Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Side 36
36 FÓKUS - VIÐTAL 7. febrúar 2020
Þ
óra Hrund Guðbrandsdóttir er einn
af hugmyndasmiðum dagbókanna
MUNUM en samhliða fyrirtækja-
rekstri vinnur hún að lokaverkefni
sínu í samstarfi við Barnaheill. Þóra seg-
ist elska að vinna ólík verkefni á fjölbreytt-
um sviðum en innblástur hugmynda sinna
sækir hún úr ólíklegustu áttum.
Sjálf lýsir Þóra sér sem tveggja barna
móður úr Kópavogi sem elskar kjötsúpu,
ferðalög og ævintýri. Hún er viðskipta- og
markaðsfræðingur að mennt og er í þann
mun að ljúka meistaranámi í stjórnun og
stefnumótun. „Ég hef fengist við ýmislegt
fram til dagsins í dag og hef alltaf elskað
ólík verkefni sem veita mér ástríðu. Í dag
starfa ég sjálfstætt en það fyrirkomulag
hentar mér vel. Mér finnst gaman að geta
sett upp mismunandi hatt fyrir hvern dag,
en suma daga er ég viðburðastjóri, aðra er
ég að vinna í Dokobit, sem er fyrirtæki sem
við maðurinn minn rekum og tengist því
að rafvæða ferla og gera vinnu fólks skil-
virkari með því að nota rafrænar undir-
skriftir. Einnig er ég að vinna í lokaverkefni
mínu í samstarfi við Barnaheill sem felst í
því að fá fyrirtæki til að opna augun fyrir
því að innleiða barnvænar stefnur í fyrir-
tæki sín og hvaða ávinning það getur haft
í för með sér og svo er það auðvitað MUN-
UM, sem á stóran hlut af hjarta mínu.“
Mikilvægt að endurskilgreina markmiðið
Spurð hvernig hugmyndin að dagbókun-
um hafi kviknað segir Þóra að hvatvísi hafi
ráðið för. „Við Erla Björnsdóttir, samstarfs-
kona mín og vinkona, deildum saman
skrifstofu í Austurstræti á þeim tíma sem
hugmyndin að dagbókinni kviknaði. Það
má segja að dagbækur hafi tengt okk-
ur saman, en báðar vorum við alltaf með
nokkrar bækur í einu sem héldu utan
um ólíka þætti og við vorum báðar alltaf
að leita að hinni fullkomnu dagbók, sem
innihéldi alla þá þætti sem okkur fannst
skipta máli að hafa í dagbók. Þegar von-
in dvínaði um að við myndum finna þessa
bók ákváðum við að búa hana til sjálf-
ar. Þetta var í október 2014 og við ætluð-
um að gefa bókina út fyrir jólin sama ár.
Eins og svo oft þegar maður á sér einhvern
draum eða markmið sem maður vill fram-
kvæma þá tekst það ekki í fyrstu tilraun,
en þá er svo mikilvægt að leggja ekki árar
í bát og gefast upp, heldur að endurskil-
greina markmiðið eða drauminn sem við
eigum. Í okkar tilviki var það tímaramm-
inn sem var algjörlega óraunhæfur, en að
gefa út dagbók fyrir jólin og byrja á henni
í október með enga reynslu eða þekkingu
á því sviði, er algjörlega galið. Í staðinn
fyrir að leggja árar í bát settum við nýjan
tímaramma; að gefa hana út ári seinna, í
stað þess að hugsa að okkur hefði mistek-
ist. Þá allt í einu varð markmið okkar um
að gefa út þessa bók raunhæft, þótt það
hefði á sama tíma verið krefjandi.
Það var auðvitað mikið út fyrir ör-
yggisrammann okkar að leggja af stað
í þetta ferðalag og við óttuðumst fjöl-
margt sem tengdist því að gefa þessa bók
út. Hvað ef enginn kaupir dagbókina og
hún er algjör tímaskekkja á snjallöldinni
sem við lifum á? Hvað ef það væru nú vit-
leysur í henni? Og svo lengi mætti telja.
En það er það besta við það þegar mað-
ur stígur út fyrir öryggishring sinn að þá
gerist oft eitthvað magnað. Þess vegna er
svo mikilvægt að leggja óttann til hlið-
ar og þora að kýla á hlutina. Í stað þess
að hugsa; hvað ef þetta klúðrast?, viljum
við snúa hugsuninni við og spyrja; hvað
ef þetta fer bara nákvæmlega eins og mig
dreymir um og gangi bara sjúklega vel? Ef
við temjum okkur þess konar hugsunar-
hátt og hættum að óttast mistök sem eru
hluti af lífinu, erum við miklu líklegri til
að láta vaða. Í þessu tilfelli seldist bókin
upp á fjórum dögum og við fórum í nýtt
prent. Við höfum gefið hana út árlega
síðan og erum að selja hátt í tíu þúsund
bækur á ári, svo við vorum sannarlega
ekki einar um það að elska dagbækur. Við
höfum verið að reyna að koma henni að
á erlendum mörkuðum og erum á hverju
ári að stækka á því sviði, en það er mikil
þolinmæðisvinna og við ætlum okkur að
halda áfram, en þar liggja helstu tækifæri
okkar til stækkunar. Við elskum þó að sjá
hvað við erum komnar með sterkan hóp
hérna heima sem notar bókina ár eftir ár
og er að hjálpa okkur í að móta hana og
betrumbæta.“
Algengustu mistökin að láta draumana
ekki rætast
Þóra lýsir dagbókinni sem hefðbundinni
þótt sérstaða hennar felist í að auðvelda fólki
markmiðasetningu, tímastjórnun og að efla
jákvæða hugsun á einfaldan og árangurs-
ríkan hátt. „Það er ótrúlega mikilvægt að
við gerum okkur grein fyrir mikilvægi þess
að setja okkur markmið sjálf, þá fyrir okk-
ur en ekki bara vinnutengd. Ef maður hefur
ekkert markmið í persónulegu lífi má segja
að maður sé stefnulaus, eða hafi ekki sýn á
hvert mann langar að fara, gera eða upplifa
Mikilvægt að
leggja ekki
árar í bát
n Ákvað í hvatvísi að búa til dagbók
n Lífið tók stakkaskiptum með betra skipulagi
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is