Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 20
Háklassa-
gisting
á afslætti
Nú keppast ferðaþjónustufyrir-
tæki við að auglýsa afþreyingu
og gistingu á niðursettu verði
sökum skorts á erlendum ferða-
mönnum. Mörg eftirsóttustu
hótel landsins eru komin með
sérflipa, eða tilboð, sem merkt
eru Sumar 2020.
HÓTEL GEYSIR
Hótelið var opnað í ágúst 2019. Það er nokkuð stórt
með 77 herbergjum og 6 svítum, en mikið er lagt upp
úr útsýni yfir sveitina. Hótelið er fallega innréttað og
hefur hlotið mikið lof á samfélagsmiðlum.
Hluti herbergjanna er með stórum útskotsglugga
sem hægt er að tylla sér í og láta hugann reika, en
hin herbergin eru björt með stórum opnanlegum
gluggaflötum og svölum. Hótelið hefur tileinkað sér
sjálfbæra, umhverfisvæna stefnu en Hótel Geysir
er starfrækt og upphitað eingöngu með grænni og
endurnýjanlegri orku.
Allt rafmagn sem notað er á hótelinu er framleitt af
vatnsaflsvirkjunum, sem framleiða græna orku.
n Tilboð: Frá 29. maí til 30. júní er boðið upp á
tveggja manna herbergi á 19.500 kr. fyrir tvo með
morgunverði og 40% afslátt af svítum. Einnig er
tilboð á glæsilegum 4 rétta kvöldverði á 7.900 kr.
á mann.
n Tripadvisor: 4 af 5 / 387 umsagnir.
ION Adventure hótelið við Nesjavelli hefur verið verðlaunað í bak og fyrir og skartar landsliðskokki. MYNDIR/AÐSENDAR
20 FÓKUS 15. MAÍ 2020 DV