Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Side 4
4 14. febrúar 2020FRÉTTIR
Það er
staðreynd að…
Volvo þýðir „Ég snýst“ á latínu.
Einn af hverjum tveimur milljörðum
manna nær 116 ára aldri.
Um 9 milljónir manna deila sama
afmælisdegi og þú.
Al Capone kynnti sig sem hús-
gagnasölumann.
Vasadiskóið varð til árið 1979.
Hver er
hún
n Hún er fædd á
Selfossi árið 1965.
n Hún stundaði nám
við frumgreinadeild
Háskólans á Bifröst
og er með BS-próf í viðskiptalög-
fræði.
n Hún hefur látið gott af sér leiða
sem blómaskreytir og garðyrkju-
maður.
n Hún var formaður innkaupa-
ráðs Reykjavíkurborgar árin
2008–2009.
n Hún var lögfræðingur hjá Alþýð-
usambandi Íslands á sömu árum.
SVAR: VIGDÍS HAUKSDÓTTIR Slagur um sveppinn
n Segir börnum boðið upp á heilsuspillandi umhverfi
n Bærinn segir rannsóknir sýna að engin mygla sé til staðar
Y
firmönnum safnsins og bæjaryfirvöld-
um hefur lengi verið fullkunnugt um
að barnadeildin á Bókasafni Hafnar-
fjarðar sé full af myglu,“ segir starfs-
maður Bókasafns Hafnarfjarðar sem vill ekki
koma fram undir nafni af ótta við að missa
starf sitt.
Mikil veikindi starfsmanna
Bókasafn Hafnarfjarðar er með stærri
bókasöfnum landsins, en húsnæðið hefur
lengi verið krökkt af myglu en mismikið hef-
ur verið gert vegna þess. Tónlistardeildin var
öll tekin í gegn fyrir nokkrum árum, sem og
2. hæð safnsins. Starfsmaðurinn segir að
allt kapp hafi verið lagt á að halda ástandi
hússins, og þá sérstaklega ástandinu á barna-
deild, leyndu.
„Það er kominn nýr forstöðumaður, Sig-
rún Guðnadóttir, sem tók við af Óskari Guð-
jónssyni í haust. Vonandi mun Sigrún koma
með ferska vinda og tækla vandamálin í stað-
inn fyrir að leggja alla áherslu á að leyna þeim.
Hún er í það minnsta mjög ákveðinn yfirmað-
ur.“
Mygla er hættuleg heilsu fólks og segir
starfsmaðurinn að mikil veikindi starfsmanna
síðustu ár staðfesti að eitthvað sé ekki í lagi við
húsakost safnsins.
„Reynt er að fela mygluna á barnadeildinni
en auðvelt er að sjá bólgna veggi á bak við hill-
ur og í tveimur bakherbergjum. Loftið þarna
inni er slæmt og það er mikið ábyrgðarleysi
fyrrverandi forstöðumanns og bæjaryfir-
valda að hafa lítið sem ekkert gert til að laga
ástandið á barnadeild. Það er búið að bjóða
leikskólabörnum og öðrum börnum upp á
húsnæði sem er uppfullt af myglu svo árum
skiptir og það er hreinlega ótrúlegt að þetta
skuli hafa viðgengist svona lengi. Af hverju var
tónlistardeildin löguð í hvelli en ekki barna-
deildin? Þetta er með ólíkindum.“
Minnst á myglu í starfsáætlunum
Fullyrðing starfsmannsins um myglu í hús-
næðinu virðist fá nokkra staðfestingu í starfs-
áætlunum Hafnarfjarðar í menningar- og
ferðamálum undanfarin ár. Í áætlun fyrir árið
2020 segir:
„Nauðsynlegt er að hlú vel að viðhaldi
safnabyggingar BH og eftirlit með athygli og
áherslum á heilsusamlegt starfsumhverfi.
Átaks er þörf í viðhaldsmálum til að glíma við
vanda vegna raka og myglu í byggingunni. Þó
að einhverjar úrbætur voru gerðar 2019 má
gera enn betur. Huga þarf að breyttu húsnæði
fyrir BH [Bókasafn Hafnarfjarðar].“
Svipað orðalag var að finna í áætlun fyrir
árið 2018:
„Nauðsynlegt er að hlú vel að viðhaldi
safnabyggingar BH og eftirlit með athygli og
áherslum á heilsusamlegt starfsumhverfi.
Átaks er þörf í viðhaldsmálum til að glíma við
vanda vegna raka og myglu í byggingunni.“
Mygluvandi og heilsufarsvandamál sem
honum fylgir hafa mikið verið til umræðu í
samfélaginu undanfarin ár. Einstaklingar hafa
lýst ýmsum kvillum sem þeir rekja til myglu-
svepps í húsnæði. Skiptar skoðanir eru þó
um hvort það sé sveppurinn sjálfur sem veik-
indunum valdi eða samanbland ólíkra þátta
sem fylgi raka og geta haft neikvæð áhrif á loft-
gæði innanhúss. Auk sveppa gætu það verið
bakteríur, útgufun frá byggingarefnum, niður-
brotsefni, lífveruagnir og fleira. Hluti barna og
fullorðinna glímir einnig við sveppaofnæmi
og reynist þeim einstaklingum sérstaklega
þungbært að búa með svepp í nærumhverfi
sínu.
Mælingar leiddu í ljós að mygla sé ekki til
staðar
DV hafði samband við samskiptafulltrúa
Hafnarfjarðar og óskaði eftir viðbrögðum við
frásögn starfsmannsins. Í svari kemur fram
að óháður aðili hafi verið fenginn til að taka
út húsnæðið og niðurstaðan hafi sýnt fram á
að þó svo vísbendingar hafi fundist um raka í
veggjum sé ekki að finna myglu í húsnæðinu.
Svar Hafnarfjarðarbæjar var eftirfarandi:
„Takk kærlega fyrir að hafa samband og
gefa okkur tækifæri til að lagfæra þennan
misskilning sem virðist gæta hér. Sannar-
lega var farið í skoðun á húsnæði Bókasafns
Hafnarfjarðar síðastliðið haust þegar upp
kom grunur um myglu. Óháður aðili, Verkís,
var fenginn til að taka sýni og leiddu niður-
stöðu í ljós að engin mygla er í húsnæðinu en
vísbendingar um raka í veggjum. Aðgerða-
áætlun hefur verið í gangi frá því að mælingar
áttu sér stað varðandi lagfæringar á húsnæði
til að laga og koma í veg fyrir raka í veggjum.
Þannig hafa iðnaðarmenn verið að störfum
við viðgerðir og málun, á þetta jafnt við um
allar deildir m.a. barnadeild.
Niðurstöður sýnatöku voru orðrétt eftirfar-
andi:
Loftsýni
Niðurstöður allra loftsýna eru í góðu lagi og
ekki þarf að grípa til aðgerða vegna þeirra.
Snertisýni
Niðurstöður snertisýna eru í góðu lagi og ekki
þarf að grípa til aðgerða vegna þeirra.“ n
Einkenni sem hafa verið tengd við myglu-
svepp eru til dæmis:
n Einkenni frá öndunarfærum svo sem
hósti, astmi, nefrennsli, slímbólga, bólga í
ennis- og kinnholum, lungnabólga, eyrna-
bólga og fleira
n Flensueinkenni
n Liðverkir
n Endurteknar sýkingar
n Þreyta, orkuleysi og svefnvandamál
n Höfuðverkur
n Tannverkur
n Eyrnaverkir, hella og suð
n Einkenni frá meltingarvegi svo sem upp-
köst, niðurgangur, meltingartruflanir
n Hárlos
n Hjartsláttartruflanir
n Minnisleysi
n Doði
n Sjóntruflanir
Bókasafn Hafnarfjarðar