Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Qupperneq 25
KYNNING
LAGNIR OG LÓÐIR EHF:
Jarð-, lagna- og lóðavinna
Bjarni Ingvar Halldórsson, eigandi fyrirtækisins Lagnir og lóðir ehf., hefur
gaman af vinnunni. Það kemur
sér vel því hann rekur nokkuð
umfangsmikla starfsemi í jarð- og
lagnavinnu með litlum mannafla
og vinnur mikið sjálfur. Bjarni
vinnur fyrir byggingaverktaka,
fyrirtæki og stofnanir, en mest
fyrir einstaklinga – til dæmis
þá sem þurfa að láta skipta um
lagnir, helluleggja, tyrfa og/eða
endurskipuleggja garðinn eða gera
fínt í kringum sumarbústaðinn. Fyrir
byggingaverktaka annast hann
alla þá jarðvegsvinnu sem þarf að
framkvæma áður en hús og önnur
mannvirki eru byggð.
„Ég er með nokkra starfsmenn
á sumrin en færri á veturna,“ segir
Bjarni en töluverðan tækjabúnað
þarf til að halda starfsemi hans
gangandi: „Ég er með gröfur, vörubíla,
sendibíla og svo ýmis minni tæki og
búnað,“ segir Bjarni en töluverður
kostnaður er við að endurnýja slíkan
tækjabúnað svo vel sé og stundum
þarf að gera við fram á nótt til að
hafa öll tæki klár fyrir daginn.
„Ég er mjög mikið í drenlögnum,
við mokum fyrir og skiptum um allar
lagnir sem þarf, undir og við hús,“
segir Bjarni en lagnavinna getur
orðið aðkallandi og er framkvæmd
á öllum árstímum. „Það er verst ef
það er mikil snjókoma eða mikið
frost en annars getur þetta farið
fram hvenær sem er.“
Lagnir og lóðir ehf. annast
líka ýmis lagnaverkefni fyrir
veitufyrirtæki og leggur og
endurnýjar lagnir fyrir fyrirtæki og
stofnanir.
Styttist í vorverkin
Tíminn líður hratt, núna er kominn
janúar og áður en við vitum af fer
vorið að nálgast. Aðspurður hvaða
verk sem tengjast hans starfsemi fólk
ætti að huga að fyrir vorið segir hann:
„Vetur hér geta verið ansi
umhleypingasamir og blautir þá
verður fólk mjög oft vart við leka í
kjöllurum. Ýmist eru þá lagnir ónýtar
eða það vantar drenlagnir í kringum
hús – en það er algengt í gömlum
húsum. Þegar drenlagnir eru ónýtar
endurnýjum við þær og skiptum
um allar lagnir sem þarf undir og
við húsið, hvort sem um er að ræða
fráveitu- eða neysluvatnslagnir.
Fólk nýtir þá oft tækifærið og breytir
staðsetningu niðurfalla, handlauga
og klósetta. Þar sem vantar lagnir
setjum við einfaldlega nýjar lagnir.“
Margir sem vilja umbreyta
görðum sínum og lóðum leita til
Lagna og lóða ehf. Bjarni segir
gott að huga að slíkum verkefnum
um leið og frost fer úr jörðu. Hann
endurmótar garða, mokar fyrir
hellulögnum, sólpöllum og heitum
pottum. Í sumarbústaðalöndum
gerir hann vegi auk þess að
umbreyta görðum og setja lagnir í
og við sumarbústaði.
Verksvæði fyrirtækisins er allt
suðvesturhorn landsins.
Nánar má fylgjast með starfseminni
á Facebook-síðunni Lagnir og
lóðir. Til að fá nánari upplýsingar
eða tilboð í verk er hægt að
hringja í Bjarna í síma 891-9120
eða senda tölvupóst á netfangið
vaxandivandi@gmail.com