Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Page 40
40 7. febrúar 2020STJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 9.–15. febrúar
Þú fyllist miklum innblæstri eftir smá
ládeyðu í lífinu. Þú sest við tölvu eða tek-
ur þér minnisbók í hönd og skrifar niður
markmið af miklum eldmóð. Þú ert afar
drífandi þessa dagana og hrífur fólk með
þér, sem er afar mikilvægt þegar maður
vill ná markmiðum sem eru afar háleit.
Það er ekki nóg að bara láta sig dreyma
– það þarf líka að framkvæma svo
draumarnir geti ræst. Þú nærð að vinna
alls konar fólk á þitt band og nærð fullum
tökum á listinni að spinna í kringum þig
tengslanet. Þú veist nákvæmlega hvað
þú þarft að gera til að koma hugmyndum
þínum í framkvæmd og ert komin/n með
rétta fólkið til verksins.
Það leynist lítill uppreisnarseggur í þér
þessa dagana og þú neitar að láta setja
þig í fyrirfram ákveðna stærð af formi.
Þú vilt blómstra, rasa út og klæða þig í
ögrandi klæðnað og það fær þig ekkert
eða enginn stoppað. Þú fylgir hjartanu
sem aldrei fyrr og það hefur afar góða
hluti í för með sér.
Þú hefur engan húmor fyrir fólki sem
ræðst inn í þitt persónulega rými án þess
að gera boð á undan sér. Þú vilt hafa
þitt fyrir þig og engan annan og berst
með kjafti og klóm fyrir því. Það er ekki
oft sem þú ert ekki til í glens og stuð en
þessa vikuna viltu helst vera ein/n með
hugsunum þínum og löngunum.
Þú ert nýbúin/n að taka stóra ákvörðun
sem þú í fyrstu varst ánægð/ur með.
Síðan fara að renna á þig tvær grímur og
efinn lætur á sér kræla. Þú skalt hlusta á
efann, hann kemur ekki að ástæðulausu.
Getur verið að þú hafir verið að loka aug-
unum fyrir sannleikanum? Því fyrr sem þú
horfist í augu við hann, því betra.
Vá, meyja! Þú ert í svaka stuði þessa dag-
ana. Þér finnst eins og þú sért að losna
við hlekki og sért loksins frjáls! Þú ferð
út á meðal fólks og nýtur þess í fyrsta
sinn í langan tíma. Þú skapar rými til að
hitta alla sem þú elskar og gerir góðverk
hægri, vinstri. Þetta er góður tími fyrir þig
meyja og þú skalt muna hvernig tilfinning
þetta er.
Þú nærð að koma svo miklu í verk, enda
ertu búin/n að læra hvernig þú getur nýtt
tíma þinn sem best og hefur losað þig
við leiðinlega ávana í leik og starfi. Þú
þarft samt að varast að taka of mikið að
þér. Þú veist hvernig það endar – þú gerir
ekkert eins vel og þú vildir og veldur þér
vonbrigðum.
Leyfðu listamanninum innra með þér að
leika lausum hala – hann fær ekki svo oft
að fara út að leika. Þú ert svo skapandi,
en mundu að til þess að skapa af heilum
hug þarf maður að henda öllum fordóm-
um og fyrirfram ákveðnu hugmyndunum
út um gluggann. Annars nær maður ekki
árangri.
Nú þarftu að taka á honum stóra þínum
og hreinsa loftið á milli þín og manneskju
sem stendur þér afar nærri. Það er ekkert
vit í að eyða ævinni í að pirra sig á hlutum
sem eru orðnir alltof stórir í hausnum þín-
um, því þú hefur ekkert rætt þá. Grafðu
stríðsöxina og haltu áfram með lífið.
Þú ert klár og skemmtileg/ur og þessir
eiginleikar verða til þess að þú verður
hrókur alls fagnaðar í veislu sem haldin
verður bráðlega. Í þessari veislu hittir þú
manneskju sem þú munt bindast ævi-
löngum vinaböndum. Það kemur þér á
óvart, því þú hittir ekki oft fólk sem skilur
þig fullkomlega.
Fjármálin eru í fyrirrúmi þessa vikuna,
en það er alls ekki leiðinlegt. Þig dreymir
stóra drauma en nú er komið að því að
taka þessa drauma úr höfðinu, setja þá
niður á blað og búa til fjárhagsáætlun
um hvernig þú ætlar að ná þeim. Loksins
verða fjármálin skemmtileg því það er
fátt skemmtilegra en að láta draumana
rætast.
Þú ert að spá í að fara út í eigin rekstur en
þú ert í basli með að finna hvað er svona
sérstakt við þig. Af hverju ætti fólk að
velja þig? Það er ágætt að velta slíku fyrir
sér við og við en það er einnig mikilvægt
að fara ekki gegn eigin sannfæringu –
mundu það vel.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
Lesið í tarot Loga
Afrekspar fjölgar sér -
Svona eiga þau saman
n 9. febrúar Egill Ólafsson, söngvari og leikari, 67 ára
n 9. febrúar Ólafur Páll Torfason „Opee“, 36 ára
n 11. febrúar Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona, 33 ára
n 11. febrúar Sigríður Hagalín Björnsdóttir sjónvarpskona, 46 ára
n 12. febrúar Ingólfur Sigurðsson knattspyrnumaður, 27 ára
n 14. febrúar Haukur S. Magnússon tónlistarmaður, 39 ára
n 15. febrúar Margeir Pétursson skákmeistari, 60 ára
Gullslegin velgengni
F
jölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson
komst í hann krappan í vikunni
og vakti upp úlfúð
þeirra Íslendinga
sem búsettir eru á Spáni.
Logi er þekktur fyrir
hispurs lausa framkomu
en DV ákvað að leggja tarot
fyrir Loga og rýna í spilin.
Lesendum DV er bent á að
þeir geta dregið tarotspil á
vef DV.
Jarðtenging
Fyrsta spilið sem kemur upp
hjá Loga er Myntás. Logi hefur
í auknum mæli leitast eftir því
að ná jarðtengingu og innri ró.
Það hefur reynst honum vel og hef-
ur hann skilið rótleysi og óstöðugleika
eftir í fortíðinni. Friður er í hjarta hans
og þessum frið fylgir góðmennska og
náungakærleikur í meira mæli. Hann
leitast við að hjálpa náunganum
og kann að meta umhverfi
sitt mikið betur. Með
ró og frið kemur meiri
þörf fyrir líkamlega
snertingu, en Logi þarf
að hlusta á langan-
ir sínar og leyfa sér að
njóta tilverunnar.
Fastur í rútínu
Svo er það 4 bikar-
ar. Þótt einkalífið sé
í blóma finnst Loga
hann vera fastur í
rútínu utan heimilisins. Það er ekki gott fyrir mann
eins og hann og nær hann ekki að
þroskast ef hann er fastur í sömu
förunum daginn út
og inn. Logi þarf
samt að læra að meta
það sem hann á og
upplifir, staldra við hér
og þar og líta yfir farinn
veg og allt það góða sem
hann hefur gert. Hann
þarf samt á breytingu á
halda, en þarf ekki að ör-
vænta í þeim efnum.
Óviðjafnanlegt tækifæri
Loks er það Keisarinn.
Stöðuhækkun sem tengist
starfi Loga eða nýtt starf er fram undan
og afar spennandi. Hann stendur frammi
fyrir tækifæri sem birtist sjaldan og þarf
að kanna möguleika framtíðarinnar gaum-
gæfilega. Skipulag og hagkvæmni
mun leiða Loga að settu
marki næstu misseri.
Það er þó merkilegra
að nú kemur náunga-
kærleikurinn sér vel
því velferð náungans
kemur Loga lengra
en hann hafði órað
fyrir. Spennandi
tímar eru á næsta
leiti og verður vel-
gengnin gulli
slegin. n
A
freksparið Frederik Aegidius og Annie Mist
Þórisdóttir eiga von á sínu fyrsta barni.
Von er á krílínu þann 5. ágúst og því lék DV
forvitni á að vita hvernig Frederik og Annie
Mist eiga saman, ef litið er til stjörnumerkjanna.
Frederik er krabbi en Annie Mist er meyja og því
er þetta samband afar sterkt og jarðbundið. Þetta
samband getur orðið sífellt betra með hverju árinu
en bæði merki eru mjög öguð og drifin áfram af því
að ná sem lengst, á hvaða sviði sem er.
Meyjan og krabbinn eru einlæglega trú hvort
öðru, enda hvorugt merki hannað til að eiga í létt-
vægum ástarsamböndum. Bæði þessi merki þurfa
sterka og sanna ást og einsetja sér að láta þá ást lifa
ævina á enda. Þau virða hvort annað afar mikið
og þó að sambandið hafi hugsanlega farið hægt af
stað þá hefur það styrkst jafnt og þétt.
Krabba og meyju er sama um allt sem er yfir-
borðskennd og búa bæði merkin yfir sterkri rétt-
lætiskennd. Þau kunna vel við hið efnislega en
geta eingöngu notið þess ef þau hafa unnið fyrir
því. Þau vilja sko ekkert gefins. Það eina sem get-
ur valdið kergju í þessu sambandi er ef gagnrýni
meyjunnar fer fyrir brjóstið á hörundsára krabban-
um. Krabbinn þarf hins vegar að skilja að það er í
eðli meyjunnar að benda á það sem hún sér og það
má aldrei taka gagnrýni hennar persónulega. n
Frederik
Fæddur: 11. júlí 1987
Krabbi
n hugmyndaríkur
n þrjóskur
n traustur
n með mikinn sannfæringarkraft
n óöruggur
n skaphundur
Annie Mist
Fædd: 18. september 1989
Meyja
n metnaðarfull
n traust
n góð
n vinnuþjarkur
n of gagnrýnin
n feimin