Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Page 26
26 FÓKUS 15. MAÍ 2020 DV
TÍMAVÉLIN
Mér þykir það leitt, ef þessi auglýsing ætlar að valda einhverjum
úlfaþyt hér. Þetta er hluti af
mínu starfi sem leikara, að
koma fram í auglýsingum, og
má eiginlega segja að það sé
sú aukavinna sem mér býðst.
Hér á landi vinna jú allir eins
mikla aukavinnu og þeim
stendur til boða,“ sagði Bessi
Bjarnason leikari í samtali
við Tímann í febrúar 1977.
Bessi olli miklu fjaðra-
foki þegar hann kom fram í
Það vakti mikla athygli á
dögunum þegar Borgar
leikhúsið fjarlægði síga
rettu af kynningarefni
fyrir söngleikinn Níu líf,
sem byggir á lífi Bubba
Morthens. Í því samhengi
er áhugavert að skoða
íslenskar auglýsingar frá
síðustu öld. Auglýsingar
sem myndu án efa vekja
hörð viðbrögð ef þær
kæmu fyrir sjónir almenn
ings árið 2020.
Bessi auglýsti sígarettur
íslenskri auglýsingaherferð
fyrir tóbak seint á áttunda
áratugnum. Birtist hann þar
kumpánlegur með sígarettu
í annarri hendinni og sagðist
hafa skipt yfir í nýja tegund,
„bragðmiklu filtersígarett-
una“.
Áhugafólki um tóbaks-
varnir var ekki skemmt og
þá voru Matthías Bjarnason
heilbrigðismálaráðherra og
Jón Ármann Héðinsson al-
þingismaður á meðal þeirra
sem úthúðuðu auglýsingunni
í blaðaviðtölum. „Það er
átakanlegt fyrir þessa menn,
sem að henni standa, að láta
leiðast til þess og sérstök von-
brigði, að þekktur og virtur
leikari skuli ánetjast gróða-
bralli á þennan hátt,“ sagði
Jón Ármann meðal annars í
viðtali við Tímann.
Bessi ræddi einnig við Dag-
blaðið Vísi um auglýsinguna
og viðurkenndi að hann hefði
aldrei tekið þátt í auglýsing-
unnni ef hann hefði vitað
hversu hörð viðbrögðin yrðu.
„Og ég fer auðvitað ekki aft-
ur í tóbaksauglýsingu, fyrst
það virkar svona neikvætt.
Ég kæri mig ekkert um að
vera að auglýsa tóbak, ef það
verður til þess að allir fara að
reykja.“
Ósmekklegt að selja
grunlausar, íslenskar konur
Fjölmargar íslenskar aug-
lýsingar hafa verið umdeild-
ar í gegnum árin. Árið 1982
vakti auglýsing Flugleiða í
sænskum fjölmiðlum mikla
hneykslan meðal Íslendinga.
Auglýsingin þótti niðrandi í
garð íslenskra kvenna og var
talin vafasöm landkynning.
Þar mátti sjá þrjár íslenskar
stúlkur klæddar í eina ullar-
peysu og var augljóst að
skilaboðunum var beint að
einhleypum, sænskum karl-
mönnum í ferðahug.
Hér fyrir neðan gefur að
líta nokkrar vel valdar aug-
lýsingar sem birst hafa í
íslenskum prentmiðlum síð-
ustu áratugi en myndu lík-
lega aldrei vera samþykktar
í dag. n
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar einn ástsælasti leikari þjóðarinnar auglýsti tóbak. MYNDIR/TÍMARIT.IS
Auglýsing Icelandair þótti niðrandi í garð íslenskra kvenna.
VAFASAMAR GAMLAR AUGLÝSINGAR
Margar gamlar
íslenskar aug-
lýsingar myndu
aldrei ganga
upp í dag.