Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Side 26
Sérblað 14. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ
Það hentar ekki öllum að mæta á fyrirfram ákveðnum tíma í ræktina og hafa
einkaþjálfarann standandi yfir
sér á meðan þeir svitna og púla.
Margir vilja frekar fá prógramm í
símann þar sem þeir geta hreyft
sig á sínum forsendum og á sínum
tíma. Auk þess vilja margir gera
æfingarnar heima hjá sér eða
úti. Fitlife er hugarfóstur Amöndu
Marie Ágústsdóttur sem hefur
starfað sem þjálfari í um átta ár
og einkaþjálfari í fimm ár. „Fitlife er
framlenging á einkaþjálfarastarfinu
og mér fannst tilvalið að bjóða upp
á þessa þjónustu til þess að geta
hjálpað sem flestum,“ segir Amanda.
Amanda.
Fitlife byggist á snjallforriti fyrir
iPhone- og Android-síma, þar
sem þú færð sérsniðið prógramm
með æfingaplani og matarplani.
Snjallforritið inniheldur myndbönd
sem kenna nákvæmlega hvernig á
að gera hverja æfingu fyrir sig. Þú
skráir niður árangur og framfarir
í appið. Einnig geturðu hlaðið
inn myndum til að fylgjast með
árangrinum. Amanda hefur nú bætt
við tveimur nýjum þjálfunarleiðum á
Fitlife æfingakerfið. Þá er hægt að
velja annars vegar þriggja mánaða
hlaupa- og styrktarprógramm og
svo þriggja mánaða þríþrautar- og
styrktarprógramm ásamt þeim
þjálfunarleiðum sem áður voru í
boði. „Helsta ástæðan fyrir því að ég
vildi bæta við æfingaprógrömmum
í hlaupi og þríþraut er aukinn áhugi
á þríþraut hjá þeim sem voru að
æfa hjá mér sem helst í hendur við
auknar vinsældir fjölþrautarinnar
Landvættir. Sjálf hef ég ástríðu fyrir
þríþraut og hef lengi verið að hjálpa
öðrum við að æfa fyrir þríþraut
og hlaup. Það var því mjög rökrétt
framhald að bjóða upp á þessa
þjónustu sem hluta af Fitlife.“
Mistök að byrja of geyst
Margir byrjendur gera þau mistök
að byrja of geyst. Að hlaupa of hratt
of snemma hefur þveröfug áhrif en
ætlað var enda er líkaminn engan
veginn í stakk búinn til þess að þola
þessi miklu átök og árangurinn
næst mun hægar en ella. Þetta er
líka uppskrift að líkamsmeiðslum
síðar meir. Fæstir vita einnig á
hvaða hjartsláttarsvæði þeir eiga
að æfa eða hvernig þeir eiga að
stýra æfingum til þess að hámarka
árangur. „Fólk er oft ekki að hvíla
nægilega á milli æfinga. Það er
nauðsynlegt að taka reglulega
hvíldardaga til að tryggja næga
endurheimt, því líkaminn tekur
mestum framförum í batanum.
Mesti og besti árangurinn næst við
að vinna sig upp hægt og rólega.
Þú getur ekki stokkið frá byrjunarreit
yfir á fimmta stig heldur þarf að fara
í gegnum hvert skref fyrir sig. Hvert
skref er grunnurinn að næsta stigi.“
Persónubundin þjálfunarkerfi
Amanda tekur að sér að þjálfa
alla, hvort sem þeir eru byrjendur
eða þrautþjálfaðir íþróttamenn.
Hlaupa- og þríþrautaræfingakerfin
eru 100% persónubundin og stillt
út frá persónulegum markmiðum
og getu hvers og eins. „Það hlaupa
allir á mismunandi hraða, fólk hefur
ólíkan bakgrunn og það geta ekki
allir æft jafn marga klukkutíma á
viku. Það er líka mikilvægt að setja
sér markmið sem haldast í hendur
við settan keppnisdag og þá stillum
við æfingakerfið út frá því. Ég vildi
að ég gæti sagt að eftir þriggja
mánaða prógramm hjá mér verði
hver og einn farsæll hlaupari, en
það virkar ekki þannig. Þó svo
prógrammið byggist á vísindalegum
gögnum og sé sérsniðið að hverjum
og einum fyrir hámarks árangur,
þá veltur allt á getu og hvata hvers
og eins, hversu vel hann fylgir
æfingakerfinu, hversu mikið og lengi
hann er tilbúinn að æfa og hversu
vel líkaminn tekur við þjálfuninni.
Ef ég fæ til mín skjólstæðing sem
uppfyllir allar þessar kröfur, er
hann farinn að finna fyrir góðum
árangri innan þriggja mánaða
og bætir reglulega tíma sinn í
keppnum. Þetta er eins og að safna
í fitnessbauk. Svo lengi sem þú æfir
reglulega þá sérðu árangur og
baukurinn fyllist jafnt og þétt.“
Lykilatriði að hafa þjálfara í
þríþraut
„Í þríþraut eykst flækjustigið út
frá hlaupakerfinu enda inniheldur
þríþrautin bæði sund og hjólreiðar
ásamt hlaupum. Sundþátturinn
vefst fyrir flestum sem eru að taka
sín fyrstu skref í þríþraut og býð ég
því einnig upp á einkakennslu í sundi
meðfram þríþrautarprógramminu.“
Einnig segir Amanda að það sé
lykilatriði að hafa þjálfara til þess að
ná sem bestum árangri í þríþraut.
„Ég hef sjálf keppt á Elite stigi í
þríþraut og nýlega tók ég þátt í
þríþrautarkeppni í Valencia á Spáni
og sigraði í kvennaflokknum. Einnig
hef ég unnið í fjölda keppnum á
Íslandi. Þótt ég sé með mikla reynslu
af þjálfun í þríþraut og hlaupum
þá finnst mér ég samt þurfa minn
eigin þjálfara. Það er auðvelt að
verða þröngsýnn þegar kemur
að eigin þjálfun og framför. Það
er jafnvel alls ekki óalgengt að í
sömu vikunni gangi maður bæði
of nærri sér og taki því of rólega.
Það er því mikilvægt að hafa
einhvern óhlutbundinn sem skoðar
framför þína með gagnrýnum
augum og leiðbeinir þér í rétta
átt. Velgengni í keppnum segir
fátt um færni þjálfara til þess að
þjálfa aðra. Góður þjálfari mætir
skjólstæðingi á því stigi sem hann
er staddur á í stað þess að þröngva
eigin markmiðum á íþróttamann
sinn. Markmið mitt er ávallt að
viðskiptavinurinn nái sínu markmiði
á sínum forsendum og það er það
besta sem ég veit þegar það gerist.“
Nánari upplýsingar á fitlife.is
Fylgstu með á Facebook: FitLife
Einkaþjálfun – Amanda Marie
Instagram: Amanda m agustsdottir
FITLIFE:
Ný æfingakerfi í
hlaupum og þríþraut!