Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Page 21
Á ferð um landið BORGARNES
Borgarnes er dásamlegur án-
ingarstaður í nágrenni höfuð-
borgarinnar. Þar eru fjölmörg
skemmtileg söfn, þar sem allir
finna eitthvað við sitt hæfi.
KRAUMA
Krauma eru skemmtilegar náttúrulaugar við vatnsmesta hver Evrópu, Deild-
artunguhver, og eru því í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Borgarnesi.
Náttúrulaugarnar innihalda hreint og tært vatn, beint úr Deildartunguhver,
sem kælt er með vatni undan öxlum Oks. Laugarnar eru sex talsins, fimm
heitar og ein köld. Engum sótthreinsandi efnum er bætt í vatnið, heldur er
hreinleiki þess tryggður með mjög miklu vatnsrennsli í laugarnar. Huggu-
legur veitingastaður er á staðnum og slökunarherbergi. Hægt er að panta
sér drykk ofan í laugarnar og tilvalið að gefa sér góðan tíma til að slaka á.
Í júní bjóða til dæmis Nova, Olís og Arion banki tvo fyrir einn, frá sunnudegi
til fimmtudags, og þeir sem eru með Icelandic Coupons eru með 15% afslátt
í böðin. Einnig er boðið upp á tilboð í tengslum við ferðaávísunina.
LANDNÁMSSETRIÐ
Í Landnámssetri Íslands er hægt að kynnast Egils sögu og landnámssögunni
í nútímaútfærslu. Í Landnámssetrinu eru tvær fastar sýningar, önnur um
landnám Íslands, en hin um Egils sögu. Farið er í gegnum sýningarnar með
hljóðleiðsögn sem til er á 15 tungumálum, auk sérstakrar barnaleiðsagnar
á íslensku. Safnið er einstaklega vel heppnað og lifandi. Þar eru reglulegir
viðburðir og veitingastaðurinn virkilega góður. Hugmyndina að Landnáms-
setrinu fengu hjónin Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmunds-
dóttir sumarið 2003 og byggðu það upp af miklum myndarbrag. Kjartan er
virtur leikstjóri og bera sýningarnar allar keim af hæfileikum hans.
SAMGÖNGUSAFNIÐ OG
LATABÆJARSAFNIÐ
Í Samgöngusafninu er að finna
fornbíla frá síðustu öld, ljósmyndir
og sögur, auk veglegs safns af lög-
regluhúfum. Í Latabæjarsafninu
eru litríkir og skemmtilegir munir
sem notaðir voru við tökur sjón-
varpsþáttanna um íþróttaálfinn
og félaga hans, en forsprakki þátt-
anna og íþróttaálfurinn sjálfur,
Magnús Scheving, er uppalinn í
Borgarnesi. Tók Magnús sjálfur
virkan þátt í að koma Latabæjar-
safninu upp, en hann þykir ansi
handlaginn.
BJÖSSARÓLÓ
Það er stutt gönguleið frá Eng-
lendingavík og yfir á Bjössaróló.
Róluvöllurinn er allur gerður úr
endurunnu efni, svo sem rekavið.
Bjössaróló er hannaður og smíð-
aður af Birni Guðmundssyni. Á
Bjössaróló eru rólur, rennibrautir,
vegasalt, gamall bátur, brú og
ýmislegt fleira skemmtilegt.
Fjaran liggur svo á milli Englend-
ingavíkur og Bjössarólós og þar er
upplagt að tína nokkrar skeljar og
byggja kastala, ef fata og skófla
eru með í för.
LEIKFANGASAFNIÐ
Leikfangasafn Soffíu saman-
stendur af safni Óskar Elínar
Jóhannesdóttur og leikfangasafni
sem var staðsett í Iðnó, ásamt
leikföngum í eigu velunnara safns-
ins. Safnið er opið öllum. Frítt er
á safnið, en frjáls framlög eru vel
þegin og lítill baukur er á staðnum.
Safnið er staðsett við hlið Eng-
lendingavíkur og er því tilvalið
að reka þar inn nefið á leiðinni á
Bjössaróló, eða á leið í kræsingar
á pallinum á Englendingavík.
STEÐJI BRUGGHÚS
OG GISTING
Brugghúsið Steðji tekur bæði á
móti gestum í skoðunarferð og
smakk í gestastofu sinni. Brugg-
húsið er eigu hjónanna Svanhildar
Valdimarsdóttur og Dagbjarts Ari-
líussonar, sem einnig reka gist-
ingu í formi hálfgerðra smáhýsa,
sem líta út eins og bjór tunn ur.
Brugghúsið framleiðir ýmiss konar
bjór, til dæmis Halelúja jólabjór
og Súran þorrabjór með keim af
hvals eista. Steðji er í 25 mínútna
akstursfjarlægð frá Borgarnesi.
ENGLENDINGAVÍK
Við Kaupfélagsfjöruna í Borgar-
nesi er að finna guðdómlegt gisti-
hús og veitingastað. Staðurinn er
einstaklega notalegur og leitast
er við að láta húsnæðið halda sér
sem upprunalegustu. Huggulegur
pallur er fyrir utan veitingahúsið,
þar sem yndislegt er að sitja á
góðviðrisdögum og virða fyrir
sér litlu Brákarey. Skipulagðar
uppákomur verða á staðnum alla
laugardaga í júlí og ágúst.
B59
Það er nokkuð ljóst að Borgarnes
hefur ansi margt upp á að bjóða og
því tilvalið að dvelja yfir nótt. B59 er
eitt best geymda leyndarmál lands-
ins, en þar er virkilega góður matur á
hagstæðu verði (tveir veitingastað-
ir), falleg herbergi, spa og afar þjón-
ustulundað starfsfólk. Mælt er með
að kíkja á Snorra Bistro í hádeginu,
en þar má fá góðan mat á mjög góðu
verði að ógleymdum Aperol Spritz
kokteilnum, sem allir elska. Í júní
er boðið upp á tilboð, gisting með
freyðandi fordrykk, aðgang í spa,
þriggja rétta kvöldverði og morgun-
verði á aðeins 24.900 krónur.
HAMARSVÖLLUR
Borgarnes býr yfir glæsilegum
18 holu golfvelli, sem stendur
rétt fyrir utan bæinn. Völlurinn
skartar líka ákaflega skemmti-
legum starfsmönnum, ef marka
má nýlega frétt á heimasíðu
vallarins: „Hamarsvöllur kom
vel undan vetri, þrátt fyrir að sá
skratti hafi verið mjög rysjóttur og
viðsjárverður. Framkvæmdastjóri
/ vallarstjóri hóf þó snemma að
kitla gróðurinn til dáða á flötum
og öðrum mikilvægum stöðum.“
MYND/GETTY
MYND/AÐSEND
SKJÁSKOT/FACEBOOK
MYND/AÐSEND
MYND/PJETUR MYND/AÐSEND SKJÁSKOT/FACEBOOK
MYND/AÐSEND
SKJÁSKOT/FACEBOOK
MYND/AÐSEND
FÓKUS 21DV 19. JÚNÍ 2020