Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 17
7. febrúar 2020 FRÉTTIR 17 kjötfars í Melabúðinni. Þetta eru ekki tattú- veraðir handrukkarar af erlendum upp- runa. Um 71 prósent af þeim karlmönnum sem sendu konur í kvennaathvarfið í fyrra eru íslenskir menn.“ Drífa segir það algengan misskiln- ing að ofbeldismenn séu siðblindingj- ar sem séu haldnir alvarlegum geðveil- um. Þvert á móti séu það hreinlega ekki nægilega margir karlmenn sem glími við slíka klíníska kvilla til að það geti svarað til fjölda þolenda heimilisofbeldis á Íslandi. „Það er engan veginn að samsvara þeim 700 málum sem lögreglan fer með á ári, það voru 600 sem leituðu í Bjarkarhlíð á síðasta ári, það voru næstum því 300 kon- ur sem komu í viðtal á Kvennaathvarfinu á síðasta ári, 150 sem komu í dvöl og 100 börn.“ Afsakanir til að sleppa við að taka ábyrgð á ofbeldinu Þátttakendur í rannsókninni með reynslu af heimilisofbeldi greindu frá þeim afsök- unum sem þeirra ofbeldismenn höfðu gef- ið fyrir ofbeldinu. Greindu þar margar kon- ur frá áþekkum afsökunum. Var þeim með einum eða öðrum hætti kennt um ofbeldið sem þær voru beittar, svo sem vegna þess að þær væru geðveikar, leiðinlegar, þær hafi beðið um þetta, þetta sé eina leiðin til að fá þær til að hlusta og þar fram eftir götum. Einnig hlupust ofbeldismenn und- an ábyrgð með því að kenna streitu, álagi, uppeldi og áfengis- eða fíkniefnaneyslu um ofbeldið. „Þarna er líka þessi þversögn. Ef ég kýli þig og segi svo: „Já, en þú ert svo óþolandi að ég bara réð ekki við mig. En ég lofa að gera þetta ekki aftur.“ Hvernig geta þeir lofað því að gera ekki eitthvað aftur, en á sama tíma neitað því að þetta hafi verið þeim að kenna? Og svo er það frasinn „að missa stjórn á sér“ sem mér er meinilla við. Þetta er ekki flogakast eða viðbrögð við raflosti eða þess konar. Annað er að taka ákvörðun um að gera eitthvað. Að taka upp stól og henda í konuna, eða halda henni niðri og setja hnéð í bringuna á henni eins og MMA-bardagaíþróttamaður. Þessir sömu menn tryllast ekki í kringum vini sína, þegar þeim gengur illa í gólfi. Þetta er svona valkvætt stjórnleysi. Ég veit um dæmi þess að lögregla var kölluð út í heim- ilisofbeldismáli þar sem fullt af eigum hafði verið eyðilagt þegar maður „missti stjórn á sér“, samt voru allir hlutirnir sem voru eyðilagðir hennar en ekki hans. Mað- urinn gat því valið út tilteknar eigur og hlíft sínum eigin í meintu stjórnleysi. Þú kýlir ekki fólk í gagnaugað óvart. Ég hef aldrei lent í því að minnsta kosti.“ Þurftu að ákveða sjálfar að fara Þátttakendur voru einnig spurðir hvort að- standendur eða fagaðilar hefðu getað gert eitthvað til að stuðla að því að þær færu fyrr úr sambandinu. Voru þar margar kon- ur sem greindu frá því að þær hefðu falið ofbeldið vel, þær hefðu farið í vörn ef of- beldið var borið undir þær og á endanum hefðu þær sjálfar þurft að taka ákvörðun um að fara. Aðrar hins vegar bentu á að nærumhverfi þeirra hefði mátt benda þeim á aðstæður, bjóða fram stuðning og minna þær á að þær væru ekki geðveikar og ættu betra skilið. Drífa segir að dropinn holi svolítið steininn í þessum málum. Þótt það sé ákvörðun þolandans að ganga út úr sambandinu þá geti aðstandendur sáð vissum fræjum með því að viðra áhyggjur sínar. „Ég held að maður komist á þennan blessaða botn fyrr ef það er einhver að pexa aðeins í manni. Þá veit manneskjan líka að einhvern grunar eitthvað og það sé ekki bara hún sem sé með eitthvert of- sóknarbrjálæði.“ Vona að skýrslan geti frætt og hjálpað Með útgáfu skýrslunnar vonar Drífa að þolendur og aðstandendur geti aflað sér upplýsinga um heimilisofbeldi. Skýrslan er sett fram á því sem Drífa vonar að sé að- gengilegt mannamál. „Við reyndum að hafa hana á manna- máli, aðgengilega og auðlesna og vonandi fræðandi. Vonandi lesa hana einhverjir sem geta þá haft samband við athvarfið og fengið ráðgjöf um að stíga fyrstu skrefin til að koma sér út úr sambandinu.“ Kvennaathvarfið skýtur ekki bara skjóls- húsi yfir þolendur heimilisofbeldis þegar þeir flýja ofbeldið. „Eitt af hlutverkum athvarfsins er að fá fólk í ráðgjöf. Konur koma og eru að spyrja hvort þær séu í of- beldissambandi. Þær eru kannski mjög hikandi, en fara svo að greina frá aðstæð- um sem eru ekkert eðlilegar. Konum er alltaf í sjálfsvald sett hvað þær gera. En hingað geta þær komið og greint frá að- stæðum og fengið heildrænan stuðning og þá fyrst og fremst staðfestingu á ofbeldinu. Á vefsíðu Kvennaathvarfsins er hægt að nálgast mikið af upplýsingum á níu tungu- málum. Svo sem um skilgreiningu á of- beldi. Hvernig það sé að koma í viðtal. Það þarf ekki að koma með vegabréf og það þarf ekkert að greiða fyrir heimsóknina. Þarna er mikið af upplýsingum líka varð- andi aðstæður þar sem börn eru í spil- inu sem og útlistun á því hvað sé heilbrigt samband og hvað sé það ekki.“ Með þessari grein má líta súlurit og dæmi um svör þátttakenda við nokkrum spurningum. Skýrsluna má svo lesa í heild sinni á vefsíðu Kvennaathvarfsins. n „Þetta er alls ekki gert til þess að skrímsla- væða ofbeldismenn, heldur þvert á móti“ n Skýrsla um líðan og upplifun þolenda heimilisofbeldis og persónuleikaeinkenni ofbeldismanna n Afbrýðisemi, tortryggni og stjórnsemi algeng persónueinkenni n Ofbeldismenn oft venjulegir, jakkafataklæddir Íslendingar Dæmi um afsakanir ofbeldismanna fyrir ofbeldinu: n Hann hefur ekki stjórn á sér n Ég gerði hann reiðan n „Þú ert svo leiðinleg“ n „Þú ert bara of viðkvæm“ n „Þú lést mig gera þetta“ n „Það var þér að kenna“ n Hann fékk svo slæmt uppeldi n Allir eru svo vondir við hann n Ég var að misskilja n „Ef þú létir ekki svona“ n Hann elskaði mig svo mikið n „Þú ert ekkert betri“ n Ég var geðveik n Var fullur n Hann var undir miklu álagi n Hann missti stjórn á sér n „Ég bara veit ekki hvað ég er sterkur“ Hvað myndir þú ráðleggja konum sem eru í ofbeldissambandi til að komast út úr því? -Dæmi um svör kvenna í rannsókninni. n Segja frá. n Leita í Kvennaathvarfið, finna sam- stöðu n Tryggja líkamlegt öryggi. Rjúfðu einangrunina, segðu frá, lestu þér til, leitaðu til annara. Þú ert ekki geðveik. n Að það er betra að vera einn en að vera í ofbeldissambandi n Það er honum að kenna en ekki þér ef hann beitir ofbeldi. Það er ekki hægt að hjálpa þeim sem vill ekki hjálp, það er ómögulegt fyrir þig að breyta honum. Þú þarft að stíga frá og vinna í þinni hamingju. Þú ert ekki búin að brenna allar brýr að baki, þú ert ekki ein n Það er alltaf leið út. Taka fyrsta skrefið. n Maður breytir ekki öðrum. n Standa með sjálfum sér, þetta lagast aldrei. Aldrei líta til baka n Undirbúðu þig vel. Jafnvel fara út úr bænum. Ekki hafa nein samskipti. Þú ert ekki ein, ekki skammast þín, fyr- irgefðu sjálfri þér, þetta er ekki þér að kenna, þetta verður erfitt, þetta getur komið fyrir alla, þú átt stuðning, fáðu alla aðstoð, þú átt allt gott skilið (þó þér liði ekki þannig) þú getur þetta, þú getur farið og þú mátt það, þú skiptir mál n Ekki týna sjálfri þér. Eins hefði ég viljað fá að vita það á skýrari hátt hve algengt er að menn noti hótanir um sjálfskaða til kúgunar n Hélt ég gæti þetta ekki án hans, fjár- hagslega. Kom reyndar í ljós að ég hef það miklu betra, meðal annars fjár- hagslega, án hans. n Ekkert er eins áhrifaríkt og höfn- un, hann hafnaði mér stöðugt þannig að ég reyndi alltaf að vinna hann aft- ur og fá viðurkenninguna að einhver vill mig. Viðurkenningin síðan blind- aði mig. Vinkonur mínar fíluðu hann ekki, ég var mjög þrjósk en þegar þær hættu að ergja sig á „mínu vali“ þá fóru að renna á mig tvær grímur – þær höfðu rétt fyrir sér. Það var mjög erfitt að sætta sig við að þurfa að kyngja því. Mér fannst erfitt að stíga skref- ið því hann beitti mig „bara“ andlegu og fjárhagslegu ofbeldi. En, ég var alltaf með litla rödd sem hvíslaði að ég ætti betra skilið. Líf með ofbeldis- manni er svo ýkt og öfgafullt, þegar maður hættir með honum gæti komið tilfinning flatneskju og tómleika, lit- laust og líflaust. Það er eðlileg tilfinn- ing. Best er að segja vini eða ættingja frá hvernig manni líður, veldu bara einhvern sem þú treystir. Hlustaðu á þínar tilfinningar, hugsanir og treystu sjálfri þér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.