Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Qupperneq 14
14 7. febrúar 2020NEYTENDUR
Sundaborg 1
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
BANNER-UP STANDAR
Ódýr
og einföld
leið l að
kynna
þína vöru.
HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ
ÖRORKUBÆTUR?
O
ft heyrist talað um örorku-
bætur, skerðingu á þeim
og stöðu þeirra sem slíkar
bætur þiggja. Hins vegar
vita ekki alltaf allir nákvæmlega
hvað felst í slíkum bótum. Hvaða
ólíku liðir teljast sem örorkulíf-
eyrir? Hvað er króna á móti krónu
og hvernig virkar skerðingin? DV
tók saman nokkur hagnýt atriði
um örorkulífeyri.
Hvað er örorkulífeyrir?
Samkvæmt upplýsingum
á vef Tryggingastofnunar
er örorkulífeyrir „ætlaður
einstaklingum á aldrinum 18–
67 ára sem geta ekki unnið
fulla vinnu sökum skertrar
starfsgetu. Sótt er um að fara
í örorkumat þar sem færni er
metin.“ Örorkumat fer fram á
læknisfræðilegum forsendum
og er yfirleitt tímabundið. Þetta
felur í sér að á vissra ára fresti
þurfa örorkulífeyrisþegar að
fara í endurmat, vilji þeir halda
lífeyrisgreiðslum sínum. Eftir að
örorka er metin er hægt að sækja
um afturvirkar greiðslur, allt að
tvö ár aftur í tímann, en þá þarf
að sýna fram á að þeir þættir sem
örorkumat grundvallast á hafi
verið til staðar á því tímabili.
Hvað felst í örorkulífeyri?
Örorkugreiðslur eru ekki ein
föst krónutala sem gildir fyrir
alla heldur eru þær samsettar úr
ólíkum þáttum.
Fyrst ber að nefna
tekjutrygginguna, sem er oft
stærsti hluti örorkulífeyris. Óskert
tekjutrygging er rúmlega 150
þúsund krónur á mánuði.
Næst er aldurstengd
örorkuuppbót. Hún verður hæst
um 50 þúsund krónur hjá þeim
sem ungir eru fyrst metnir til
örorku. Hún lækkar svo eftir því
hve gamall öryrki er þegar hann
fær fyrsta örorkumatið.
Á móti aldurstengdu
örorkuuppbótinni kemur
framfærsluuppbót. Hún er
hærri eftir því sem aldurstengda
örorkuuppbótin er lægri.
Síðan er hinn eiginlegi
örorkulífeyrir sem óskertur er um
48 þúsund á mánuði.
Viðbótargreiðslur
Ofan á þá tekjuliði sem greint
er frá hér að framan geta komið
viðbótargreiðslur sem taka mið af
aðstæðum lífeyrisþegans.
Heimilisuppbót um 50
þúsund krónur á mánuði geta
þeir öryrkjar fengið sem búa einir.
Óskattskyldur barnalífeyrir, 34
þúsund á barn, greiðist til öryrkja
með barn á framfæri.
Mæðra- og feðralaun greiðast
til einstæðra foreldra sem eru
með fleira en eitt barn á framfæri,
10.296 krónur vegna tveggja
barna og 26.769 vegna þriggja
barna eða fleiri.
Uppbót vegna rekstrar
bifreiðar geta þeir
örorkulífeyrisþegar fengið sem
hafa gilt hreyfihömlunarmat
og eiga bifreið. Uppbótin er
óskattskyld og er óskert 17.180
krónur á mánuði.
Skerðingar á greiðslum
Ólíkir liðir örorkulífeyris
skerðast með ólíkum hætti.
Þekktasta skerðingarreglan
nefnist króna á móti krónu
skerðing en slík skerðing á við um
framfærsluuppbótina. Króna á
móti krónu skerðingin felur í sér að
hver króna af tekjum lífeyrisþega
skerðir framfærsluuppbótina
um krónu. Þessi skerðingarregla
hefur verið harðlega gagnrýnd
og hefur Öryrkjabandalagið
meðal annara kallað eftir því
að framfærsluuppbótin verði
afnumin sem sjálfstæður
tekjuliður og færður inn í
tekjutrygginguna. Henni var þó
breytt til batnaðar á síðasta ári
og nemur nú skerðingin aðeins
65% af skattskyldum tekjum eða
skerðingu um 65 aura á móti
hverri krónu.
Tekjutryggingin skerðist
með öðrum hætti. Öryrkjar
hafa frítekjumark sem árið 2020
er 1.315.000 krónur fyrir allt
árið ef um atvinnutekjur er að
ræða og 328.000 krónur ef um
greiðslur frá lífeyrissjóðum er að
ræða. Fjármagnstekjur umfram
98.640 krónur skerða einnig.
Tekjutryggingin er skert um 38
prósent af þeim tekjum sem fara
umfram frítekjumarkið.
Örorkulífeyrir skerðist um 25
prósent þeirra tekna sem fara
umfram frítekjumark.
Til að fá betri hugmynd
um mismunandi skerðingu
ólíkra tekjuliða er lesanda
bent á reiknivélina á vefsíðu
Tryggingastofnunar, tr.is. Þar er
einnig hægt að sjá áhrif þess að
hafa atvinnutekjur samhliða töku
örorkulífeyris. Til dæmis getur
öryrki, sem býr einn með ekkert
barn á framfæri, þénað 400.000
krónur á mánuði fyrir skatt úr
atvinnu en engu að síður fengið
96.772 krónur í örorkulífeyri.
Mikið hærri atvinnutekjur myndu
þó hins vegar fella niður allan
bótarétt.
Tekjuáætlun
Örorkulífeyrisþegar þurfa að
skila inn tekjuáætlun til að fá
örorkugreiðslur. Það er gífurlega
mikilvægt að hafa þessa áætlun
nákvæma og breyta henni ef
aðstæður breytast. Öryrkjar
hafa margir brennt sig á því að
fá bakreikning vegna ofgreiddra
bóta eftir að Tryggingastofnun
fær upplýsingar frá skattinum.
Þessu var breytt til batnaðar á
síðasta ári þegar lögfest var að
Tryggingastofnun geti skoðað
tekjur hvers mánaðar fyrir sig,
sem og heildartekjur á ári og
skuli miða við það sem skili hærri
greiðslum til bótaþega.
Bílamál
Öryrkjar með hreyfihömlun gætu
átt rétt á uppbót vegna rekstrar
bifreiðar og jafnvel uppbót eða
styrk vegna kaupa á bifreið.
Hreyfihömlun þarf þá að skerða
verulega færni einstaklings til að
komast leiðar sinnar. Uppbót/
styrk vegna kaupa á bifreið má
sækja um á fimm ára fresti.
Uppbótin er 720.000 krónur fyrir
þá sem eru að kaupa sína fyrstu
bifreið og 360.000 krónur fyrir
þá sem áður hafa átt bifreið.
Styrkurinn nemur 1.440.000
krónum og er hann veittur þegar
þörf er að á að kaupa bifreið
vegna þess að líkamsstarfsemi er
hömluð eða vantar líkamshluta.
Ef kaupa þarf sérútbúna bifreið
þá getur styrkur numið allt að
50–60 prósentum af kaupverði
bifreiðarinnar, þó að hámarki
fimm milljónir.
Annað sem gott er að vita
Öryrkjar borga ekki
bifreiðagjöld. Þeir fá afslátt af
læknisþjónustu, ýmiss konar
sérfræðiþjónustu, geta fengið
afslátt í kvikmyndahúsum,
húsdýragarðinum og þar fram
eftir götum. Einnig geta þeir
fengið afslátt af fasteignagjöldum.
Lesendur eru hvattir til að kynna
sér vel afsláttarkjör sem bjóðast
öryrkjum, enda bótagreiðslurnar
ekkert fagnaðarefni og
skerðingarnar miklar.
Öryrkjar í fangelsi
Greiðslur örorkulífeyris falla niður
ef lífeyrisþegi fer í afplánun. Fangi
getur þó sótt um ráðstöfunarfé
til Tryggingastofnunar. Maki
fangins lífeyrisþega getur fengið
barnalífeyri greiddan til sín ef
afplánun hefur varað í að minnsta
kosti þrjá mánuði. n