Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Blaðsíða 38
38 SPORT 433 19. JÚNÍ 2020 DV V iktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks í Pepsi Max-deild karla, var 16 ára þegar hann fór út í atvinnumennsku. Hann segir upplifunina hafa verið mjög góða. „Mamma mín flutti með mér ásamt Alexander Helga, liðsfélaga mínum í Breiða- bliki. Hún bjó með okkur fyrstu sex mánuðina. Þegar ég lít til baka þá held ég að það hafi verið mjög mikilvægt, þó að ég hafi ekki fattað það þá. Ég er mjög þakklátur fyrir það. Þetta var mjög góður tími og mér leið mjög vel í Hollandi í þessi fimm ár.“ Minna áfall en maður hefði haldið Viktor varð fyrir því áfalli að slíta krossband árið 2014 í ferð með undir 19 ára landsliði Ís- lands. Hann segir að áfallið hafi ekki verið mikið andlega. „Ég áttaði mig ekkert mikið á því að ég hefði slitið kross- band. Um leið og ég kom heim til Hollands úr landsliðsferð- inni tók við endurhæfingar- ferli. Ég byrjaði strax að æfa með sjúkraþjálfurum og ég fékk engan tíma til að melta þetta. Þetta tók átta mánuði og ég varð auðvitað eftir á líkam- lega. Ég tel mig hafa höndlað þetta vel andlega og þetta hafði minni áhrif en maður hefði haldið. Ég byrjaði að spila sex og hálfum mánuði eftir aðgerð. Það er held ég bara mettími, þannig séð,“ segir Viktor. Fékk nóg af varaliðinu Viktor spilaði í þrjú ár með varaliði AZ Alkmar. Hann fékk fá tækifæri með aðal- liðinu og kaus því að færa sig um set. Viktor fór í lið IFK Värn amo sem var í fallbaráttu í næstefstu deild Svíþjóðar. „Þeir voru með 5 stig eftir 15 leiki. Mér var sagt að það væri að fara í gang ákveðið verk- efni. Það var að koma inn fullt af leikmönnum og þeir ætluðu að gera allt til þess að bjarga sér frá falli. Þetta breytti öllu hjá liðinu. Á seinni hluta tímabilsins fengum við 27 stig, sem var næstmest af öllum liðum. Það gekk mjög vel í Svíþjóð. Ég byrjaði alla leiki og spilaði alla leiki sem voru í boði. Þetta var rosalega gaman og ég myndi segja að þetta hafi verið skemmtilegasta tíma- bilið mitt í atvinnumennsku.“ Viktor samdi við IFK Värn- amo á miðju tímabili. Liðið náði ekki að bjarga sér frá falli. Ekki voru til peningar til að halda í þá leikmenn sem komu nýir til liðsins og þurfti Viktor því að finna sér nýtt lið. Gott að koma heim Viktor var ekki lengi án liðs. Þrjú íslensk lið sýndu honum áhuga. Eitt þeirra var upp- eldisfélag hans Breiðablik. Tilfinningin að koma heim var mjög góð, að sögn Viktors. „Ég bjóst við því að þetta yrði eitt- hvert sjokk en þetta gerðist svo hratt. Ég skrifaði undir og byrjaði strax að æfa og spila og undirbúningstímabilið gekk vel. Sumir tala um að það sé skellur að koma heim, en mér leið mjög vel með þetta.“ Viktor var inn og út úr byrj- unarliði Blika á síðustu leik- tíð. Hann kom við sögu í 14 leikjum og skoraði eitt mark. Í ár er einn leikur búinn í Pepsi Max-deildinni. Vikt- or byrjaði leikinn og skoraði fyrsta mark Blika í 3-0 sigri á Gróttu. Tímabilið í fyrra var mjög þroskandi fyrir Vikt- or og segist hann finna fyrir meiri ábyrgð í ár en í fyrra. „Andrúmsloftið í fullorðins- bolta eins og í Pepsi-deildinni er öðruvísi en í unglingaliði og ég held að það hafi þroskað mig gríðarlega mikið. Núna finn ég fyrir trausti bæði frá leikmönnum og þjálf- urum.“ Ánægður með nýjar áherslur „Við erum með frábæran og breiðan hóp. Ég veit að ég get talað fyrir allan hópinn þegar ég segi að við séum mjög vel gíraðir inn á planið sem Ósk- ar, Dóri og Gulli komu með.“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, Halldór Árnason og Gunnleif- ur Gunnleifsson eru nýtt þjálf- arateymi Breiðabliks. Þeir koma með nýjar áherslur inn í liðið sem leikmennirnir hafa tekið vel í. „Við erum að spila aðeins öðruvísi fótbolta en við höfum gert. Blikar hafa allt- af verið svokallað „possess- ion“ lið, en það er til dæmis nýtt fyrir okkur að spila með markmanninn svona hátt uppi. Við viljum fjölga á miðjunni og spila í gegnum hana. Þegar við missum boltann viljum við pressa liðin hátt á vellinum. Okkur brá svolítið þegar þeir vildu fá Anton Ara markmann upp á miðju, en það hefur bara virkað ágætlega,“ segir Viktor Karl, yfirvegaður. „Hann er æðislegur“ Eins og fyrr segir er Óskar á sínu fyrsta tímabili sem þjálf- ari Blika. Viktor lýkur lofs- orði á hann. „Hann gæti verið svolítið misskilinn ef maður þekkir hann ekki, en hann er bara þvílíkur meistari. Það er mjög auðvelt að ræða við hann einn á einn. Hann er líka mjög sanngjarn þjálfari. Hann segir þér hvenær þú átt að gera eitthvað betur og lætur þig vita þegar þú ert að gera eitthvað vel. Þú finnur fyrir trausti frá honum þó svo að hann sé ekki alltaf að segja það við þig.“ Viktor segir að hugurinn leiti út, þrátt fyrir að honum líði mjög vel í Breiðabliki og hann einbeiti sér að núinu. Maður vill auðvitað spila á eins háu stigi og hægt er. Ég er með skýr markmið, en eins og staðan er núna líður mér mjög vel í Breiðabliki.“ Fatalína byrjaði sem skólaverkefni Viktor og kærasta hans, Jón- ína Þórdís Karlsdóttir, eiga fatamerkið BÖKK, ásamt Rúrik Gíslasyni knattspyrnu- manni. „Þetta byrjaði sem skólaverkefni hjá kærustunni minni í Verzlunarskóla Ís- lands. Þegar ég kom heim var ég að hjálpa til við að skutla pökkum. Þetta þróaðist svo út í það að ég keypti mig inn í fyrirtækið.“ Í fatalínunni er hettupeysa, stuttermabolur, húfa og belti sem var upphafið að þessu. Rúrik er frændi Viktors. „Við fengum Rúrik til að sitja fyrir á mynd fyrir Instagram-síðu fyrirtækisins, sem varð til þess að hann keypti sig inn í fyrirtækið.“ BÖKK var stofnað opinberlega á síðasta ári. Með haustinu er meira væntanlegt frá þessu nýja fatamerki. Viktor er nýútskrifaður úr menntaskóla og stefnir á frek- ara nám. „Ég var að skrá mig í háskóla í haust. Ég skráði mig í fullt af dóti, en hef áhuga á viðskiptum og ég hugsa að ég taki eitthvað svoleiðis.“ n SPILAR FYRIR UPPELDISFÉLAGIÐ EFTIR FRUMRAUN ERLENDIS Blikinn Viktor Karl segir dvöl sína erlendis hafa verið góða en er spenntur fyrir sumr- inu í Kópavogi. Hann er með mörg járn í eldinum og stefnir á háskólanám í haust. Sóley Guðmundsdóttir soley@dv.is Viktor samdi við AZ Alkmar í Hollandi 16 ára gamall. Nú spilar hann með uppeldisfélaginu. MYND/VALLI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.