Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 7. febrúar 2020 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Ég þekki barn É g þekki barn. Barn sem, rétt eins og öll önnur börn, kom í heiminn án fyrirfram ákveðinna hugmynda um hvernig það yrði. Sem sá ekki liti, stétt eða stöðu. Barn sem smælaði framan í heiminn og vonaði að heimurinn gerði slíkt hið sama. Ég þekki barn. Barn sem fæddist í arma yndislegra for- eldra. Barn sem var boðið inni- lega velkomið í heiminn. Barn sem var knúsað og kysst, klætt og fætt. Barn sem var gefið nafn, gef- ið húsaskjól, gefin hlýja. Ég þekki barn. Barn sem óx úr grasi. Allt í einu hætti heimurinn að smæla framan í það. Hlýjan, kossarnir og knúsin voru á bak og burt. Í staðinn kom hávaði, of- beldi, grimmd. Áfengi, partí og rugl. Barn sem lifði skyndilega við ótta og óöryggi. Vissi ekki hvort yrði kvöldmatur þann daginn. Vissi ekki hvort það fengi kvöld- sögu fyrir svefninn. Vissi ekki hvort það yrði kysst góða nótt. Ég þekki barn. Barn sem var sent inn í herbergi þegar að partíið fór úr böndum. Látið dúsa þar á meðan lögreglumennirnir þrifu upp blóðið á eldhúsgólfinu. Síðan hleypt út þegar öll um- merki ofbeldis gærkvöldsins voru horfin. Hvar voru mamma og pabbi núna? Þau komu heim að- eins seinna og létu eins og ekk- ert hefði í skorist. Keyptu íburðar- miklar gjafir og elduðu sparimat. Allt var með kyrrum kjörum í smá stund. Ég þekki barn. Barn sem faldi sig undir rúmi og verndaði yngri systkini sín á meðan foreldrarn- ir rifust. Á meðan foreldrarnir slógust. Sussaði á yngri systkinin og hélt fyrir augu þeirra. Von- aði að þau sæju ekki. Vonaði að þau heyrðu ekki. Vonaði að þau fyndu ekki fyrir agnarsmáu blóð- dropunum sem lentu á dúnmjúk- um vanganum, líkt og regndrop- inn sem fellur svo þunglamalega til jarðar og splundrast í þúsund agnir. Ég þekki barn. Barn sem var lamið af foreldrum sínum. Barn sem var úthúðað. Látið líða eins og það væri einskis virði. Barn sem var hrætt um líf sitt. Barn sem var oft nær dauða en lífi. Ég þekki barn. Barn sem sam- félagið sneri baki við. Horfði í hina áttina. Var alveg sama. Ég þekki barn sem varð að full- orðnum einstaklingi. Barn sem hætti að smæla því það var nokk- uð ljóst að heimurinn myndi aldrei endurgjalda það. Barn sem var fullt af reiði. Stútfullt af öllum brostnum loforðunum. Fullt af glötuðum draumum og þrám. Barn sem skuldaði samfélaginu ekkert. Barn sem óx úr grasi og hætti að vera hrætt um líf sitt. Var bara alveg skítsama um hvort það myndi lifa eða deyja. Skítsama um allt. Þetta barn er bara eitt barn af þúsundum barna sem lifa við óboðlegar og hættulegar heimilis- aðstæður, sem gengur þvert gegn Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna og allri heilbrigðri skynsemi. Þessi börn týnast í kerfinu. Þessi mál eru of erfið til að tala um eða gera nokkuð í. Þess vegna horf- um við bara í hina áttina og leyf- um börnunum að týnast. Í stað- inn er barist með kjafti og klóm fyrir því að hreinsa Ríkið með lög- mannaher fyrir Mannréttinda- dómstól Evrópu. Mannréttinda- dómstól. Í staðinn er milljónum eytt í Bragga, Mathallir, hjólastíga, pálmatré. Í staðinn eru greiddar út himinháar starfslokagreiðsl- ur. Veittur skattafsláttur. Lækkuð veiðigjöld. Forgangsröðunin er bogin, nánast brotin. Ég held að við sjá- um það öll, því ef ég þekki þetta barn þá þekkir þú eitt líka. Ekki loka augunum fyrir því. Ekki horfa í hina áttina. n Skapandi skaphundur Sigríður Á. Andersen hefur ekki mikla trú á því að yfir- deild Mannréttindadómstóls Evrópu komist að annarri niðurstöðu en undirdeild dómstólsins í Landsréttar- málinu. Hefur hún gengið svo langt að efast um að málsmeðferðin verði yfir höf- uð réttlát enda hafi dómstóll- inn gengið nokkuð langt í að seilast yfir á valdsvið aðildar- ríkjanna. Dómstóllinn beiti því sem kallist skapandi lög- skýring sem þýði að hann túlki stöðugt samninginn með nýj- um og nýjum hætti. Slík lög- skýring kallast einnig breyti- leg lögskýring og felst í því að dómstólar geti túlkað ákvæði laga með nýjum hætti ef tíðar- andinn kallar eftir því. Svona eins og skapandi skipun Sig- ríðar á dómurum við Lands- rétt, þar sem hún túlkaði tíðar- andann með þeim hætti að hún gæti vikið frá lögbundnu verklagi við skipun dómara til að koma fleiri konum að, þar sem tíðarandinn kallaði eftir því. Spurning vikunnar Besta íslenska stuðlagið? „„Can’t Walk Away“ með Hebba. Geggjað lag og á alltaf við.“ Ingi Þór Bauer „Í fljótu bragði myndi ég segja „Eitt lag enn“ með Stjórninni.“ Kristín Anný Jónsdóttir „Ég kemst alltaf í geggjaðan gír þegar ég hlusta á SíSí með Grýlunum.“ Lovísa Tómasdóttir „Tvímælalaust „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig.“ Það taka allir undir það þegar lagið fer í spil- un enda kemst engin með tærnar þar sem meistari Ragnar Bjarnason hefur hælana.“ Valdimar Víðisson Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Kröfuspjöld á lofti Eflingarfólk hefur verið áberandi í fréttum undanfarið. M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.