Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 6
6 14. febrúar 2020FRÉTTIR EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI „Ekki gert af hefndarhug eða til þess að særa“ n Nína bjó til vettvang fyrir íslenskar konur til að deila hryllingssögum af stefnumótaforritum n Dæmi um viðbjóðslegar og ógnvekjandi sögur n Hefur fengið fjórar hótanir um málsókn „Við erum að kalla á hjálp, við erum að biðja um úrlausnir. Í ljósi metoo-byltingarinnar og opinber- unum um kynferðislegt ofbeldi er frá- bært að geta styrkt böndin milli okkar með því að sýna umhyggju fyrir náung- anum og vonandi verndað næstu konu fyrir svona upplifun,“ segir Nína Eck sem í október 2018 stofnaði hóp á Facebook þar sem íslenskum konum býðst að deila slæmum reynslusögum af Tinder, sem og öðrum stefnumótaforritum. Nína hefur síðan þá fengið nokkrar hót- anir um lögsókn frá mönnum sem koma fyrir í sögum á síðunni. Byggja hótanirnar á því að umræddar nafn- og myndbirtingar brjóti í bága við persónuverndarlög. Nína stendur þó fast á sínu og segir mikilvægt að íslenskar konur hafi vettvang til að deila reynslu sinni hver með annarri. Hún legg- ur áherslu á að sögur sem fela í sér ásökun um glæp séu ekki birtar á síðunni. Hyggjast herða öryggisráðstafanir Stefnumótaforritið Tinder kom á mark- að árið 2012 og hefur notið sívaxandi vin- sælda á meðal einhleypra Íslendinga í leit að félagsskap og hugsanlega lífsförunaut. Þegar stofnaður er aðgangur á forritinu er nýr notandi beðinn um að gefa upp ald- ur, staðsetningu og hvaða kyni hann hefur áhuga á. Öryggi notenda er þó ekki fyllilega tryggt á miðlinum og auðvelt er að sigla þar undir fölsku flaggi. Þá eru engar kröfur gerðar til notenda um að gefa upp upplýs- ingar um til dæmis sakaferil. Fyrr á árinu tilkynntu forsvarsmenn Tinder að til stæði að bjóða notendum aðgang að neyðar- hnappi í for rit inu, sem mun þá gera þeim kleift að gera yf ir völd um viðvart ef þeir telja sig sig vera í hættu leg um aðstæðum. Viðbjóðslegar frásagnir Á síðunni Stöndum saman – Stefnumóta- forrit má í dag finna hundruð frásagna ís- lenskra kvenna. Frásagnirnar eru ýmist undir nafni eða ekki. Nína tekur fram að hún sé stofnandi hópsins en hún sé þó ekki umsjónarmaður síðunnar, hún komi ekki að inngöngubeiðnum í hópinn og stýri heldur ekki umræðunni sem þar fer fram. Þess eru dæmi að konur greini frá „gervimönnum“ sem þær hafa komist í kynni við á miðlinum. Þá eru mörg dæmi um að konur deili skjáskotum af skila- boðum sem þær hafa fengið send frá karl- mönnum, skilaboðum sem eru vægast sagt ógeðfelld. Af hverju stofnaðir þú þennan hóp? „Ég lenti í því að maður sem ég kynntist á stefnumótaforriti kom mjög óþægilega fram við mig og setti mig í mjög óþægi- lega stöðu með kröfu og bón um kynferð- islegar athafnir sem ég var alls ekki tilbúin í. Það hvarflaði að mér, eins og það hefur gert mjög oft áður, að það væri mögulega bara auðveldara að segja já og þola við, í staðinn fyrir að standa upp fyrir sjálfri mér. Daginn eftir hugsaði ég með mér að þessi maður sæi mig líklega bara sem einn fisk- inn sem slapp úr netinu. Hvað hefur hann gert þetta við margar konur og hvað á hann eftir að gera þetta við margar í viðbót? Fólk sem er virkt á stefnumótaforritum verð- ur að vera með aðgengilegar viðvaranir, því að svona manneskjur fá bara að halda gangi sínum áfram svo lengi sem við þegj- um yfir framkomu þeirra.“ Nína segir tilgang hópsins vera að veita konum rými til að opinbera óásættan- lega, óviðeigandi og særandi hegðun karl- manna sem eru virkir á stefnumótaforrit- um eða í makaleit. „Við viljum að þeir geri sér grein fyrir þeim áhrifum sem hegðun þeirra hefur á konur og að tími þöggunar er liðinn.“ Nína telur mikla þörf á vettvangi eins og þessum. „Sérstaklega þar sem stjórnendur for- ritanna eru alræmdir fyrir lélega þjónustu við notendur þegar þeir lenda í þessum aðilum. Ísland er lítið land og næsti maður er aldrei langt undan, þannig að líklegt er að ef einhver kemur illa fram við þig hefur hann gert það áður og mun gera það aftur.“ Enginn ásakaður um glæp Nína segir að fyrstu vikurnar eftir að hópurinn var stofnaður hafi henni borist þónokkuð mörg símtöl, skammir og þar að auki nokkur bréf frá lögfræðingum. „Ég viðurkenni að það var ákveðinn lærdómur að gera þetta rétt, að hjálpa þeim sem koma til mín undir nafnleynd að setja sína sögu fram þannig að enginn sé sakaður um glæp án þess að vera dæmdur fyrir hann og að lína sé dregin milli óvið- eigandi framkomu og ofbeldis. Eftir að ég hætti að setja inn sögur undir mínu nafni síðasta haust hefur það að mestu róast en ég fæ ennþá um það bil tvenn skilaboð í viku sem eru ætluð „admin“ hópsins og ég bendi þeim á að senda skilaboð á síðuna sem ber nafn hópsins og með titilmynd af tófu. Síðasta lögmannsbréfið barst mér síðan fyrir rúmri viku.“ Hvað myndir þú segja við þá sem halda því fram að nafn- og myndbirting af þessu tagi sé eingöngu til að meiða/skaða/særa? „Í fyrsta lagi er myndbirtingin vegna þess að viðkomandi meiddi/skaðaði eða særði aðra manneskju, sem er núna að taka vald sitt til baka og skila skömminni þang- að sem hún á heima. Í öðru lagi er þetta ekki gert af hefndarhug eða til þess að særa, þetta er til þess að viðurkenna og opinbera þann sársauka sem hefur orðið nú þegar. Í þriðja lagi þá er þessi leið mögulega talin harkaleg en það hefur sýnt sig að lítið ann- að virkar. Við erum að kalla á hjálp, við erum að biðja um úrlausnir! Hvað þarf að gerast til þess að þessi hegðun eigi sér ekki stað í þjóðfélaginu? Hvernig fáum við svona fólk til þess að sjá að sér? Hvert getur maður leitað þegar samskiptamynstur manns sær- ir aðra? Þessar og fleiri spurningar vakna við lestur þráðanna í hópnum. Eitt vitum við þó fyrir víst; við berum ekki ábyrgð á því lengur. Við skilum skömminni.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.