Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Page 48
7. febrúar 2020 6. tölublað 110. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Nei! Iðnaðar- menn ehf? Allt að sjötíu prósenta afsláttur af sýningarvörum Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG HANS J. WEGNER, ARNE JACOBSEN, BORGE MOGENSSEN, PHILIPPE STARCK, ERIK MAGNUSSEN, OFL. Skeifan 6 / 5687733 / www.epal.is Síðustu dagar - enn betra verð. Hver lagahöfundur fær hálfa milljón L agahöfundar sem taka þátt í Söngvakeppni RÚV í ár fá greiddar 500 þúsund hver. Söngvarar fá greiddar rúmlega 100 þúsund krónur auk greiðslu fyrir flutning á lokakvöldinu. Tíu lög keppa til úrslita í Söngvakeppninni í ár en keppnin fer fram á tveimur undan­ úrslitakvöldum, þann 8. og 15. febrúar. Alls munu 19 manns flytja lögin í Söngvakeppninni í ár. Sjö lög hafa einn flytjanda, eitt lag hefur tvo flytjendur og þá eru tvö lög flutt af hljómsveit, annað af fjórum einstaklingum og hitt af fimm. Þá eru sex af flytjendum einnig titlaðir sem höfundar lags. Í samtali við DV segir Rúnar Freyr Gíslason, fjölmiðlafulltrúi og verkefnastjóri Söngvakeppninnar, að RÚV greiði fyrir keppnina með ýmsu móti, ýmist til höfunda og flytjenda beint, eða með öðrum hætti. Höfundar laganna fá greiddar 500 þúsund krónur samtals; 400.000 krónur þegar þeir skiluðu laginu inn í nóvember og það sem eftir stendur að keppni lokinni. Um verktakagreiðslur er að ræða. „Þessar 500.000 krónur eru hugsaðar sem greiðsla upp í kostnað þátttakenda vegna stúdíóleigu og upptökustjóra og búninga og einnig utanumhald og framkvæmdastjórn atriðis. Að auki greiðum við svo öllum listamönnum sem koma fram í upptökunni á laginu, söngvurum og hljóðfæraleikurum, samkvæmt taxta sem unninn var í samráði við FÍH. Þessar tölur eru allt frá rúmum 35.000 krónum, fyrir leik á eitt hljóðfæri, og upp í rúmar 110.000 krónur, fyrir sólósöng. Við greiðum svo öllum listamönnum sérstaklega fyrir að koma fram í keppnunum. Bakraddir, dansarar og söngvarar fá allir greitt fyrir framkomuna, 55.000–112.000 krónur.“ Rúnar Freyr tekur fram að RÚV greiði allan kostnað sem tengist atriðunum á sviðinu, svo sem leikmuni, sviðsmynd, ljós og grafík. Þá greiðir RÚV leikstjóra og raddþjálfara sem aðstoða keppendur. Já iðnaðarmenn gjaldþrota í þriðja sinn J á iðnaðarmenn verkstæði ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Framkvæmdastjóri og prókúruhafi fyrirtækisins er Jóhann Jónas Ingólfsson, þekktur kennitöluflakkari og glæpamaður. Hann var eigandi Já iðnaðarmanna sem fór í þrot fyrst 2017 en hóf umsvifalaust aftur starfsemi á nýrri kennitölu. Árið 2018 fór fyrirtækið aftur í þrot á nýrri kennitölu en hóf umsvifalaust aftur starfsemi á enn einni kennitölunni, þá fyrir Já iðnaðarmenn verkstæði ehf. Á síðasta ári stofnaði Jóhann enn eina kennitöluna, nú undir nafni Málning Múr og Meira ehf. Jóhann Jónas hefur margsinnis komist í kast við lögin. Meðal þeirra brota sem hann hefur verið sakfelldur fyrir eru nauðgun, þjófnaður og eiturlyfjasmygl. Nýlega hefur honum verið gefið að sök að hafa brotið gegn iðnaðarlögum með því að hafa ófaglærða starfsmenn í vinnu hjá Já iðnaðarmönnum og launaþjófnað gagnvart starfsmönnum sínum. Skírð í höfuðið á ömmum sínum D óttir tónlistarkonunnar Þórunnar Ernu Clausen og knattspyrnumannsins Olgeirs Sigurgeirssonar fékk nafn um síðustu helgi. Stúlkan sem er fædd í janúar fékk nafnið Hrefna Margrét í höfuðið á ömmum sínum. Erna greindi frá þessu á Instagram á miðvikudag. Hrefna er fimmta barnið í fjölskyldunni en Erna á tvo syni úr fyrra sambandi og Olgeir á einnig tvö börn úr fyrra sambandi. DV óskar Hrefnu litlu til hamingju með nafnið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.