Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS 15. MAÍ 2020 DV TÍMAVÉLIN Mér þykir það leitt, ef þessi auglýsing ætlar að valda einhverjum úlfaþyt hér. Þetta er hluti af mínu starfi sem leikara, að koma fram í auglýsingum, og má eiginlega segja að það sé sú aukavinna sem mér býðst. Hér á landi vinna jú allir eins mikla aukavinnu og þeim stendur til boða,“ sagði Bessi Bjarnason leikari í samtali við Tímann í febrúar 1977. Bessi olli miklu fjaðra- foki þegar hann kom fram í Það vakti mikla athygli á dögunum þegar Borgar­ leikhúsið fjarlægði síga­ rettu af kynningarefni fyrir söngleikinn Níu líf, sem byggir á lífi Bubba Morthens. Í því samhengi er áhugavert að skoða íslenskar auglýsingar frá síðustu öld. Auglýsingar sem myndu án efa vekja hörð viðbrögð ef þær kæmu fyrir sjónir almenn­ ings árið 2020. Bessi auglýsti sígarettur íslenskri auglýsingaherferð fyrir tóbak seint á áttunda áratugnum. Birtist hann þar kumpánlegur með sígarettu í annarri hendinni og sagðist hafa skipt yfir í nýja tegund, „bragðmiklu filtersígarett- una“. Áhugafólki um tóbaks- varnir var ekki skemmt og þá voru Matthías Bjarnason heilbrigðismálaráðherra og Jón Ármann Héðinsson al- þingismaður á meðal þeirra sem úthúðuðu auglýsingunni í blaðaviðtölum. „Það er átakanlegt fyrir þessa menn, sem að henni standa, að láta leiðast til þess og sérstök von- brigði, að þekktur og virtur leikari skuli ánetjast gróða- bralli á þennan hátt,“ sagði Jón Ármann meðal annars í viðtali við Tímann. Bessi ræddi einnig við Dag- blaðið Vísi um auglýsinguna og viðurkenndi að hann hefði aldrei tekið þátt í auglýsing- unnni ef hann hefði vitað hversu hörð viðbrögðin yrðu. „Og ég fer auðvitað ekki aft- ur í tóbaksauglýsingu, fyrst það virkar svona neikvætt. Ég kæri mig ekkert um að vera að auglýsa tóbak, ef það verður til þess að allir fara að reykja.“ Ósmekklegt að selja grunlausar, íslenskar konur Fjölmargar íslenskar aug- lýsingar hafa verið umdeild- ar í gegnum árin. Árið 1982 vakti auglýsing Flugleiða í sænskum fjölmiðlum mikla hneykslan meðal Íslendinga. Auglýsingin þótti niðrandi í garð íslenskra kvenna og var talin vafasöm landkynning. Þar mátti sjá þrjár íslenskar stúlkur klæddar í eina ullar- peysu og var augljóst að skilaboðunum var beint að einhleypum, sænskum karl- mönnum í ferðahug. Hér fyrir neðan gefur að líta nokkrar vel valdar aug- lýsingar sem birst hafa í íslenskum prentmiðlum síð- ustu áratugi en myndu lík- lega aldrei vera samþykktar í dag. n Það ætlaði allt um koll að keyra þegar einn ástsælasti leikari þjóðarinnar auglýsti tóbak. MYNDIR/TÍMARIT.IS Auglýsing Icelandair þótti niðrandi í garð íslenskra kvenna. VAFASAMAR GAMLAR AUGLÝSINGAR Margar gamlar íslenskar aug- lýsingar myndu aldrei ganga upp í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.