Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 4
4 14. febrúar 2020FRÉTTIR Það er staðreynd að… Volvo þýðir „Ég snýst“ á latínu. Einn af hverjum tveimur milljörðum manna nær 116 ára aldri. Um 9 milljónir manna deila sama afmælisdegi og þú. Al Capone kynnti sig sem hús- gagnasölumann. Vasadiskóið varð til árið 1979. Hver er hún n Hún er fædd á Selfossi árið 1965. n Hún stundaði nám við frumgreinadeild Háskólans á Bifröst og er með BS-próf í viðskiptalög- fræði. n Hún hefur látið gott af sér leiða sem blómaskreytir og garðyrkju- maður. n Hún var formaður innkaupa- ráðs Reykjavíkurborgar árin 2008–2009. n Hún var lögfræðingur hjá Alþýð- usambandi Íslands á sömu árum. SVAR: VIGDÍS HAUKSDÓTTIR Slagur um sveppinn n Segir börnum boðið upp á heilsuspillandi umhverfi n Bærinn segir rannsóknir sýna að engin mygla sé til staðar Y firmönnum safnsins og bæjaryfirvöld- um hefur lengi verið fullkunnugt um að barnadeildin á Bókasafni Hafnar- fjarðar sé full af myglu,“ segir starfs- maður Bókasafns Hafnarfjarðar sem vill ekki koma fram undir nafni af ótta við að missa starf sitt. Mikil veikindi starfsmanna Bókasafn Hafnarfjarðar er með stærri bókasöfnum landsins, en húsnæðið hefur lengi verið krökkt af myglu en mismikið hef- ur verið gert vegna þess. Tónlistardeildin var öll tekin í gegn fyrir nokkrum árum, sem og 2. hæð safnsins. Starfsmaðurinn segir að allt kapp hafi verið lagt á að halda ástandi hússins, og þá sérstaklega ástandinu á barna- deild, leyndu. „Það er kominn nýr forstöðumaður, Sig- rún Guðnadóttir, sem tók við af Óskari Guð- jónssyni í haust. Vonandi mun Sigrún koma með ferska vinda og tækla vandamálin í stað- inn fyrir að leggja alla áherslu á að leyna þeim. Hún er í það minnsta mjög ákveðinn yfirmað- ur.“ Mygla er hættuleg heilsu fólks og segir starfsmaðurinn að mikil veikindi starfsmanna síðustu ár staðfesti að eitthvað sé ekki í lagi við húsakost safnsins. „Reynt er að fela mygluna á barnadeildinni en auðvelt er að sjá bólgna veggi á bak við hill- ur og í tveimur bakherbergjum. Loftið þarna inni er slæmt og það er mikið ábyrgðarleysi fyrrverandi forstöðumanns og bæjaryfir- valda að hafa lítið sem ekkert gert til að laga ástandið á barnadeild. Það er búið að bjóða leikskólabörnum og öðrum börnum upp á húsnæði sem er uppfullt af myglu svo árum skiptir og það er hreinlega ótrúlegt að þetta skuli hafa viðgengist svona lengi. Af hverju var tónlistardeildin löguð í hvelli en ekki barna- deildin? Þetta er með ólíkindum.“ Minnst á myglu í starfsáætlunum Fullyrðing starfsmannsins um myglu í hús- næðinu virðist fá nokkra staðfestingu í starfs- áætlunum Hafnarfjarðar í menningar- og ferðamálum undanfarin ár. Í áætlun fyrir árið 2020 segir: „Nauðsynlegt er að hlú vel að viðhaldi safnabyggingar BH og eftirlit með athygli og áherslum á heilsusamlegt starfsumhverfi. Átaks er þörf í viðhaldsmálum til að glíma við vanda vegna raka og myglu í byggingunni. Þó að einhverjar úrbætur voru gerðar 2019 má gera enn betur. Huga þarf að breyttu húsnæði fyrir BH [Bókasafn Hafnarfjarðar].“ Svipað orðalag var að finna í áætlun fyrir árið 2018: „Nauðsynlegt er að hlú vel að viðhaldi safnabyggingar BH og eftirlit með athygli og áherslum á heilsusamlegt starfsumhverfi. Átaks er þörf í viðhaldsmálum til að glíma við vanda vegna raka og myglu í byggingunni.“ Mygluvandi og heilsufarsvandamál sem honum fylgir hafa mikið verið til umræðu í samfélaginu undanfarin ár. Einstaklingar hafa lýst ýmsum kvillum sem þeir rekja til myglu- svepps í húsnæði. Skiptar skoðanir eru þó um hvort það sé sveppurinn sjálfur sem veik- indunum valdi eða samanbland ólíkra þátta sem fylgi raka og geta haft neikvæð áhrif á loft- gæði innanhúss. Auk sveppa gætu það verið bakteríur, útgufun frá byggingarefnum, niður- brotsefni, lífveruagnir og fleira. Hluti barna og fullorðinna glímir einnig við sveppaofnæmi og reynist þeim einstaklingum sérstaklega þungbært að búa með svepp í nærumhverfi sínu. Mælingar leiddu í ljós að mygla sé ekki til staðar DV hafði samband við samskiptafulltrúa Hafnarfjarðar og óskaði eftir viðbrögðum við frásögn starfsmannsins. Í svari kemur fram að óháður aðili hafi verið fenginn til að taka út húsnæðið og niðurstaðan hafi sýnt fram á að þó svo vísbendingar hafi fundist um raka í veggjum sé ekki að finna myglu í húsnæðinu. Svar Hafnarfjarðarbæjar var eftirfarandi: „Takk kærlega fyrir að hafa samband og gefa okkur tækifæri til að lagfæra þennan misskilning sem virðist gæta hér. Sannar- lega var farið í skoðun á húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar síðastliðið haust þegar upp kom grunur um myglu. Óháður aðili, Verkís, var fenginn til að taka sýni og leiddu niður- stöðu í ljós að engin mygla er í húsnæðinu en vísbendingar um raka í veggjum. Aðgerða- áætlun hefur verið í gangi frá því að mælingar áttu sér stað varðandi lagfæringar á húsnæði til að laga og koma í veg fyrir raka í veggjum. Þannig hafa iðnaðarmenn verið að störfum við viðgerðir og málun, á þetta jafnt við um allar deildir m.a. barnadeild. Niðurstöður sýnatöku voru orðrétt eftirfar- andi: Loftsýni Niðurstöður allra loftsýna eru í góðu lagi og ekki þarf að grípa til aðgerða vegna þeirra. Snertisýni Niðurstöður snertisýna eru í góðu lagi og ekki þarf að grípa til aðgerða vegna þeirra.“ n Einkenni sem hafa verið tengd við myglu- svepp eru til dæmis: n Einkenni frá öndunarfærum svo sem hósti, astmi, nefrennsli, slímbólga, bólga í ennis- og kinnholum, lungnabólga, eyrna- bólga og fleira n Flensueinkenni n Liðverkir n Endurteknar sýkingar n Þreyta, orkuleysi og svefnvandamál n Höfuðverkur n Tannverkur n Eyrnaverkir, hella og suð n Einkenni frá meltingarvegi svo sem upp- köst, niðurgangur, meltingartruflanir n Hárlos n Hjartsláttartruflanir n Minnisleysi n Doði n Sjóntruflanir Bókasafn Hafnarfjarðar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.