Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Blaðsíða 32
32 FÓKUS - VIÐTAL 7. febrúar 2020 „Miklu orkufrekara að vera í fýlu en að vera jákvæður“ n Stórar áskoranir í vændum n Vakinn í rúminu af heimsókn Stuðmanna n Segir hroka ekki fara sér vel Ú tvarpsmaðurinn og smiðurinn Ómar Úlfur Eyþórsson er landsmönn- um að góðu kunnur en hann er umsjónarmaður Síðdegisþáttarins Ómar á X-977 og var nýlega ráðinn dag- skrárstjóri stöðvarinnar. Ómar er einstak- lega lífsglaður og kemur ávallt til dyranna eins og hann er klæddur. Hann er þekktur fyrir að vera laus við alla tilgerð og tekur líf- inu með stóískri ró og það smitar út frá sér. Á þessu ári fagnar Ómar bæði fertugsaf- mæli sínu og ellefu árum í edrúmennsku. Í samtali við DV tjáir hann sig um áskoran- irnar fram undan, hið sífellt krefjandi föð- urhlutverk, eftirminnilegan Stuðmanna- hitting, æskuárin og skemmtanalífið á „hálfvitaárunum,“ eins og hann orðar það hressilega. Draumur á sviði Spurður út í dagskrárstjórastöðuna segir Ómar að engar meiriháttar stefnu- breytingar verði á útvarpsstöðinni þótt alltaf megi efla X-977, sem hefur verið í mikilli sókn undanfarið. Það verði gert í nánu samstarfi við íslenskt tónlistarfólk og tónlistarbransann í heild sinni, en Ómar fullyrðir að með réttum tækifærum og smá fjármagni geti hann persónulega séð til þess að stöðin verði sú stærsta á landinu. „Ég elska útvarpsmiðilinn. Eftir að ég gerðist dagskrárstjóri langar mig ekkert til að vera yfirmaður sem tekur fólk á tepp- ið, en ég mæti samt í vinnuna á hverjum degi með krepptan hnefa því mig langar að styrkja X-ið. Það er svo gaman að hafa þennan hvata og gera eitthvað betra. Hins vegar, þegar ég er í loftinu, legg ég dag- skrárstjórann til hliðar og er útvarpsmað- urinn Ómar,“ segir hann. „Ég vil peppa starfsfólkið, prófa nýja og ferska hluti og fá hlustendur til að halda með X-inu, það er mikilvægt. Stöðin getur leyft sér að vera öðruvísi, að vera ekki fyrirsjáanleg og vera skemmtileg. Þetta á að vera gaman, bæði fyrir dagskrárgerðarfólkið og hlustand- ann.“ Þá minnist hann á eina hugmynd sem hann dreymir að verði að veruleika ein- hvern daginn. „Ég á mér stóra drauma í leik og starfi. Mig langar til dæmis einhvern tímann að taka einn þátt af Síðdegisþættinum Ómari og gera hann á sviði. Þá væri band að spila intróið, ég kæmi inn í hvítum jakkafötum og með bindi, tæki viðtöl og hljómsveitin myndi alltaf spila lög inni á milli, af ýms- um gerðum. Það væri jafnvel hægt að taka þetta upp fyrir sjónvarp og gera þetta smá- vegis eins og flott „Netflix Special“.“ Vakinn af Stuðmönnum Ómar hefur alla ævi verið með músík í hjarta sínu og mikill áhugamaður um all- ar gerðir tónlistar. Hann þakkar foreldrum sínum öðrum fremur fyrir að hafa skapað rétta umhverfið, þar sem hægt var að efla og styrkja þennan áhuga. „Það var töluvert um músík á mínu heimili mínu þótt hvorugur foreldrar mínir hafi verið eitthvað í músík. Mamma söng til dæmis alltaf og var reglulega með útvarp- ið á eða plötur á fóninum. Þess vegna er ég alveg jafn tengdur við gamalt og gott ís- lenskt efni og rokkið, enda voru hinar ólík- legustu plötur til í safni foreldra minna,“ segir Ómar og telur upp listamenn á borð við Gunnar Þórðarson og Villa Vill, en það var ein tiltekin plata sem kallaði til hans og honum þótti sérlega athyglisverð. Það var platan Bat out of Hell með Meatloaf. „Ég horfði bara á plötuumslagið og hugsaði: „Þetta er sko þungarokk,“ en svo fattaði ég það ekki fyrr en mörgum árum seinna að svo var ekki,“ segir hann og rifj- ar upp minningu sem hefur verið honum lengi kær. „Stuðmenn voru líka í mikilli spilun hjá foreldrum mínum og ég gleymi því aldrei þegar Stuðmenn komu í heimsókn í partí eftir ball, eins og ekkert væri eðlilegra. Þá var ég sex ára og flestir meðlimir bands- ins kíktu við. Ég var vakinn upp af heim- sókn Stuðmanna og fékk í fyrsta skipti stjörnuglampa í augun. Mér leið eins og Bítlarnir væru komnir heim til mín. Þeir gáfu mér Stuðmannabókina, sem ég á enn- þá áritaða.“ Platan sem öllu breytti Ómar segir uppvaxtarár sín hafa einkennst af frjóum og flottum tíma fyrir íslenska tónlist. „Þá vorum við með hljómsveit- ir eins og Þey, Purrk Pillnikk, Utangarðs- menn, Fræbblana, Tappa Tíkarrass og fleiri. Það var svo mikill kraftur og gredda í þessu. Þetta var svo á móti straumnum,“ Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Framhald á síðu 34 M Y N D IR : E Y Þ Ó R Á R N A S O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.