Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 28
28 MATUR 15. MAÍ 2020 DV B arnabókahöfundurinn Bergrún Íris Sævars-dóttir ver dögum sínum í að skrifa og teikna, ýmist á vinnustofunni sinni eða við borðstofuborðið með útsýni yfir hafið. Hún æfir nokkrum sinnum í viku í Hress sem hún lýsir sem heimilislegri heilsu- rækt, troðfullri af skemmti- legu og hressu fólki. „Fimm og tíu ára synir mínir halda mér í góðri rút- ínu svo ég er oftast sest við teikniborðið klukkan 8:15, en þó ekki fyrr en ég hef fengið mér morgunmat. Síðdegin einkennast af úti- veru, legó og lestri. Þegar við eiginmaðurinn útbúum kvöld- matinn fá drengirnir yfirleitt skjátíma, nema um barnvæna matreiðslu sé að ræða, þá hjálpa þeir til í eldhúsinu. Sá eldri hefur tekið á sig fleiri verkefni í mikilli samveru síðustu vikur. Nú tekur hann til dæmis alltaf úr uppþvotta- vélinni og eldar hafragrautinn á morgnana. Við höldum fast í kvöldsögu- hefðina á okkar heimili og eftir bað er lesið úr góðri bók. Við hjónin skiptumst á að fara í útigöngutúra og hjólaferðir á kvöldin á meðan líkams- ræktarstöðvarnar eru lokaðar. Eftir að börnin fara í rúmið er oft freistandi að vinna aðeins meira, enda vinnan mín svo skemmtileg og oft fæ ég verk- efnin á heilann og þá er erfitt að leggja þau frá sér. Svo er bara Netflix og tjill, kúr og kósí með eiginmannin- um, áður en ég leggst á kodd- ann, sem er yfirleitt frekar snemma enda er ég skelfilega kvöldsvæf,“ segir Bergrún Íris. Borðar ekki kjöt „Ég hætti að borða kjöt fyrir ári síðan, í kjölfarið á svaka pylsuveislu og fjörugum sauð- burði. Ein rollan var með hríðir og ég hélt augnsam- bandi við hana aðeins of lengi. Það gerði útslagið og ég lofaði rollugreyinu með dramatískri innöndun að borða börnin hennar aldrei aftur,“ segir Bergrún Íris. „Líklega finnst mörgum þessi saga frekar fyndin og kjánaleg, en ég hafði lengi ætlað að hætta að borða kjöt en vantaði einhvern veginn herslumuninn. Við þetta langa augnsamband við dýrið missti ég hreinlega lystina og hef ekki fundið fyrir kjötsöknuði síðan. Eftir það er ég græn- metis- og fiskæta. Ég elska chia-fræ, kínóa, rauðar og brúnar linsur, flest grænmeti og hef síðustu ár orðið háð tómötum og kaffi.“ Töfrar fram eitthvað úr engu Bergrúnu Írisi líður mjög vel í eldhúsinu og hún hefur gaman af eldamennsku. „Mér finnst sérstaklega gaman að elda svona „allt í einum potti“ máltíðir, bökur og grænmetisrétti þar sem úir og grúir af ýmsu. Þá er oft tilvalið að nýta afgangana og ég held að það sé mín sérgrein, að töfra eitthvað fram úr engu. Eiginmaðurinn er mikill bak- ari og okkur þykir báðum ofsa- lega gott að borða góðan mat.“ Uppáhaldsmatur Berg rúnar Írisar er grillaður lax. „Og kúrbítur í ýmsum réttum er með því besta sem ég veit,“ segir hún. n Graskerskaka með rjómaostskremi 3 egg (eða hörfræmjöl blandað í vatn). 225 g púðursykur ½ dl matarolía ½ dl jurta- eða kúamjólk 225 g hveiti 2 tsk. lyftiduft 2 tsk. kanill 300 g grófsaxað squash grasker 75 g rúsínur eða döðlur, ef vill Krem 125 g hreinn rjómaostur eða vegan rjómaostur 50 g flórsykur Eggjum og púðursykri hrært vel saman. Matarolíu og mjólk bætt saman við. Blandið saman hveiti, kanil og lyftidufti og hrærið út í deigið. Graskeri og rúsínum/döðlum bætt í. Hellið deiginu í smurt bökunarform og bakið kökuna í miðjum ofni við 180°C í ca 40 mínútur. Hrærið rjóma- osti saman við flórsykur þar til úr verður krem. Kælið kökuna og smyrjið kreminu á. Ég skreytti kökuna með heslihnetum og kókosflögum en það má nota hvað sem er, eða láta kremið duga. Verði ykkur að góðu. Matseðill Bergrúnar Írisar Morgunmatur Hafragrautur eða grísk jógúrt með chia-fræjum. Millimál nr. 1 Kaf f i er nauðsyn, eða að minnsta kosti nóg koffín. Ég er mjög hrifin af Collab-drykkjunum og mætti ég taka eitthvað með mér á eyðieyjuna eru miklar líkur á að Collab yrði fyrir valinu. Hádegismatur Ég elska að rölta frá vinnustof- unni minni á Íshúsinu yfir á Von og fá mér fiskréttinn þeirra í há- deginu. Maturinn er dásamlegur, verðið sanngjarnt og umhverfið æðislegt. Millimál nr. 2: Ég er algjör naslari og skáparót- ari. Millimál getur verið allt frá hnetum og döðlum til súkkulaðis og ostapopps eftir því hvar ég er stödd í tíðahringnum. Kvöldmatur Ef maðurinn minn eldar kjöt fyrir sig og strákana skipti ég því út fyrir eit thvað got t, til dæmis spínatbuff frá Roots. Þeir hafa líka sæst við alls kyns grænmet- isrétti, enda geta börn lært að elska hvaða mat sem er, ef hann er nógu oft í boði og ef þau fá að hjálpa til við eldamennskuna. Hélt aðeins of lengi augn- sambandi við rollu í hríðum Bergrún Íris nýtur sín í eldhúsinu og hennar sérgrein er að töfra eitthvað fram úr engu. Hún elskar kúrbít í hinum ýmsu réttum og er sérstaklega háð tómötum og kaffi. Bergrún Íris og fjölskylda hafa bakað nær daglega í hinni miklu samveru síðustu mánaða. MYND/VALLI Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.