Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 20
Háklassa- gisting á afslætti Nú keppast ferðaþjónustufyrir- tæki við að auglýsa afþreyingu og gistingu á niðursettu verði sökum skorts á erlendum ferða- mönnum. Mörg eftirsóttustu hótel landsins eru komin með sérflipa, eða tilboð, sem merkt eru Sumar 2020. HÓTEL GEYSIR Hótelið var opnað í ágúst 2019. Það er nokkuð stórt með 77 herbergjum og 6 svítum, en mikið er lagt upp úr útsýni yfir sveitina. Hótelið er fallega innréttað og hefur hlotið mikið lof á samfélagsmiðlum. Hluti herbergjanna er með stórum útskotsglugga sem hægt er að tylla sér í og láta hugann reika, en hin herbergin eru björt með stórum opnanlegum gluggaflötum og svölum. Hótelið hefur tileinkað sér sjálfbæra, umhverfisvæna stefnu en Hótel Geysir er starfrækt og upphitað eingöngu með grænni og endurnýjanlegri orku. Allt rafmagn sem notað er á hótelinu er framleitt af vatnsaflsvirkjunum, sem framleiða græna orku. n Tilboð: Frá 29. maí til 30. júní er boðið upp á tveggja manna herbergi á 19.500 kr. fyrir tvo með morgunverði og 40% afslátt af svítum. Einnig er tilboð á glæsilegum 4 rétta kvöldverði á 7.900 kr. á mann. n Tripadvisor: 4 af 5 / 387 umsagnir. ION Adventure hótelið við Nesjavelli hefur verið verðlaunað í bak og fyrir og skartar landsliðskokki. MYNDIR/AÐSENDAR 20 FÓKUS 15. MAÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.