Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Síða 37
FÓKUS - VIÐTAL 377. febrúar 2020
í lífinu og lendi því hugsanlega oft í aðstæð-
um sem maður kaus ekki endilega sjálfur.
Eða maður upplifir að maður framkvæmdi
aldrei það sem löngunin stóð til í lífinu. En
þegar fólk er spurt að því á dánarbeðinum
hverju það sæi mest eftir í lífinu þá er algeng-
asta svarið að viðkomandi hafi varið of mikl-
um tíma í vinnu eða aldrei látið drauma sína
verða að veruleika. Við erum svo ótrúlega oft
að bíða, bíða eftir rétta tækifærinu eða hin-
um fullkomna tíma til að láta draumana ræt-
ast. En þessi fullkomni tími á silfurfati kemur
sjaldnast og því þurfum við að sjálf að búa til
tímann og aðstæðurnar til að láta þessa hluti
verða að veruleika.“
Sjálf lýsir Þóra verkferlinu sem lærdóms-
ríku þar sem stöllurnar renndu blint í sjó-
inn og þurftu því að læra frá grunni allt sem
fólst í því verkefni að gefa út bók. „Þetta á að-
allega við um allt sem varðar uppsetningu
og hönnun, en til að lágmarka alla áhættu
við verkefnið ákvað ég að læra að gera það
sjálf og hef séð um uppsetningu og hönnun
á dagbókinni sem og öðru efni sem við ger-
um. Erla er sálfræðingur og með doktors-
gráðu í líf- og læknavísindum og svo kem ég
úr allt annarri átt, sem kemur sér vel í verk-
efni eins og þessu, en svo sameinumst við í
þessari miklu ástríðu fyrir skipulagi, tíma-
stjórnun, markmiðasetningu og í raun í
vinna í því að láta drauma okkar rætast. Við
höfum haldið okkur við útgáfu á dagbókinni
síðustu ár og það að reyna að koma henni á
markað erlendis, en það er þolinmæðisverk-
efni sem stækkar þó alltaf með hverju ári. Við
höfum verið síðustu ár að vinna þetta sam-
hliða annarri vinnu og öðrum verkefnum, en
erum að gefa aðeins í núna, árið 2020, með
því að gefa út nýjar MUNUM-vörur sem eru
væntanlegar á næstu vikum og mánuðum.“
Tíminn það mikilvægasta sem við eigum
Og Þóra viðurkennir að líf hennar hafi tek-
ið stakkaskiptum eftir að hún hóf að skipu-
leggja tíma sinn betur. „Ég afkasta mun
meiru á styttri tíma en ég næ líka að halda
utan um drauma mína og markmið og
reyna á markvissan hátt að láta þá verða að
veruleika. Það er svo mikilvægt að skipu-
leggja tímann vel, ekki síst til að hafa tíma
til að gera það sem okkur finnst skemmti-
legt og það sem nærir okkur. Öll eigum
við það sameiginlegt að hafa jafn margar
klukkustundir í sólarhringnum og að við
höfum ekki endalausan tíma. Það þekkja
allir eitthvert fólk sem virðist hafa fleiri
klukkustundir í sólarhringnum en aðrir,
en það fólk á það yfirleitt sameiginlegt að
skipuleggja tíma sinn og markmið vel og
veit þannig hvert það er að fara. Við verð-
um því að taka tímann alvarlega, því hann
er það mikilvægasta sem við eigum og eitt
því fáa í þessum heimi sem fæst ekki fyrir
peninga. Veitum honum athygli og pæl-
um aðeins í hvað tíminn okkar fer í. Við
vinnum 1.500–2.000 klukkustundir á ári,
en erum við ánægð í þeirri vinnu sem við
erum í? Verjum tíma í það sem nærir okkur
andlega og líkamlega en ekki bara skyld-
ur og það sem við verðum að gera? Verjum
tíma með fólki sem gefur okkur orku en
tekur hana ekki frá okkur. Oft hættir okkur
til að umgangast fólk af vana eða skyldu-
rækni. Ég mæli svo innilega með því að fólk
velti þessu fyrir sér. Við Erla erum einmitt
að bjóða upp á námskeið nú í febrúar þar
sem við munum fara yfir alla þessa þætti
og fá fólk til að leggja línurnar fyrir árið
og svo auðvitað framtíðina, ná tökum á
betra skipulagi og tímastjórnun og hvetja
fólk til að leyfa sér að dreyma og kýla á það
sem það langar til að gera. Hægt er að lesa
meira um það á munum.is ef einhver hef-
ur áhuga á því, en Meistaramánuður er að
ganga í garð um helgina og því gott tæki-
færi til að reyna að verða eins góð útgáfa af
þér og hægt er.“ n
„Í staðinn fyr-
ir að hugsa;
hvað ef þetta
klúðrast?, viljum
við snúa hugsun-
inni við og spyrja;
hvað ef þetta fer
bara nákvæmlega
eins og mig dreym-
ir um og gangi bara
sjúklega vel?
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N