Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Síða 46
46 FÓKUS 7. febrúar 2020
YFIRHEYRSLAN
Davíð
Óskar
Ólafsson
Davíð Óskar Ólafsson hefur undanfarin ár haslað sér völl sem einn
af okkar fremstu kvikmyndaframleiðendum. Hann er metnaðarfullur,
ákveðinn og óragur við að takast á við ný og krefjandi verkefni. Nýjasta
verkefnið er að leikstýra og ætlar hann sér að gera meira af því í framtíð-
inni. Davíð Óskar er í yfirheyrslu helgarinnar.
Hvar líður þér best?
Heima er alltaf best, en mér finnst ekkert
leiðinlegt að vera á ströndinni að slappa af.
Hvað óttastu mest?
Að eitthvað komi fyrir börnin mín.
Hvert er þitt mesta afrek?
Ég held að það sé að hafa náð að koma
mér upp lífi þar sem ég er hamingjusamur.
Að ég eigi yndislega fjölskyldu sem styður
við bakið á mér og að ég sé að vinna við
það sem ég elska.
Furðulegasta starf sem þú hefur
tekið að þér?
Ég hef ekki unnið við neitt nema kvik-
myndagerð sem er í raun stórfurðulegt
starf. Hvert verkefni er öðruvísi og þú veist í
raun aldrei við hverju er að búast.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni?
„I did it my way.“
Hvernig væri bjórinn Davíð Óskar?
Hann væri örugglega léttur, ferskur og
seiðandi.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Ekki vera hræddur við að mistakast.
Hræðsla við mistök er oft það sem stoppar
mann af í lífinu.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Hengja upp og brjóta saman þvott.
Besta bíómynd allra tíma?
Þær eru margar og erfitt fyrir mig að velja
á milli.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja
búa yfir?
Að geta flogið. Mig hefur oft dreymt að ég
gæti hlaupið og tekist á loft og ég man svo
greinilega tilfinninguna við að fljúga, þó að
það hafi bara verið í draumi. En ef það á að
vera eitthvað raunhæft þá vildi ég búa yfir
meiri þolinmæði, en ég er að vinna í því á
hverjum degi.
Hver er mesta áhætta sem þú
hefur tekið?
Ætli það hafi ekki verið að stofna Mystery
og vaða blint út í þennan bransa, en það
hefur svo sannarlega verið áhættunnar
virði.
Hvaða frasi eða orð fer mest í
taugarnar á þér?
Það er ekki svo mikið orð eða frasar. Það
fer kannski mest í taugarnar á mér þegar
fólk tjáir sig án þess að vita um hvað það er
að tala.
Hvað geturðu sjaldnast
staðist eða ert góður í að
réttlæta að veita þér?
Ég er algjör nammigrís. Ég á
erfitt með að narta ekki í eitt-
hvað á kvöldin.
Hvað er á döfinni hjá
þér?
Ég ætla að reyna að
slappa aðeins af á næst-
unni. Síðasta ár var massíft
þar sem ég frumsýndi Brot
á RÚV og síðan kvikmyndina
Gullregn í janúar. En ég er alltaf
að vinna, þannig að samhliða því
að slappa af þá er ég að þróa og
fjármagna næstu verkefni mín.
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N