir hún þær vera hluta af markaðssetningu samtímans sem og orðræðan um að upp- götva börn. „Þarna mættu bara leikstjórar og fylgdust með okkur á dansæfingum, en ég var á þess- um tíma á öðru ári í listdansskóla Þjóðleikhússins. Eftir tímann var mér tilkynnt að ég fengi að vera með í sýningunni og veistu, mér leið eins og ég gæti hoppað hæð mína, svo ánægð var ég. Þetta var því minnisstæð reynsla sem ég tók gríðarlega alvarlega, enda var manni kennt frá byrjun að leikhúsið væri á þína ábyrgð og þannig fór ég á svið – með Þjóð- leikhúsið á öxlunum. Að mínu mati eykur það sjálfsvirðinguna að bera slíkt hlutverk og finnast ábyrgðin vera þín. Það er ekki sligandi heldur uppbyggilegt.“ Í kjölfarið fór boltinn að rúlla og Þórhildur kom víða við, bæði í leik- og óperusýningum. Eft- ir landspróf lagði hún svo land undir fót og hélt til Englands þar sem hún nam stund á ballett. „Stundum æxlast hlutirnir bara og þótt ég hafi byrjað í leikhús- inu sem lítil stelpa í ballettinum hefði ég alveg eins getað farið út og lært leiklist eða söng. Það var leikhúsið sem heillaði mig, ekk- ert eitt innan þess heldur leik- húsheimurinn eins og hann legg- ur sig. Sama hvort hann birtist í söng, leik eða dansi þá stefnir það alltaf að sama ósi. Á þeim tíma sem ég ólst upp var menningar- legur metnaður þjóðarinnar ann- ar en í dag. Þarna höfðum við ný- verið öðlast sjálfstæði og þá vildi þjóðin eiga hvort tveggja Sinfóníu og Þjóðleikhús. Ég held að margir hafi tekið því alvarlega að kynna menninguna fyrir börnunum sín- um, en þá ríkti líka önnur afstaða. Í dag er allt hólfað niður enda gerir markaðurinn það, vissu- lega voru sýnd barnaleikrit, en á þessum tíma var mun meira farið með börn á fullorðinsleikrit. For- eldrar mínir voru engir listamenn en það var mikið lesið á heimil- inu og bókmenntir ræddar. Móð- ir mín var mikil ljóðakona og fað- ir minn áhugasamur um tónlist. Það var farið með okkur systkinin í leikhús og þá ekkert endilega á barnasýningar heldur vorum við dubbuð upp á allt mögulegt, svo var manni bara sagt að þegja og hlusta.“ Þegar talið berst að minnis- stæðustu leiksýningunni nefnir Þórhildur strax Jónsmessunæt- urdraum. „Ég get ekki hafa verið meira en tíu ára því þarna hafði ég ekki stigið sjálf á svið en ég var algjörlega heilluð og keypti þenn- an ævintýraheim skilyrðislaust. Ég tók ekkert eftir því að sýningin hefði verið í bundnu máli og hafði á þessum tíma aldrei heyrt minnst á Shakespeare, en mér fannst þetta æðislegt allt saman og var upprifin í marga daga á eft- ir. Ég held að við leggjum of mikla áherslu á að börn þurfi að skilja allt, því upplifun er líka svo mikils virði. Í dag er öllu drekkt í hávaða og steypt í söngleiki sama hvað það er. Þá á ég ekki við að það megi ekki sýna börnum söngleiki en mér finnst það miður þegar fallegar sögur týnast í söngleikj- um. Ég sakna þess að sjá leikhús- ið sem sögu og samverustað, en það kann að vera íhaldssamt af mér. Ég held þó fast í þá skoðun, enda hef ég séð börn halda fyrir eyrun í leikhúsi, slíkur er hávað- inn og þau hafa nóg af honum. Sjálf myndi ég frekar vilja að leik- húsið byði börnum upp á kyrrð og upplifun, ævintýri og tilfinningar hvort sem verið er að hræða þau eða fá þau til hlægja eða gráta. Að vera tekin í tilfinningalegt ferða- lag er svo mikils virði.“ Fátt nýtt ögrandi og örvandi Sjálf segist Þórhildur vera latari að fara í leikhús en hún var. „Það er einfaldlega ekki margt sem kallar á mig. Ég held að þetta sé ekki óalgeng afstaða og ástríð- an til að vinna er sannarlega enn til staðar en staðreyndin er sú að þú sérð ekki margt tónlistarfólk á sinfóníutónleikum. Lengi vel fór ég í leikhús til að læra og það að horfa á margar sýningar er mik- ill háskóli fyrir leikstjóra, en svo kemur að því að það er fátt nýtt sem er bæði ögrandi og örvandi, en þegar það gerist hef ég auðvit- að gaman af því.“ Eiginmanni sínum, Arnari Jónssyni leikara, kynntist Þór- hildur eðli málsins samkvæmt í leikhúsinu en þau voru þá bæði aukaleikarar í Pétri Gauti. Það tók þau þó talsverðan tíma að ákveða formlega að fella hugi saman. „Ég hafði heyrt um þennan æðis- lega sæta strák í leiklistarskólan- um sem væri víst mikið talent og næstu sex mánuði þreifuðum við fyrir okkur, en þegar líða tók á vor ákváðum við að verða par. Ég hef alltaf verið hans strangasti gagn- rýnandi og þarna, þegar hann var ungur og allir dáðust að honum, var ég sú eina sem togaði hann niður. Ég hef aldrei verið hvorki móðir né eiginkona sem klapp- stýri mínu fólki enda finnst mér ég sýna mesta umhyggju með því að rýna til gagns. Það álít ég vera mitt hlutverk enda verð- ur hitt svo fljótt merkingarlaust. Mömmu finnst ég alltaf frábær, hvað þýðir það? Eftir þrjú skipti hættirðu að taka mark á því. Auð- vitað eiga ekki allir að standa í því að gagnrýna börnin sín á sviði, en sjálf er ég í faginu og byrjaði mjög snemma að gagnrýna Arn- ar grimmilega. Hann var ekkert alltaf hrifinn en ég held að það hafi ekki orðið honum til skaða.“ Áhættu fylgja hættur Saman eignuðust hjónin fimm börn og segist Þórhildur í góðlátlegum tón hugsa með hryllingi til þess tíma. „Í dag fæ ég hroll og skil ég ekki hvernig ég fór að þessu án þess að hafa upplifað það þannig á þeim tíma. Margir minntust á hvað ég væri heppin því Arnar væri alltaf með börnin og það gat auðvitað sært mig pínulítið, en ég hefði aldrei komist í gegnum þennan barnaþunga ein. Við vorum heppin með það að ekkert barna okkar vakti á næturnar, en á þessum tíma dvöldu mæðurnar í viku á spítalanum eftir fæðingu, þarna voru börnin vanin á reglu sem við héldum svo áfram. Ég tók aldrei neitt fæðingarorlof en blessuð börnin sváfu sem betur fer öll sína tólf tíma á nóttu og voru heilsuhraust. Ég held ég geti með sanni sagt að ég hafi aldrei vakað nótt með barni.“ Þórhildur segir þá hugsun aldrei hafa hvarflað að henni að láta barneignir hægja á framaferlinum. „Nei, við héldum bæði okkar striki samhliða barnauppeldinu. Þau komu auðvitað oft með mér í vinnuna, en þá fengu þau ekkert að hlaupa um leikhúsið og allra síst trufla nokkurn mann. Það var frekar að þau hnýttu í leikarana til að segja þeim ef þau hefðu ekki gert það sem mamma bað um í gær, en fólk hafði bara gaman af því. Á þessum vettvangi var ég aldrei til afnota fyrir þau sem mamma, enda var ég í vinnunni, en ég held að þeim hafi fundist þetta fínt, í það minnsta minnist ég þess ekki að þau hafi kvartað. Það var Íris Hauksdóttir iris@dv.is „Leikhúsið er harður húsbóndi en jafn- framt örlátur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.