Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Page 16
16 7. febrúar 2020FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
„Þetta er alls ekki gert til þess að skrímsla-
væða ofbeldismenn, heldur þvert á móti“
n Skýrsla um líðan og upplifun þolenda heimilisofbeldis og persónuleikaeinkenni ofbeldismanna n Afbrýðisemi, tortryggni og stjórnsemi algeng
persónueinkenni n Ofbeldismenn oft venjulegir, jakkafataklæddir Íslendingar
N
ýlega var gefin út skýrslan „Líðan og
upplifun þolenda heimilisofbeldis
og persónuleikaeinkenni ofbeldis
manna“ sem Kvennaathvarfið vann
sem fræðsluefni til að nýta til stuðnings við
þolendur heimilisofbeldis og aðstandend
ur þeirra. Alls bárust svör frá 326 konum.
Af þeim höfðu 202 reynslu af ofbeldissam
bandi. Drífa Jónasdóttir, afbrotafræðing
ur og verkefnastýra hjá Kvennaathvarfinu,
vann rannsóknina og kynnti hana á mál
þingi Stígamóta í lok janúar.
Sama sagan
„Okkur hjá Kvennaathvarfinu fannst við
oft heyra sömu söguna frá þeim sem leita
til Kvennaathvarfsins,“ segir Drífa í sam
tali við DV. Hún segir þolendur heimil
isofbeldis oft lýsa svipuðum einkennum
ofbeldissambanda. Í byrjun sé allt frá
bært. Makar þeirra komi fram við þær sem
drottningar, stilli þeim upp á stall og allt sé
frábært. Síðan með tímanum fari gljáinn af
sambandinu þegar ofbeldið hefst.
Stjórnsamir, afbrýðisamir og tor-
tryggnir
Drífa segir rannsóknina ekki miða að því
að búa til einhvern einkennalista til að
hjálpa fólki að greina ofbeldismenn í um
hverfi sínu. „Þetta er alls ekki gert til þess
að skrímslavæða ofbeldismenn, heldur
þvert á móti.“ Það séu þó viss persónu
einkenni sem komi oftar fyrir í frásögnum
þolenda heimilisofbeldis en önnur. Þeirra
á meðal er stjórnsemi, afbrýðisemi og tor
tryggni.
Þær konur sem ekki höfðu reynslu af of
beldissambandi voru líklegri til að nefna
önnur atriði undir liðnum „neikvæð at
riði sem lýsa honum best.“ Þar voru nefnd
persónueinkenni á borð við lítið sjálfs
traust, þrjósku, óstundvísi og leti. „Þetta
eru aðeins krúttlegri eiginleikar en að vera
stjórnsamur og trylltur.“
Drífa bendir þó á að þessi listi yfir ein
kenni veiti enga leiðbeiningu við að bera
kennsl á ofbeldismenn í samfélaginu, enda
geti menn verið tortryggnir að eðlisfari en
samt ekki ofbeldismenn.
Taka ekki ábyrgð á ofbeldinu
„Fólk tengir sig ekki við þetta því steríó
týpan af ofbeldismanni er eitthvert
skrímsli. En raunveruleikinn er að þetta
eru venjulegir, jakkafataklæddir karlmenn
sem vinna í Borgartúninu, inni á leikskól
um, eru stuðningsfulltrúar á geðsjúkrahús
um. Þetta eru alls konar menn.“
Í rannsókn sem gerð var á Íslandi kom
á daginn að ofbeldismenn eru bara hin
ir venjulegu, hversdagslegu, íslensku
karlmenn. „Kom í ljós að karlar sem
eru gerendur ofbeldis og senda kon
ur í kvennatthvarfið, vinnan þeirra og
menntun þeirra er nákvæmlega sú sama
og fyrir meðalkarlmanninn á Íslandi. Þeir
eru ekki minna eða meira menntaðir eða
í verri félagslegri stöðu. Þetta er nákvæm
lega eins. Þetta eru venjulegir menn sem
sækja börnin sín í leikskólann og kaupa sér
Drífa Jónasdóttir,
afbrotafræðingur
og verkefnastýra hjá
Kvennaathvarfinu
Af hverju féllstu fyrir honum?
Dæmi um svör þátttakenda sem
höfðu reynslu af heimilisofbeldi
n Hann sagði það sem ég vildi heyra
og var heillandi
n Hann var fyndinn, aðlaðandi og
góður
n Hann var vel lesinn og gagnrýn
inn á samfélagið, vissi mikið um
femínisma
n Hann var opinn, brosmildur og ég
var sú eina sem hann sá.
n Vinsæll og góður, þegar við
kynntumst. Mér fannst hann þurfa
mig.
n Skemmtilegur, vinsæll, hlýr, yfir
vegaður.
n Hann elti mig þar til ég gafst upp.
Ég var viðkvæm fyrir.
n Mjög gaman að vera með honum.
Kom fram við mig eins og drottn
ingu, sem var allt öðruvísi en ég var
vön.
n Ótrúlega skemmtilegur og góður
við mig, í byrjun.
Erla Dóra
erladora@dv.is