Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Qupperneq 38
38 MATUR 7. febrúar 2020
Við viljum franskar, sós’ og salat
n Góð sósa er gulls ígildi n 5 sósur sem hitta beint í mark
M
eð góðri máltíð er afar mikilvægt að hafa góða
sósu sem passar réttinum sem er á boðstóln-
um. Hér eru nokkrar sósuuppskriftir sem gætu
komið sósuhugmyndafluginu af stað og kynnt
lesendum undraheiminn sem sósan býður upp á. Aioli
n 1 egg
n 3 hvítlauksgeirar
n 1 msk. sítrónusafi
n 1 tsk. Dijon-sinnep
n 1/2 tsk. salt
n 1/2 bolli grænmetisolía
n 1/4 bolli ólífuolía
Setjið egg, hvítlauk,
sítrónusafa, sinnep og salt í
matvinnsluvél og blandið vel
saman. Hafið matvinnsluvél-
ina í gangi og bætið græn-
metisolíunni varlega saman
við í þunnri bunu. Bætið síð-
an ólífuolíunni saman við á
sama hátt. Berið fram með til
dæmis kartöflubátum, kjöti
eða nánast hverju sem er eða
geymið í ísskáp í eina viku.
n 1 bolli fersk steinselja
n 1 bolli ferskt kóríander
n 1 msk. ferskt oreganó
n 1/2 bolli laukur, saxaður
n 3 hvítlauksgeirar
n 1–2 msk. sítrónusafi, helst
nýkreistur
n 2 msk. rauðvínsedik
n salt og pipar eftir smekk
n 1/2 tsk. chili-flögur
n 1/2 bolli ólífuolía
Setjið allt nema ólífuolíuna í
matvinnsluvél og blandið vel
þar til allt er orðið þokkalega
smátt saxað. Bætið ólífuolíunni
varlega saman við og blandið
vel. Berið strax fram eða geymið
í ísskáp. Þessi sósa á upp-
runa sinn í Argentínu og pass-
ar einstaklega vel með grilluðu
kjöti. Þá er hún mjög góð í mar-
ineringu.
n 2 msk. smjör
n 3 msk. hveiti
n 240 ml nýmjólk
n 160 ml bjór
n 2 tsk. Worcestershire-sósa
n 1/2 tsk. Dijon-sinnep
n 1/2 tsk. hvítlaukskrydd
n 1/4 tsk. reykt paprikukrydd
n 1/4 tsk. salt
n 250 g cheddar-ostur, rifinn
Bræðið smjör í meðalstórum
potti yfir meðalhita. Bætið
hveiti saman við og þeytið
þar til þykknar, eða í um
eina mínútu. Bætið
mjólkinni varlega
saman við og þeytið vel
þar til sósan þykknar, í um
eina mínútu. Blandið restinni
af hráefnunum saman við, einu
í einu og hrærið vel. Takið af
hellunni og berið fram heita
því hún er ekkert sérstaklega
góð köld, en geymist í ísskáp í
um viku. Þessi sósa er góð með
alls kyns snarli, nýbökuðu
pretzel-brauði eða í
taco.
n 1/2 bolli mæjónes
n 2 msk. tómatsósa
n 1 tsk. Dijon-sinnep
n 1 tsk. eplaedik
n 1 hvítlauksgeiri,
smátt saxaður
n 1/2 tsk. papriku-
krydd
n 1/2 tsk. laukkrydd
n 1/4 tsk. svartur
pipar
Setjið öll hráefni í
skál og blandið vel
saman. Kælið í eina
klukkustund og
njótið úrvalsútgáfu
af okkar gömlu, góðu
kokteilsósu.
n 1 bolli tómatsósa
n 1/2 bolli púðursykur
n 1/4 bolli eplaedik
n 2 msk. hunang
n 1 tsk. salt
n 1 tsk. paprikukrydd
n 1 tsk. hvítlaukskrydd
n 1 tsk. laukkrydd
n 1/2 tsk. svartur pipar
Setjið öll hráefnin í pott
og þeytið. Eldið yfir með-
alhita þar til blandan sýð-
ur, lækkið þá hitann og
látið malla í korter. Leyf-
ið sósunni að kólna áður
en hún er borin fram,
en þessi geymist í tvær
vikur í ísskáp og passar
með alls kyns mat – allt
frá rifjasteik til blómkáls-
vængja.
Bjór- og cheddar-sósa
Hunangslegin
barbeque-sósa
Skotheld hamborgarasósa
Chimichurri
Lilja Katrín
Gunnarsdóttir
lilja@dv.is