Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 24
Rómantík og gjafir 14. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ
Valentínusarhelgin verður ekki
fullkomnuð nema maður geti
kúrt í sófanum með góða bók
Amor, Eros, Kúpíd, Venus, Afródíta! Ástin er alltumlykjandi á þessum
degi heilags Valentínusar og hvað
er meira viðeigandi á slíkum degi en
að sökkva sér í góða ástarsögu á
meðan úti geysar stormur? Rauða
serían er ef til vill ein þekktasta
birtingarmynd ástarsagna á Íslandi
enda eru bækurnar víðlesnar af
körlum og konum á öllum aldri.
Rauða serían varð til árið 1985
þegar Rósa fékk þá flugu í höfuðið
að gefa út vasabrotsbækur á
íslensku. Þrjátíu og fimm árum síðar
hefur hún nú gefið út 2.716 titla, þar
af 761 rafbækur og 26 hljóðbækur.
„Ég er hvergi nærri hætt enda er
lesendahópurinn stór og tryggur og
svo er þetta einfaldlega svo gaman,“
segir Rósa Guðmundsdóttir.
Ástin breytist aldrei
„Þegar ég horfi til baka hafa orðið
ótrúlegar breytingar á þessum
35 árum. Samt erum við alltaf að
leita að því sama. Það er gleði og
hamingja. Ástin breytist aldrei og
hún eldist ekki heldur. Við viljum öll
að börnin okkar fái allt það besta,
góða heilsu og frábæra framtíð.
Þetta endurspegla bækur Rauðu
seríunnar. Bækurnar byggjast á
spennu og gleði og þær enda allar
vel þannig að lesandinn situr ekki
eftir með hugann í uppnámi. Þær
uppfylla það sem lesandinn leitar
eftir þegar hann sest niður til að
lesa bók. Samkvæmt nýjustu tölum
eru Íslendingar duglegir að lesa
spennusögur, en fjórar af hverjum
sex bókum Rauðu seríunnar eru
spennusögur. En ég gef líka út
mýkri sögur eins og Ástarsögur og
Sjúkrahússögur fyrir þá sem vilja
lesa þannig sögur.“
Góð þýðing er undirstaða
góðrar bókar
Ásútgáfan fær sendar sextíu
nýjar bækur á ensku á mánuði
frá bókaútgáfunni Harlequin
Enterprises. „Sjálf les ég um 15-20
bækur mánaðarlega til þess að
velja í flokkana, sem eru eins ólíkir
og þeir eru margir. Sama gildir með
lesendurna, en lesendahópurinn
er afar fjölbreyttur.“ Rósa bíður
stundum í nokkur ár með útgáfu
og safnar bókum saman í seríu.
„Hver höfundur skrifar sjaldan meira
en tvær bækur á ári um sömu
fjölskylduna. Þá geymi ég bækurnar
þangað til þær eru allar komnar og
gef þær út allar í röð. Lesendur mínir
vilja flestir lesa alla seríuna í einum
rykk og láta ekki bjóða sér að fá 1–2
bækur á ári í fjögur ár. Við höfum
ávallt lagt mikið upp úr því að hafa
bækurnar á góðri íslensku og erum
svo heppin að eiga frábæra og vel
menntaða þýðendur. Góð þýðing er
enda undirstaða góðrar bókar.“
Ódýri bókapakkinn fyrir alla
fjölskylduna
Ásútgáfan gefur út stakar bækur
en einnig saman í stórsniðugum
pakka. „Það góða við þessa pakka er
að bækurnar eru úr ólíkum seríum.
Í pakkanum eru fjórar bækur og
tvö blöð, allt úr sex mismunandi
seríum sem eru hverri annarri ólíkari.
Þá getur hver fjölskyldumeðlimur
fengið eitthvað að lesa við sitt hæfi.
Konan vill kannski ekki lesa ljótar
sögur og vill bara lesa ljúfar og
fallegar sögur. Ástarsögurnar og
Sjúkrahússsögurnar falla þá vel í
kramið hjá henni. Svo vill bóndinn
kannski hafa eitt til tvö morð í sinni
sögu og meiri spennu. Þá getur
hann valið sögur úr Ást og undirferli
flokknum eða Ást og afbrot, en þær
eru harðastar. Unglingarnir hafa
verið mjög hrifnir af Ást og óvissa
sem eru meira eins og kúrekasögur.
Svo eru Örlagasögurnar alltaf
sívinsælar hjá öllum kynjum. Þessar
seríur hafa algerlega slegið í gegn
og ég held að það sé vegna þess
að við Íslendingar erum svo mikið
fjölskyldufólk. Við viljum vita hvað
er að gerast hjá öllum meðlimum
fjölskyldunnar og svo eru alltaf að
finnast launbörn í sögunum sem
rugla allt.“
Sögur sem falla í kramið
Bækurnar sem koma út frá
Ásútgáfunni lúta ákveðnum
lögmálum og væntingum sem
verður að uppfylla. „Í fyrsta lagi
þarf að vera efni í henni, á blaðsíðu
fimmtán þarf að vera komin spenna.
Við stílum inn á rómantíkina og
spennuna og svo hafa gömul óleyst
sakamál verið verulega vinsæl.
Sagan þarf einnig alltaf að enda vel,
því að bækurnar eiga að ganga upp
og fólk verður að ná saman í lokin.
Lesendur vilja ekki vera skildir eftir
í uppnámi með óljós endalok. Við
lesum til að öðlast gleði, ekki til að
búa til ný vandamál.“
Þú finnur allar bækurnar í
rafbókabúðinni
„Þegar ég byrjaði með rafbókbúðina
hafði ég áhyggjur af því að prentuðu
bækurnar myndu falla í sölu en
því fór fjarri lagi. Það er alveg
nýr lesendahópur sem kaupir
rafbækurnar. Margir Íslendingar sem
búa erlendis vilja lesa á íslensku.
Svo er eldra fólkið sem hefur alltaf
lesið bækurnar en sér illa. En það
getur lesið á spjaldtölvu. Ég sendi
þeim bækurnar í Word-skjali svo
það þurfi ekki að hlaða þeim niður
af netinu. Það er t.d. mjög vinsælt
að gefa spjaldtölvu með áskrift
að bókum Ásútgáfunnar í jólagjöf.
Eftir að rafbók hefur verið keypt er
alltaf hægt að sækja hana aftur
inn á „mínar síður“ í rafbókabúðinni
í hvaða tölvu sem er. Margir kaupa
10–15 rafbækur áður en farið
er í frí og lesa svo í rólegheitum
í spjaldtölvunni eða Kindle á
ströndinni eða bústaðnum sem
hefur ekkert internet. Rafbókabúðin
kemur líka að góðum notum þegar
uppgötvast að það vantar kannski
eina bók í einhverri ákveðinni seríu. Þá
má bóka að hún er til í rafbókabúðinni
því þær eru alltaf til þar.“
Bækurnar frá Ásútgáfunni má
finna í öllum bestu bókabúðum
landsins sem og fjölmörgum
matvöruverslunum.
Nánari upplýsingar má nálgast á
asutgafan.is