Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Side 6
6 7. febrúar 2020FRÉTTIR
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Ú T S A L A
Ú T S A L A
Ú T S A L A
20 - 50 %
AFSLÁTTUR
Í VERSLUN OKKAR
Margdæmdur fjársvikari
heldur uppteknum hætti
n Gunnar Rúnar Gunnarsson hefur margsinnis verið dæmdur fyrir fjársvik og
kynferðisbrot n Siglir undir fölsku flaggi á sölusíðum n Fjölmargir í sárum
H
ann mun aldrei hætta. Það
er alveg á hreinu. Það eina
sem mun leiða til þess að
hann hætti er ef fólk hættir
að taka mark á því sem hann seg-
ir,“ segir Alexander Freyr Sigurðs-
son Joensen, en hann er einn af
þeim sem segjast hafa farið illa út
úr viðskiptum sínum við Gunnar
Rúnar Gunnarsson. Gunnar Rún-
ar hefur margsinnis verið dæmd-
ur fyrir fjársvik og kynferðisbrot
og hefur DV fjallar ítarlega um
brot hans undanfarin ár. Hann
hlaut síðast fangelsisdóm árið
2018, fyrir brot á skattalögum
en virðist nú halda uppteknum
hætti, með því að skrá sig undir
öðru nafni á sölusíðunni Bland.
is. Þar hefur hann meðal annars
boðið fólki að leigja iðnaðarhús-
næði. Gunnar Rúnar hefur greint
frá því fyrir dómi að hann hafi
verið metinn greindarskertur.
Margdæmdur fyrir ýmis brot
Gunnar Rúnar Gunnarsson hét
áður Gunnar Finnur Egilsson.
Sakaferill hans nær aftur til ársins
1995.
Árið 2015 kom Gunnar Rúnar
við sögu í fréttaskýringaþættin-
um Brestum en þátturinn fjallaði
um kennitöluflakk. Var Gunnar
þar titlaður sem „útfararstjóri“,
en þar er átt við þann sem lepp-
ar einkahlutafélög sem eru á leið
í þrot, gegn greiðslu, og kemur
þannig fyrri eigendum félaganna
frá því að nafn þeirra verði tengt
við gjaldþrotið.
Þá hefur Gunnar Rúnar einnig
hlotið dóma fyrir kynferðisbrot.
Árið 2007 var hann dæmdur í
þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir
að nauðga andlega veikri stúlku,
á meðan hún lá veik uppi í rúmi.
Hann hafði þá tvisvar áður verið
dæmdur fyrir að brjóta kynferðis-
lega á tveimur þrettán ára stúlk-
um, fyrra brotið átti sér stað 2001
og það seinna árið 2003.
Árið 2016 var hann, ásamt
þremur öðrum, hnepptur í
gæsluvarðhald í tengslum við 50
milljóna króna peningaþvætti
sem komst upp hjá fjármálastofn-
un vegna óeðlilegrar millifærslu,
en málið var umfangsmikið og
teygði anga sína til þriggja heims-
álfa, Afríku, Evrópu og Asíu.
Þá var seinast greint frá því
árið 2018 að Gunnar Rúnar hefði
verið dæmdur í sex mánaða
fangelsi fyrir meiriháttar brot
gegn skattalögum, en brotin áttu
sér stað þegar hann starfaði sem
framkvæmdastjóri tveggja fé-
laga, Listflísar og 36 ehf. Fyrir
dómi sagðist Gunnar hafa verið
svokallaður útfararstjóri yfir
36. ehf., en hét því fram að hann
hefði ekki „vitað hvað hann væri
að gera á tímabili“ því að hann
hefði verið metinn greindar-
skertur.
Undir fölsku flaggi
Alexander Freyr Sigurðsson
Joensen er, sem fyrr segir, einn
af þeim sem segjast farið illa út
úr viðskiptum sínum við Gunnar
Rúnar.
Í samtali við DV segist Alex-
ander hafa komist í kynni við
Gunnar Rúnar í gegnum sölusíðu
Bland.is í desember síðastliðn-
um. Segist hann hafa selt Gunnari
Rúnari bíl í
gegnum síðuna, en Gunnar Rún-
ar hafi skráð sig inn á síðuna und-
ir öðru nafni, Finnur Oddur Sig-
urðsson. Alexander segist hafa
selt Gunnari Rúnari bílinn á 200
þúsund krónur og samþykkt að
selja honum bílinn á afborgun-
um, þremur samtals.
„Hann sagði mér að hann héti
Finnur Oddur. Þess vegna ég gat
ekki gúglað glæpi hans áður en
ég gerði við hann samning um
afborganir á bílnum. Hann bauð
mér fyrst bíl í skiptum, bíl sem
hann átti ekki. Ég sagði nei, og
hann seldi þá stelpu þann bíl.
Stuttu seinna var hún handtekin
á bílnum af því að raunverulegur
eigandi hans var þá búinn að til-
kynna stuldinn.“
Alexander segist sjálfur hafa
þurft að greiða 50 þúsund krónur
fyrir skoðun á bílnum. Hann seg-
ir Gunnar Rúnar hafa greitt helm-
inginn af því sem hann skuldaði,
100 þúsund krónur, og síðan lof-
að að restin myndi skila sér þann
10. desember. Það gerðist aldrei.
Alexander segist hafa gripið til
örþrifaráðs að lokum og þann
24. janúar síðastliðinn birti hann
færslu á Facebook-síðu sinni
ásamt mynd af Gunnari Rúnari.
Í færslunni varar Alexander fólk
við að eiga viðskipti við Gunnar
Rúnar.
„Hann er lygari og svikari sem
hefur stundað svona viðskipti í
meira en 30 ár samkvæmt heim-
ildarmanni sem ég lofaði að vera
nafnlaus,“ ritar Alexander meðal
annars í færslunni.
Færslan stendur ennþá, og
hafa yfir 300 manns deilt henni
áfram. Þá hafa fjölmargir tjáð sig
á samfélagsmiðlinum og greint
frá sambærilegri reynslu af við-
skiptum við Gunnar Rúnar.
Óttast um börnin sín
Í samtali við DV segist Alexander
enn bíða eftir greiðslunni frá
Gunnari Rúnari. „Hann er núna
farinn að fá menn til þess að tala
við mig og hvetja mig til þess að
taka færsluna niður. Þekkta of-
beldismenn og ákærða fyrir
meira en bara ofbeldi. Núna vill
hann bara eiga samskipti við kon-
una mína en ekki mig, þannig að
ég veit ekki alveg hvað hann ætlar
sér núna á næstu dögum.“
Alexander kveðst einnig hafa
áhyggjur af börnum sínum, því
Gunnar Rúnar hefur áður verið
dæmdur fyrir brot gegn börnum.
Alexander segir lögregluna lítið
geta gert í málinu þar sem litið sé
á það sem „einkamál“.
Alexander segir lögfræðing á
vegum Gunnars Rúnars hafa haft
samband við sig og beðið sig um
að „gera aðrar ráðstafanir varð-
andi að rukka hann“.
„Ég ákvað að gera þetta eins
löglega og ég gat með því að vara
fólk við honum og fyrirtækinu
hans.“
Þá segir Alexander að fjöldi
fólks hafi haft samband við hann
eftir að hann vakti athygli á mál-
inu, og margir hafi þakkað hon-
um fyrir viðvörunina.
„Einn sem hafði samband á
inni hjá honum 700.000 krónur.
Annar á inni hjá honum 500.000.
Þá var einn sem hafði samband
og sagðist hafa verið að vinna hjá
fyrirtæki sem á inni fimm millj-
ónir hjá Gunnari. Ég átti gott
spjall við einn þeirra í síma og við
vorum sammála um að Gunnar
sé rosalega klókur einstaklingur
þegar kemur að svona hlutum.
En á sama tíma er hann algjör vit-
leysingur, af því að hann er alltaf
gómaður að lokum.“ n
„Hann er lygari og svikari
sem hefur stundað svona
viðskipti í meira en 30 ár
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is